Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Side 12
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 200712 Sport DV Leikarnir heppnuðust veL Alþjóðaleikar ungmenna fóru fram um helgina. Allt gekk vonum framar og 1200 gestir undu sér vel í blíðskap- arveðri i Laugardal. a lþjóðaleikar ungmenna fóru fram um helg- ina. 1200 gestir komu hingað til lands frá fjórum heimsálfum til þess að keppa í fjölda íþrótta- greinum. Mikillar skipulagnin- ar var þörf á leikunum en allt heppnaðist vel og gestir voru mjög ánægðir með aðstæður hér á landi. „Við erum mjög ánægð, allt gekk upp og meira segja veðr- ið var með okkur. Við erum búin að vera skipuleggja þetta í tvö ár og um helgina hafa ver- ið 400 manns í vinnu við að koma þessu upp. Þetta fólk hef- ur aldrei komið saman áður og það er hálf ótrúlegt hversu vel þetta hefur gengið upp. Álag- ið var sérstaklega mikið þegar fólkið var að koma og við þurft- um að koma því fyrir í skólum í kringum Laugardalinn. Fólkið var að koma á öllum tímum sól- arhringsins og mikið álag,“ segir Anna Margrét Marínósdóttir. Leikarnir tóku fjóra daga, frá fimmtudegi til sunnudags og alla dagana var eitthvað um að vera fyrir keppendur. Boðið var upp á setningarathöfn, lokahóf þar sem Páll Óskar spilaði und- ir og sundlaugarpartí þar sem krakkarnir gátu hlustað á tónlist í vatninu svo eitthvað sé nefnt. Eins sýndu krakkarnir atriði frá sínum heimaslóðum og var það liður í að sameina krakkana. Hugsjón Leikarnir fóru fram í Bang- kok á síðasta ári og verða í San Francisco á næsta ári og er mik- il ásókn í að halda þá. Nú þegar er búið að ákveða staðsetningar á þeim til 2011 og er hörð bar- átta um hver á að halda þá árið 2012. „Við sóttum um að halda leikana hjá Alþjóðanefndinni og það ferli tók eitt ár. Þessir leikar eru haldnir árlega og eru kepp- endur á aldrinum 12-15 ára. Þeir fóru fyrst fram árið 1968 og eru hugsjón Slóvenans Metod Klemenz en hann var á leikun- um í Reykjavík og er nú kominn á níræðisaldur. Fyrstu leikarnir voru haldnir á milli sex borga í A-Evrópu en ná nú til fjögurra heimsálfa, Evr- ópu, Afríku, Asíu og Ameríku. Á leikunum var mikið af góðu íþróttafólki og það má alveg gera ráð fyrir því að sumir af þessum krökkum muni gera það gott í framtíðinni og jafnvel taka þátt í Olympíuleikum ef þau halda áfram á sömu braut,“ segir Anna Margrét Mikil ásókn Margir vildu komast að en ekki var pláss fyrir fleiri. Við erum með frábæra aðstöðu hér í Laugardal og við vorum helst með áhyggjur af því að hér yrði of kalt, sérstaklega fyrir frjálsí- þróttafólkið Þó að þetta hafi ver- ið 1200 manns vildu fleiri koma og á næsta ári stefna skipuleggj- endur San Francisco leikana að því að bæta við sig fimmtu álf- unni og ná Ástralíu,“ segir Anna Margrét. Eiður Smári verndari leikanna Á lokahófinu kom Eiður Smári Guðjohnsen leikmað- ur Barcelona fram og hélt tölu, en hann var verndari leikanna. Þar talaði hann meðal annars um það hve íþróttir skipti miklu máli fyrir fólk og á þeim væru margar hliðar. Meðal annars benti hann á það að hann hefði kynnst sínum bestu vinum í gegnum íþróttir. Einnig afhenti hann öllum borgunum sem mættu á svæðið sérstaklega hannaðan víkinga- skjöld sem á var rúnaletur með nafni borganna. Verndari leikanna Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, var verndari leikanna og hélt stutta tölu. Stemming í Laugardalslaug Það var rífandi stemming í nýrri og frábærri aðstöðu í Laugar- dalslauginni. „Við erum mjög ánægð, allt gekk upp og meira segja veðrið var með okkur. Við erum búin að vera skipu- leggja þetta í tvö ár og um helgina hafa verið 400 manns í vinnu við að koma þessu upp. dV Myndir karL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.