Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 19
DV Sport MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 19 ÍÞRÓTTAMOLAR Hatton vann Englendingurinn Ricky Hatton olli 10,000 stuðningsmönnum sínum ekki vonbrigðum þegar hann sigraði Jose Luis Castillo með yfirburðum í Las Vegas. Búist var við jöfnum bardaga en hann var eign Hatton frá upphafi til enda. Honum var ákaft fagnað af fjölda Englendinga sem fylgdu honum yfir hafið og þar á meðal voru kappar eins og Wayne Rooney, Robbie Williams og Vinnie Jones. Yfirburðir Hatton í bardaganum hafa strax orðið til þess að nú kalla menn á að hann mæti Floyd Mayweath- er, sem reyndar lofaði að hann væri hættur eftir að hann lagði Oscar de la Hoya á dögunum. „Ég gerði mig kláran í 12 lotna eldraun og ég held að það hafi komið fljótlega í ljós hvað ég undirbjó mig vel. Ég einbeitti mér að því að fara í skrokkinn á honum og ég landaði einhverjum bestu höggum sem ég hef hitt á ferlinum,“ sagði Hatton nei takk Kevin Garnet leikmaður Minnesota Timberwolves á að hafa sagt nei takk við Boston Celtic eftir að liðin komust að samkomulagi um félagaskiptin. Minnesota reynir nú eftir fremsta megni að losa sig við kappan en samningur hans rennur út eftir næstu leiktíð. Liðið er nú sagt í viðræðum við Phoenix um að taka við kappanum en þangað er hann sagður vilja fara. Mikil spenna verður í loftinu á leikmannamarkaðnum í NBA næstu daga og mest hefur þar verið rætt um menn eins og Garnett og Kobe Bryant hjá LA Lakers sem hefur látið það í ljós að hann vilji fara frá Lakers. kaka og Real sagan HelduR áfRam. Sagt er að Real Madrid ætli að bjóða Kaka samning sem hann getur ekki hafnað. Þetta segir talsmaður kappans en bætir við að Kaka sé ánægður í búningi AC Milan. „Kaka útilokar ekki að fara til Real Madrid og ég vil heldur ekki útiloka að hann fari þangað í sumar. Hann verður mjög ánægður hvort sem hann spilar með Milan eða Real Madrid,“ sagði þessi eiturhressi talsmaður sem ekki er nafngreindur. Talið er að Real þurfi að borga 75 milljónir evra fyrir kappann eða um 6,5 milljarða króna. Forseti Real, Ramon Calderon, hefur verið mikill aðdáandi Kaka allar götur síðan hann settist á forsetastólinn og eitt kosningaloforðið var að kaupa Kaka. Tólf mánuðum eftir að Hol- lendingar unnu sigur á Evrópu- móti landsliða skipað leikmönnum yngri en 21. árs í fyrsta sinn endur- tóku þeir leikinn. Nú á heimavelli með því að leggja Serbíu 4-1 í úr- slitaleik. Mörk frá Otman Bakkal, Ryan Babel, Maceo Rigters og Luigi Bruins tryggðu sigurinn sem var ekki jafn öruggur og tölur gefa til kynna því Serbía varðist vel og var vel inni í leiknum fyrsta klukkutím- ann. Aleksandar Kolarov leikmaður Serbíu fékk sitt annað gula spjald þegar um klukkutími var liðinn og staðan 2-0. Eftir það var hins vegar aldrei spurning hvoru megin sig- urinn lenti. Ryan Babel leikmaður Ajax og Hollands lofaði samherja sína í hástert eftir sigur liðsins en hann var valinn maður leiksins og sagði tilfinninguna vera góða. „Það er alltaf gott að fá viður- kenningu en ég á hana ekki einn. Allt liðið á hana skilda og ég er rosalega stoltur af liðinu. Þetta var ekki auðveldur sigur, sérstaklega í fyrri hálfleik en ég held að við séum verðugir meistarar.“ Babel skoraði eitt og lagði upp annað. „Ég held að það hafi orðið kaflaskil í leiknum með markinu mínu. Serbía gaf okkur lítinn tíma og eru líkamlega sterkir. Sem bet- ur fer tókst okkur að skora snemma og eftir að ég skoraði þá fannst mér eins og við gætum ekki tapað þessu. Eftir það var auðveldara að spila leikinn og við spiluðum okk- ar bolta.“ Hollendingar urðu einnig Evr- ópumeistarar í fyrra og sagði Babel að þetta lið væri jafnvel betra en í fyrra. „Það var sagt að þetta lið hefði ekki það sem til þurfti til að hampa titlinum en úrslitin segja annað. Ég held meira segja við séum betri en liðið í fyrra því þeir töpuðu einum leik en við ekki neinum. Að spila á heimavelli var mikill plús og hafa áhorfendur á bak við sig allt mót- ið var virkilega notaleg tilfinning. Núna ætlum við að fagna.