Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Page 9
DV Fréttir mánudagur 25. júní 2007 9
Það er ekki bara á Íslandi þar
sem pólskir verkamenn eru áber-
andi. Fjöldi laghentra Pólverja
hafa síðustu ár leitað út fyrir land-
steinana í von um að fá betur borg-
að fyrir vinnu sína þar en í heima-
landinu. Þessari þróun hefur fylgt
mikill skortur á byggingaverka-
mönnum í Póllandi og það hefur
komið niður á undirbúningi fyr-
ir Evrópukeppnina í knattspyrnu
sem fer þar fram árið 2012.
Af þessum sökum eru uppi hug-
myndir um að nýta þá tuttugu þús-
und fanga sem fylla fangageymsl-
ur landsins til að ganga í þau störf
þar sem skorturinn er hvað mest-
ur. Kostnaðurinn sem þessu fylgdi
yrði hugsanlega niðurgreiddur af
sérstöku átaki Evrópusambands-
ins í endurhæfingu fanga.
Samkvæmt fréttavef BBC kom
ákvörðun Evrópska knattspyrnu-
sambandsins um að fela Úkraínu
og Póllandi það verkefni að hýsa
mótið eftir fimm ár á óvart. Hvor-
ug þjóðin hefur yfir að ráða mörg-
um leikvöngum sem uppfylla skil-
yrði sambandsins og eins vantar
hótel til að hýsa keppendur og
áhorfendur. Það eru því miklar
framkvæmdir framundan og þess
vegna vilja pólskir ráðamenn að
fangarnir leggji sitt af mörkum.
Síðustu ár hafa kraftar þeirra ver-
ið nýttir við alls kyns smávægileg-
ar framkvæmdir en þetta yrði þó
þeirra langstærsta verkefni. Vopn-
aðir verðir munu fylgja föngun-
um til vinnu á hverjum degi gangi
þessar áætlanir eftir.
Skortur á verkamönnum kemur niður á íþróttaleikvöngum:
Það er útlit fyrir að hinn sextíu og
fjögurra ára gamli Fred Thompson
tilkynni fljótlega um þátttöku sína í
forvali Repúblikanaflokksins fyrir for-
setakosningarnar í Bandaríkjunum.
Thompson er fyrrum öldungadeilda-
þingmaður og sjónvarpsstjarna og
samkvæmt frétt breska blaðsins The
Times í gær þarf hann ekki að óttast
að gamlar kærustur reyni að koma
fram hefndum í kosningabaráttunni.
Í grein blaðsins er rætt við nokkrar
af þeim konum sem Thompson var
í tygjum við eftir að hann skildi við
fyrri eiginkonu sína um miðjan síð-
asta áratug. Þær bera honum allar vel
söguna og efast ekki um að hann yrði
góður forseti. Ein segir hann annál-
aðan herramann sem kunni að koma
fram við dömur og önnur segir móður
sína og börn hafa kolfallið fyrir hon-
um enda sé hann draumaeiginmað-
urinn og eigi létt með að umgang-
ast fólk af öllum gerðum. Það fylgir
einnig sögunni að samband Thomp-
son við konuna sem hann var giftur í
næstum þrjá áratugi sé stórfínt.
Thompson sjálfur gerir ekki lít-
ið úr hæfileikum sínum til að heilla
konur upp úr skónum. Hann segist
hafa verið á eftir mörgum konum
þau ár sem hann var einhleypur og
bætir því við að þær konur sem voru
á eftir honum hafi flestar náð sínu
fram á endanum.
Núverandi eiginkona Thompson
er tuttugu og fjórum árum yngri en
hann sjálfur en þau hafa verið gift í
fimm ár. Hún þykir hafa útlitið með
sér og er talið að hún styðji vel við
bakið á manni sínum í kosningabar-
áttunni þó hún haldi sig til baka.
Mjólk í pokum
Breska verslunarkeðjan Waitrose
ætlar að koma til móts við kröfur
umhverfissamtaka og hætta að
selja mólk í plastbrúsum. Þess í
stað verður mjólkin seld í pokum
og geta viðskiptavinir keypt sérstök
ílát fyrir pokana.
Samkvæmt frétt The Observer er
talið að tveir af hverjum þrem-
ur mjólkurlítrum sem seldir eru
í Bretlandi séu í plastflöskum og
aðeins fjórðungur þeirra rati í end-
urvinnsluna. Vonast er til að þetta
framtak Waitrose verði til þess að
fleiri verslanir hætti að selja mjólk
í brúsum.
