Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 21
Kaupþingsmót 7. flokks drengja fór fram á Akranesi um helgina. Þar komu saman á níunda hundrað drengja og öttu kappi í fótbolta. Margir framtíðarlands- liðsmenn sáust á knattspyrnuvellinum á mótinu. DV Sport MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 21 SVEIFLUR Í GOLFINU Um helgina fór fram stórt knattspyrnumót á Akranesi fyrir unga drengi í 7. flokki. En það eru strákar sem eru sjö og átta ára gamlir. Mótið er mjög stórt og umfangsmikið en til dæmis um það má nefna að leiknir eru yfir 350 leikir frá föstudegi til sunnudags á tólf knattspyrnuvöllum. Brandur Sigurjónsson, formaður ungl- ingaráðs ÍA, var ánægður með mótið og sagði að það hafi gengið vel fyrir sig. „Það má alveg reikna með að um þrjú þúsund manns hafi komið í bæinn vegna mótsins. Við vorum með 92 lið sem tóku þátt á þessu móti og föstudagurinn var notaður til að raða liðunum í riðla eftir getu. Þannig drógum við úr keppnishörkunni sem er ekki æskileg á mótum hjá svona ungum krökk- um,“ sagði Brandur. Ægir frá Þorlákshöfn var valið prúðasta liðið og Selfyss- ingar fengu háttvísiverð- laun KSÍ. Þreyttur Þessi strákur var alveg búinn á því. Á undan í boltann Ungir og upprennandi Fylkisstrákar leika hér gegn ÍR. Einbeittir Ætli þetta sé næsti Eiður Smári? Allir vinir Hér ræða strákarnir saman áður en flautað er til leiks. Tilþrif í lagi Hver veit nema það leynist næsti landsliðsfyrirliði þarna. Hef´ann Hér sjást ungir og efnilegir strákar berjast um boltann. Barátta Það var hart barist í leikjunum. Tækling Þessi tækling minnir á Brynjar Björn Gunnarsson landsliðsmann. LÍF OG FJÖR Á AKRANESI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.