“ Hollendingra og Serbar tryggðu sér sæti á Ólympíuleikunum í Pek- ing á næsta ári ásamt Englending- um, Belgum, sem komust í und- anúrslit, og Ítölum, sem urðu í 5. sæti. benni@dv.is Sevilla tryggði sér sigur í Kon- ungsbikarnum á Spáni með 1-0 sigri á Madridarliðinu Getafe. Sig- urinn innsiglaði frábært tímabil fyr- ir Sevilla liðið sem endaði í þriðja sæti í spænsku deildinni og átti lið- ið möguleika á sigri í allt fram í loka- umferðina. Leikurinn, sem leikinn var á Bernabeu leikvanginum í Madrid, byrjaði með miklum látum og voru áhorfendur beggja liða vel með á nótunum enda í skýjunum með ár- angur sinna manna á tímabilinu. Getafe náði í Evrópukeppni félags- liða en Sevilla lenti í þriðja sæti í deildinni auk þess að vinna UEFA keppnina, en fáir spáðu þessum lið- um góðu gengi fyrir tímabilið. Strax á elleftu mínútu skoraði Freddie Kanoute, fyrrverandi leik- maður Tottenham og West Ham, sig- urmarkið eftir að hafa komist einn á móti markverði eftir mistök í vörn- inni og klárað færið með fínu skoti framhjá Luis Garcia markverði Geta- fe. Eftir þetta sótti Getafe liðið nokkr- um sinnum hart að marki Sevilla án þess að hafa erindi sem erfiði. Eftir nokkrar efnilegar sóknir fjaraði und- an sóknum Getafe sem náði ekki að ógna markinu þegar á leið. Raunar var Sevilla liðið nær því að bæta við mörkum í síðari hálfleik en Getafe að jafna. Undir lok leiksins lá við að upp úr syði því leikurinn var harður og tæk- lingarnar flugu út um allan völl. Leik- menn Sevilla enduðu leikinn einum færri því markaskorarinn Freddie Kanoute var rekinn af leikvelli fyrir að sparka í Francisco Casquero varn- armann Getafe eftir að sá síðarnefndi hafði brotið illa á Kanoute. Það skipti þó engu máli og urðu lokatölur 1-0 fyrir Sevilla og fögnuður rúmlega 50 þúsund stuðningsmanna liðsins var innilegur, en liðið vann sinn fyrsta Konungsmeistaratitli síðan árið 1948 á laugardag. Ótrúlegt tímabil hjá sevilla Tímabil Sevilla hefur verið frá- bært, tveir meistaratitlar og sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tíma- bili. „Ég á ekki til orð til þess að lýsa slíku tímabili. Það mun taka svolít- inn tíma að átta sig á þessu afreki okkar. Við lögðum mjög mikið á okk- ur og þessi árangur er afleiðing þess,“ sagði Javi Navarro fyrirliði Sevilla liðsins eftir leikinn. Freddie Kanoute var maðurinn á bakvið velgengni bikarmeistaranna á tímabilinu. Hann skoraði 21 mark í deildinni auk þess að vera sífelld ógn við vörn andstæðinganna. Port- smouth, Newcastle og Bolton hafa öll lýst áhuga á sóknarmanninum, en hann vill ekki heyra minnst á það að hann sé á leið frá félaginu. „Ég á tvö ár eftir af samningi mínum og ég er ekki að fara neitt,“ sagði Kan- oute. Fjölmiðlar hafa verið uppfull- ir af sögum um að hann vilji fara en Kanoute svarar því til að slíkar sögu- sagnir séu ekki sannar. „Ég hef átt tvö frábær tímabil með Sevilla og nú bættum við titli í sarpinn. Ég stefni að því að berjast áfram með Sevilla,“ sagði Kanoute eða Knútur um málið. vidar@dv.is Hollendingar urðu um helgina Evrópumeistarar í knattspyrnu undir 21. árs: Holland vann aftur KAnOuTe TRyggði SeviLLA SiguR Sevilla kórónaði frábært tímabil með sigri í Konungsbikarnum. freddie kanoute sókn- armaður Sevilla skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik. frbært tímabil Freddie Kanoute kórónaði gott tímabil með sigurmarki í úrslitaleik Konungsbikarsins. meistaratitli fagnað Sevilla menn voru sáttir í leikslok Ótrúlegur árangur Holland hafði aldrei orðið meistari í þessum aldurs- flokki en undir stjórn Foppe De Haan hefur það orðið meistari tvö ár í röð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.