Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Page 11
DV Sport MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 11
Sport
Mánudagur 25. júní 2007
sport@dv.is
alþjóðaleikum ungmenna lauk með mikilli viðhöfn í gær í laugardalshöll.
þátttakendur voru á einu máli að vel hafi til tekist. bls 12-13
900 krakkar spiluðu fótbolta á Akranesi Henry farinn til Barcelona
VEL HEPPNAÐIR LEIKAR
Heil umferð fer fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld:
Stórleikur á kópavogSvelli
Í kvöld hefst Landsbankadeild
kvenna í knattspyrnu að nýju eftir
landsleikjahlé sem verið hefur síð-
an 8. júní. Deildin hefur farið vel af
stað og virðist keppnin ætla að verða
jafnari en oft áður.
Í kvöld mætir Fjölnir liði ÍR á
Fjölnisvelli, Fylkir og Stjarnan eig-
ast við á Fylkisvelli, KR tekur á
móti norðanstúlkum í Þór/KA og
á Kópavogsvelli fer fram stórleik-
ur umferðarinnar þegar Breiða-
blik mætir Valsstúlkum. Valur er á
toppi deildarinnar taplausar eftir
þrjá leiki en Breiðablik er í þriðja
sæti með sjö stig. Valsstúlkur hafa
sigrað ÍR, Stjörnuna og Keflavík
nokkuð örugglega í fyrstu leikjum
sínum. En Blikastúlkur hafa unn-
ið ÍR og Þór/KA, gert jafntefli við
Stjörnuna og tapað gegn KR. Með
sigri í kvöld geta Blikastúlkur kom-
ist upp fyrir Val og hleypt enn meiri
spennu í deildina. Allir leikir um-
ferðarinnar hefjast klukkan 19:15 í
kvöld.
Staðan í deildinni:
Lið L S J T M Stig
Valur 3 3 0 0 15:2 9
KR 3 3 0 0 9:3 9
Breiðablik 4 2 1 1 8:9 7
Keflavík 4 2 0 2 16:7 6
Fjölnir 4 1 2 1 4:3 5
Stjarnan 4 1 2 1 7:9 5
Þór/KA 4 1 0 3 5 :14 3
Fylkir 3 0 1 2 4:7 1
ÍR 3 0 0 3 2:16 0
Tækling Það verður hart
barist í Landsbankadeild
kvenna í kvöld.