Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 15
DV Sport MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 15 eiga sterkan heimavöll þar sem þeir hafa verið taplausir í rúmt ár. En við þurfum að hafa trú á verkefninu. Við þurfum að breyta okkar plönum eftir þessi úrslit og sækjum á þá í seinni leiknum,“ sagði Willum en hann var að vinna í garðinum þegar blaða- maður DV ræddi við hann í gær. Valur á leik gegn FH á miðviku- dag og segist Willum hlakka mik- ið til þess verkefnis og segir að FH sé komið langleiðina með Íslands- meistaratitilinn, vinni þeir leikinn. „Við erum í þessu fyrir þessa stóru leiki og því meira sem er spilað því skemmtilegra er það. Það er klárt mál að það er verðugt verkefni fyrir okkur að ná okkur á strik eftir þenn- an leik gegn Írunum en FH leikur- inn verður ábyggilega skemmtilegur. Þeir eru komnir langt með að klára mótið ef þeir vinna okkur, það fer að styttast í hinn endann á þessu móti. En FH liðið eru búnir að standa sig alveg frábærlega og þetta er að virka hjá þeim og ef að hin liðin ná ekki að skáka þeim þá er þetta bara flott hjá þeim. Við lögðum þá nú í Krikanum í fyrra og þetta hafa verið hörku leikir á milli þessara liða fram að þessu. Ég leyfi mér því að vera bjartsýnn fyrir leikinn á miðvikudag,“ sagði Willum að lokum. kari@dv.is Leiðindi í LaugardaLnum Írskir stuðningsmenn Írarnir sungu lög eftir Björk og Bítlana á meðan á leik stóð. Kjartan niðurlútur Markvörðurinn snjalli, Kjartan Sturluson, átti ekki góðan dag. dv myndir ásgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.