Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 36

Læknablaðið - 15.01.1989, Blaðsíða 36
26 LÆKNABLAÐIÐ gagnkynhneigðra er vel staðfest og mikilvægt er að leita að HIV smiti meðal þeirra sem leita lækninga vegna annars kynsjúkdóms. Einnig er mikilvægt að rannsaka alla sjúklinga með einkenni sem samrýmst geta HIV smiti. Vegna fjölda HIV smitaðra einstaklinga á íslandi má búast við verulegri aukningu á alæmi á komandi árum. LIÐSÝKINGAR Á LANDSPÍTALA 1977-1986 Vilhjálmur Arason, Sigurður B. Þorsteinsson. Lyflækningadeild Landspítalans. Til að kanna tíðni og afdrif sjúklinga með liðsýkingu voru skoðaðar sjúkraskrár sjúklinga sem höfðu fengið þessa sjúkdómsgreiningu á árunum 1977-1986. Einnig var litið á allar Neisseria gonorrhoeae sýkingar sem voru greindar á sjúkrahúsinu. Alls voru þetta 48 sjúklingar en aðeins 28, þar af fjórir sjúklingar með sýkingu í gervilið, uppfylltu skilmerki um örugga liðsýkingu sem er liðvökvarannsókn með jákvæðri ræktun eða Grams-litun. Ef grunur var um Neisseria gonorrhoeae sýkingu þurfti a.m.k. að liggja fyrir liðvökvi sem gat bent til sýkingar auk jákvæðrar blóðræktunar. Hjá þremur konum telst greiningin þó líklega rétt þar sem frá leghálsi ræktuðust Neisseria gonorrhoeae. Hjá 12 sjúklingum sem fengu greininguna er aðeins hægt að tala um mögulega sýkingu og fimm sjúklingar teljast óllklegir að hafa fengið liðsýkingu þrátt fyrir þá sjúkdómsgreiningu og sambærilega meðferð. Ekki var sérstaklega litið eftir sýkingum í gerviliðum í þessari rannsókn þar sem telja má líklegt að sýkingar stuttu eftir aðgerð skili sér ekki sem sérstök sjúkdómsgreining við útskrift. Samkvæmt skráningu eru þetta fjórir sjúklingar með Staph. aureus sýkingu sem allir höfðu fengið mjaðmagervilið meira en sex árum áður. í 24 öruggum sýkingum var um að ræða sjö sýkingarvalda. 10 Staph. aureus 5 Staph. epidermidis 2 Streptococcae 2 H. influenzae 1 E. coli 1 Neisseria gonorrhoeae 1 Neisseria meningitidis 2 Gram neg. diplococcae Þetta voru 15 karlar og 9 konur. Sjö sjúklingar voru yngri en sjö ára þar af þrír yngri en þriggja ára. Tólf sjúklingar voru eldri en 60 ára. Liðvökvaræktun var jákvæð hjá 22 (92%) en Grams-litun var aðeins jákvæð hjá 10 (42%). Helmingi liðvökvasýna var lýst sem »purulent« en aðeins var hægt að staðfesta það hjá níu (38%). Níu sjúklingar (38%) höfðu slitgigtarbreytingar á röntgenmynd í liðnum við greiningu en enginn var með aðra gigtarsjúkdóma svo sem RA. Merki um beinsýkingu í liðnum á röntgenmynd var hjá átta sjúklingum (33%). Tímalengd frá upphafi einkenna til greiningar var að meðaltali fjórir dagar ef undan eru skildir fimm sjúklingar sem höfðu einkenni 14 daga. Þrír sjúklingar voru með undirliggjandi beinsýkingu. Þrír sjúklingar höfðu nýlega fengið sterainnspýtingar í liðinn. Fjórir sjúklingar voru með sykursýki og einn sjúklingur með compliment C2 skort. Algengastar voru sýkingar í hnjáliðum, sjö sjúklingar, en sex sjúklingar voru með sýkingu í mjöðmum. Reglulegar aspirationir úr sýktum lið voru