Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Síða 14
Á laugardagskvöld mætti Val-
ur írska liðinu Cork City í fyrri leik
liðanna í Intertoto-keppninni. Leik-
urinn fór fram í blíðskaparveðri á
Laugardalsvelli fyrir framan tæp-
lega eitt þúsund áhorfendur, þar af
stóran hóp írskra stuðningsmanna.
Leikurinn var í meira lagi bragð-
daufur og í raun frekar leiðinlegur
á að horfa. Valsmenn voru að leika
afar illa og Kjartan Sturluson gerði
tvö skelfileg mistök sem settu leik-
menn Cork City í góða stöðu fyr-
ir seinni leikinn sem fram fer um
næstu helgi.
Strax á fimmtu mínútu kom fyrra
mark Íranna. Markið kom eftir horn-
spyrnu en Kjartan Sturluson hætti
sér alltof langt út í boltann og kýldi
hann út fyrir vítateig. Þar tók Colin
O´Brien viðstöðulaust við boltan-
um og skaut að markinu. Boltinn
hefur viðkomu í varnarmanni Vals
og endar í markinu en Kjartan var
ekki kominn í stöðu í rammanum. Á
33. mínútu gerðist óvenjulegt atvik
en það gerðist í fyrstu alvöru sókn
Valsmanna í leiknum. Baldur Að-
alsteinsson tók góða hornspyrnu á
Dennis Mortensen sem skallaði að
marki. Boltinn virtist stefna í netið
þegar Helgi Sigurðsson tók við hon-
um og sparkaði boltanum hátt yfir
markið af stuttu færi. Ef Helgi hefði
ekki sparkað boltanum hefði skalli
Dennis líklegast endað í markinu.
Þetta atvik var kannski lýsandi fyrir
lánleysi Valsmanna í leiknum.
Klaufamark hjá Kjartani
Írska liðið komst í 2-0 á 65. mín-
útu en þá fengu þeir aukaspyrnu
rétt fyrir utan vítateig Valsmanna
þegar Barry Smith braut á sóknar-
manni Cork City. Liam Kearney tók
frekar lausa spyrnu að markinu sem
ekki leit út fyrir að vera mikil hætta
af. Kjartan Sturluson, markvörður
Valsmanna, virtist vera vel staðsett-
ur en það ótrúlega gerðist að Kjartan
missti boltann inn í markið. Sjaldséð
mistök hjá Kjartani sem gætu orð-
ið Valsmönnum dýrkeypt í Evrópu-
keppninni.
Leikurinn var eins og áður sagði
ekki mikið fyrir augað. Írska liðið
barðist þó vel og varnarleikur þeirra
var góður en að sama skapi náðu
allflestir leikmenn Vals sér engan
veginn á strik í leiknum. Á löng-
um köflum var söngur írsku stuðn-
ingsmannanna það eina sem gladdi
eyru og augu á meðan á leiknum
stóð. Þeir létu vel í sér heyra og
sungu lög eftir ekki ómerkari tón-
listarmenn en Björk og Bítlana.
Róðurinn verður þungur hjá Völs-
urum í seinni leiknum en írska lið-
ið er ekki það gott að Valsmenn geti
ekki unnið það.
Þurfum að ná upp sjálfstraust-
inu
Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals-
manna, var ekki ánægður með leik
sinna manna á laugardag. Hann
sagði þó að trúin yrði að vera áfram
til staðar hjá leikmönnum liðsins.
„Þetta gekk ekki vel og úrslitin voru
okkur sár vonbrigði. Við bjugg-
um okkur undir það að þeir myndu
liggja tilbaka og það yrði ekki auðvelt
að skora hjá þeim. Markið sem við
fengum á okkur í upphafi setti okk-
ur úr jafnvægi. Við náðum aldrei að
jafna okkur almennilega á því í hálf-
leiknum. Það hefði verið gott að ná
að jafna þegar Dennis á skallann að
marki en Helgi rekur tána í boltann
og hann fer yfir. Seinni hálfleikurinn
var skárri hjá okkur og við náum að
halda boltanum betur innan liðsins
og byggja uipp sóknirnar betur. Við í
raun gáfum þeim þessi tvö mörk og
það er bara of dýrt í svona viðureign.
Írska liðið er ágætt, þeir eru ekkert
betri og ekkert verri en úrvalsdeild-
arlið hér heima. Við eigum á eðlileg-
um degi að vinna þá hér heima. Þeir
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 200714 Sport DV
Leiðindi í LaugardaLnum
Valsmenn tóku á móti írska liðinu Cork City á
laugardagskvöld. Tvö mistök Kjartans Sturluson-
ar markvarðar leiddu til þess að Valsmenn eiga
litla möguleika að komast áfram í næstu umferð.
Á fullum hraða
Dennis Mortensen,
leikmaður Vals, reynir hér
að komast í marktækifæri.
Snilldarbragð Hér klifrar Roy
O´Donovan, leikmaður Cork city, uppá
Rene Carlsen til að ná til boltans
Áfram Cork city
Áhangendur írska liðsins
hvöttu sýna menn til dáða