Selfoss - 15.11.2012, Síða 12

Selfoss - 15.11.2012, Síða 12
15. nóvember 201212                                    Að hætti hússins KÚSKÚS Kristjana Sigmundsdóttirkristjanasig@simnet.is                            ­ Borgarholtsskóli við Mosaveg sími 5351700 www.bhs.is Upplýsingar um námið veitir Þórkatla Þórisdóttir í síma 8561718 Umsóknarfrestur er til 1. desember Félags- og tómstundanám Viðbótarnám félagsliða D R E I F N Á M Nám á netinuNám með starfi Kúskús (couscous) er í Mag-hreb-ríkjum Norður-Afríku, Marokkó, Túnis og Alsír jafn sjálfsagður hluti hins daglega matar- æðis og t.d. pasta á Ítalíu, hrísgrjón í Asíu og kartöflur á Íslandi. Sennilega má í öllum heimshlut- um finna merki þess að fólk hafi borið fram einhverskonar kolvetna- gjafa sem meðlæti eða til að drýgja máltíðina. Í Norður-Afríku er notast við kúskús sem á uppruna sinn að rekja til komu hveitis, nánar til- tekið Semolina, til svæðisins. Þetta kornmeti er venjulega borið fram í ríflegum skömmtum með þar til gerðum norður-afrískum mat og er í raun orðinn samnefnari yfir ýmis- konar rétti frá svæðinu. Þannig er oft talað um kúskús með kjúklingi, lambakjöti eða kúskús með grænmeti sem á þá við einhverskonar norður- afríska rétti sem bornir eru fram með kúskús. Ég á eftir að fjalla um kjötrétti frá Norður-Afríku en þeir eru afar bragðgóðir og oft litríkir. Mér fannst upplifun að borða í Marokkó þegar við heimsóttum það land fyrir nokkrum árum. En nú ætla ég að fjalla um kúskús sem léttan rétt í hádegi en ekki sem meðlæti. Að eiga pakka af kúskús í vinnunni gefur frábær tækifæri í gott, hollt og skemmtilegt salat í hádeginu. Að setja kúskús í skál, part af hænsnaten- ingi út í og sjóðandi vatni hellt yfir – látið standa í fimm mínútur (lesið á pakkanum um hlutföll). Einnig er gott að setja út í t.d. kanil, engifer, kardimommur, karrý eða hvað sem manni dettur í hug. Afgangar að heiman frá kvöldinu áður sem hægt er að hita í örbylgju eru góðir með. Líka er hægt að setja alls konar kál og grænmeti brytjað og blanda saman. Ef maður er með aðstöðu í vinnunni eða er bara heima í eldhúsi og langar í eitthvað gott í hádeginu. Þá er fínt að athuga hvað er í kæli- skápnum. Það má t.d. sneiða lauk, hvítlauk, eldpipar (chili), tómata, sveppi, paprika og brokkoli. Láta grænmetið linast í olíu á pönnu, salta og pipra eftir smekk og hella síðan yfir kúskúsið og hrært saman. Gott er að geta klippt yfir kórander eða basílíku. Síðan er nauðsynlegt að kreista sítrónu yfir. Svona salat má líka nota sem meðlæti bæði með kjöt- og fiskréttum. Verði ykkur að góðu. Suðurkjördæmi - stórt og víðfeðmt Suðurkjördæmi er stórt og víð-feðmt kjördæmi. Það teygir anga sína frá Garðskagavita í vestri að Hvalnesskriðum í austri. Mikilvægt er að framboðslistar stjórnmálaflokkanna endurspegli þessa miklu breidd og fjölbreytni. Svæðið austan Þjórsár er strjálbýlt og fámennt samanborið við önnur svæði innan kjördæmisins. Engu að síður – og jafnvel vegna þess – er gríðarlega mikilvægt að innan framboðanna eigi þetta svæði sér sterkan málsvara. Atvinnumálin mikilvæg Atvinnumál eru þessu svæði ákaf- lega mikilvæg. Mikil þörf er á því að renna fleiri stoðum undir at- vinnulífið á svæðinu til þess að efla búsetu til framtíðar. Vaxtarsprotarnir í atvinnulífinu liggja víða. Við höf- um öll fylgst með ævintýralegum uppgangi í ferðaþjónustunni og að þeim vaxtasprota á að hlúa. Að mínu viti þá mun Vatnajökulsþjóðgarður gegna lykilhlutverki í því að styðja við og efla ferðaþjónustu á svæðinu. Að þessu leyti mun náttúruvernd fara saman við nýtingu. Svæðisbundið samstarf og samgöngumál Ljóst er að leita verður allra leiða til þess að styðja við búsetu á svæð- inu því hún á mjög undir högg að sækja að ýmsu leyti. Hlúa verður að svæðisbundnu samstarfi til þess að gera svæðinu kleift að taka þátt í svæðisáætlunum 20/20 áætlunar ríkisstjórnarinnar af fullum krafti. Samgöngumál skipta líka miklu máli. Nauðsynlegt er að fækka einbreiðum brúm á leiðinni frá Selfossi að Hornafirði. Ekki skipt- ir síður máli að berjast fyrir því að allir eigi aðgang að háhraðaneti. Það er forsenda fyrir samkeppnishæfni svæðisins bæði hvað varðar nám og atvinnu. Þetta eru forgangsmál fyrir uppbygginguna á þessum svæðum. Hver er ég? Ég er 36 ára gamall kennari og bæjarfulltrúi fyrir Samfylkinguna á Hornafirði og hef verið í bæjarstjórn Hornafjarðar frá árinu 2006. Ég tel mikilvægt að þessi austasti hluti kjördæmisins og sá strjálbýlasti eigi sinn fulltrúa á lista Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi. Þetta er ein af meginástæðunum fyrir því að ég býð mig fram í flokksvali Samfylk- ingarinnar í Suðurkjördæmi og óska eftir stuðningi í 2. – 4. sæti. Árni Rúnar Þorvaldsson, bæjarfulltrúi á Hornafirði. Býð mig fram í 2. – 4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

x

Selfoss

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.