framkvæmdar hjá fjórum sjúklingum, en Fimm sjúklingar fengu innsett dren, samtals níu sjúklingar (38%). Sýklalyf í æð var gefið að meðaltali í 24,3 daga en síðan fengu 19 sjúklingar lyf per os að meðaltali í jafnmarga daga. Meðallegutími var 40,1 dagur, en ef undan eru skildir tveir sjúklingar sem voru 116 og 267 daga var meðallegutíminn 26,4 dagar. Varanlegar beinbreytingar á röntgenmyndum vegna sýkingar sáust hjá sjö sjúklingum (29%) en að auki sögðust þrír hafa varanleg óþægindi í liðnum (42%) (FEB 1988). Tveir höfðu fengið gervilið. Af þeim sem fengu meðferð innan viku frá byrjun einkenna, 13 sjúklingar (54%), var aðeins einn sjúklingur með varanlegar afleiðingar (8%). Níu sjúklingar af 11 sem höfðu einkenni í meira en sjö daga fyrir meðferð höfðu varanlegar afleiðingar þar af sex sjúklingar með varanlegar beinbreytingar (54%). Einnig var leitað eftir varanlegum afleiðingum hjá þeim sem voru með líklega eða mögulega rétta greiningu og fannst eitt barn með viðvarandi óþægindi og ný röntgenmynd sýndi nú skemmd í beini við liðinn eftir gamla sýkingu. SJÖ TILFELLI AF LEGIONELLOSIS STAÐFEST MEÐ RÆKTUNUM, ÞAR AF FIMM SPÍTALASÝKINGAR María Sigurjónsdóttir, Sigfús Karlsson, Sigurður B. Þorsteinsson, Steinn Jónsson, Ólafur Steingrímsson. Sýklarannsóknadeild Landspítalans, Lyflækningadeild Landspítalans, Gjörgæsludeild Landakotsspítala. Legionellosis er alvarlegur sjúkdómur með háa dánartíðni einkum hjá fólki með langvinna lungnasjúkdóma. Frá ársbyrjun 1985 til mars 1988 ræktaðist Legionella pneumophila, serotypa 1, frá sjö sjúklingum á Landspítala og Landakotsspítala, úr berkjuskoli, hrákasýni eða barkaástungusýni. Ræktun var gerð á BCYE-alfa agar. Gróður var síðan greindur með súrvatnskljúfsprófi, Grams-litun og ónæmisflúrljómun. Um var að ræða þrjár konur og fjóra karla á aldrinum 38 til 83 ára. Talið er að fimm þeirra hafi sýkst á sjúkrahúsum en tveir utan þeirra. Þeir fimm sjúklingar sem sýktust á sjúkrahúsinu höfðu allir langvinnan lungnasjúkdóm. Af þeim höfðu fjórir gengist undir aðgerð og legið á gjörgæsludeild á líklegum sýkingartíma. Einn kom frá Vífilsstaðaspítala og hafði lungnabólgu við innlögn á Landspítala. Fjórir þeirra sjúklinga sem sýktust á sjúkrahúsi dóu og var lungnabólgan talin meðverkandi orsök dauða í öllum tilvikunum. Ekki varð vart við undirliggjandi lungnasjúkdóma hjá öðrum þeirra sem veiktist utan sjúkrahússins en hinn hafði langvinnan lungnasjúkdóm og lést hann af völdum lungnabólgunnar. Hjá öllum þessum sjúklingum voru líka athuguð mótefni gegn Legionella í sermi. Ástæða er til að vera vakandi fyrir legionellosis, sérstaklega hjá fólki með langvinna lungnasjúkdóma ef það fær lungnabólgu eftir aðgerðir eða í kjölfar meðferðar með öndunarvélum og eftir öndunaraðstoð. Tíðni legionellosis á íslandi er í raun óþekkt. Ekki er ræktað fyrir Legionella í barkaástungusýnum, hrákasýnum og berkjuskolum á sýklarannsóknadeildum hér nema sérstaklega sé um það beðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.