Mafíustríð í uppsiglingu
Lögreglan á Sikiley óttast að í
vændum séu átök milli mafíu-
flokka um völdin yfir glæpastarfs-
semi á þessari ítölsku eyju.
Í gærmorgun handtók lögreglan
níu mafíuforingja sem grunað-
ir voru um að leggja á ráðin um
morð á nokkrum smáþjófum sem
létu greipar sópa í verslunum sem
njóta verndar Cosa Nostra maf-
íunnar. Á síðasta ári var fyrrum
yfirmaður mafíunnar dæmdur í
lífstíðarfangelsi og er talið að hörð
valdabarátta eigi sér stað innan
mafíunnar núna og það kunni að
valda ófriði.
Táningur gerði skurðaðgerð
Foreldrar fimmtán ára unglings
létu son sinn gera keisaraskurð á
tvítugri konu á læknastofu sinni í
Indlandi nýverið. Tóku þau aðgerð-
ina upp á myndband til að koma
syni sínum að í heimsmetabók
Guinness sem yngsti skurðlæknir
sögunnar.
Þetta framtak foreldranna, sem
bæði eru skurðlæknar þykir skjóta
skökku við og hafa samtök lækna
í Indlandi farið fram á rannsókn
á málinu. Drengurinn hefur sam-
kvæmt fréttum hlotið þriggja ára
þjálfun hjá foreldrum sínum en
þau aðstoðuðu hann í aðgerðinni.
ÁTök harðna og engin lausn í
nýjan leik. Flestir þeir sem þekkja
til gangs mála eru sammála um
að þess verði langt að bíða. Til að
mynda var einskonar friðarfund-
arhöldum sem vera áttu í höfuð-
borginni fyrr í þessum mánuði
frestað vegna ótrausts ástands.
Engin aðstoð
Stjórnvöld í Kenía lokuðu
landamærum sínum að Sómal-
íu í janúar til að komast hjá mikl-
um straumi flóttamanna. Hjálp-
arstarfsmenn gátu samt framan
af farið með hjálpargögn þaðan
til bágstaddra í Sómalíu. Síðastu
fjórar vikur hefur bílalest Samein-
uðu þjóðanna sem hlaðin er mat-
vælum fyrir um hundrað þúsund
manns ekki fengið leyfi til að fara
yfir. Fyrir helgi biðluðu yfirmenn
Sameinuðu þjóðanna til ráða-
manna í Kenía í von um að mega
hefja flutning á neyðagögnunum
en samkvæmt fréttavef BBC er um
milljón manns talin þjást af hungri
í Sómalíu í dag.
Vopnahlé gengur í gildi á föstu-
daginn en vonir til að það haldist
lengi eru ekki miklar. Samkvæmt
frétt BBC verður reynt að fá deilu-
aðila til að setjast að samninga-
borði í næsta mánuði en talsmenn
harðlínumanna og fjölda annarra
sómalskra fylkinga segjast ekki
taka þátt í þannig viðræðum fyrr
en eþíópíski herinn hverfi úr landi.
Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna í
Sómalíu sagði nýverið að ástandið
í höfuðborginni gæfi ekki tilefni til
bjartsýni en útliti borgarinnar hef-
ur verið líkt við borgir Þýskalands
undir lok seinni heimstyrjaldar-
innar.
Fangar byggja fótboltavelli
Styttist í að repúblikaninn
Fred Thompson tilkynni
opinberlega um framboð:
gamlar
kærustur
munu
kjósa
hann Fred Thompson, verðandi forsetaframbjóðandiFyrrverandi kærustur dásama hann og segja hann verða góðan forseta.
Börn í flóttamannabúðum
Sómölskum börnum gefið að borða í
flóttamannabúðum. Starfsmönnum
Sameinuðu þjóðanna gengur illa að
koma matvælum til flóttamanna í
Sómalíu.
Friðargæsla Afríkusambandsins um fimmtán
hundruð hermenn frá úganda gegna friðargæslu í
Sómalíu. Þeim verður hins vegar lítið ágengt en standa
vörð meðal annars um flugvöll höfuðborgarinnar.
Pólskir fótboltaáhugamenn Fangar
verða fengnir til að byggja upp
fótboltaleikvanga í Póllandi vegna
skorts á iðnaðarmönnum.