Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Síða 22
Fáir ef nokkrir hafa meiri reynslu af íslenskri knattspyrnu en Ásgeir Elíasson núverandi þjálfari ÍR og fyrrverandi þjálfari landsliðsins, Fram, Þróttar og Víkings Ólafsvík- ur. DV fékk álit hjá Ásgeiri á stöðu íslensku knattspyrnunnar og ekki stóð á svörum hjá þessum geðþekka og knattspyrnufróða manni. Hæðir og lægðir í þessu „Ég tel að okkur sé alltaf að fara eitthvað fram, en það verða alltaf hæðir og lægðir í þessu og við verð- um að vera meðvituð um það. Einn- ig segi ég að það sé alltaf svolítið erf- itt að meta þetta á milli tímabila og ef við berum saman knattspyrnu nú og fyrir tíu árum þá held ég að þetta sé ósköp svipað. Ég tel í sjálfu sér að alltaf komi upp góðir leikmenn en það hefur kannski enginn stórsnillingur kom- ið fram í nokkurn tíma. Leikmenn eru duglegir „Íslenskir leikmenn eru duglegir strákar sem eru tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu og æfa mikið. Sér- staklega þegar horft er til þess að flestir vinna heilan vinnudag áður en þeir koma á æfingu. Því myndi ég segja að einkenni okkar leikmanna væri það að þeir eru duglegir en okkur skortir tækni ef miðað er við aðrar þjóðir. Tæknina getum við bætt og þurf- um að bæta. Ef við hefðum leik- menn með sama hugarfar og er nú, en með betri tækni, þá værum við með miklu betra landslið. Einnig er hugsun í fótbolta eitt- hvað sem við getum bætt. Við erum alls staðar að horfa upp á það að leikmenn eru að gera eitthvað sem þeir ráða ekki við. En með því að bæta okkur í skynsemi og fá leik- menn til þess að meta eigin getu betur, þá er heilmikið unnið. Ef þjálfari getur fengið leikmenn til þess að gera hluti sem þeir ráða við, einfalda hluti, þá mun lið þeirra spila betur. Maður skilur vel ef leikmenn vilja gera afgerandi hluti til þess að brjóta leikinn upp. En ef þeir skynja það ekki að í 19 skipti af hverjum 20 tekst ekki það sem þeir eru að reyna, þá eru þeir í slæmum mál- um. Ef leikmenn ná hins vegar að skynja aðstæður inni á fótbolta- velli þannig að þeim takist að fram- kvæma einfalda hluti sem meiri lík- ur eru á að þeim takist en mistakist þá er heilmikið verk unnið í íslensk- um fótbolta,“ segir Ásgeir. Hlutverkaskiptingu ábótavant „Eins er það svo að hlutverka- skipting skiptir miklu máli. Um leið og menn þekkja sitt hlutverk inni á velli geta þeir bætt sig í fótbolta. Stór hluti leikskilnings er að þekkja sitt hlutverk og þegar verka- skiptingin er skýr þá er hægt að byggja upp lið sem spilar vel saman. Þetta er eitthvað sem hefur vant- að. Knattspyrna er fyrst og fremst liðsleikur og ef menn skilja hvorn annan og skilja hvar á leikvellinum þeir gera mest gagn, þá er hægt að taka framfaraskref áfram í íslenskri knattspyrnu. Svíar spila til að mynda yfirleitt svipað kerfi og svipaðan fótbolta þar sem allir leikmenn þekkja sitt hlutverk vel og þeim gengur vel,“ segir Ásgeir. Sumir meistaraflokksmenn kunna ekki að sparka „Liðin mótast alltaf af þjálfaran- um og því sem hann vill gera. Mér finnst alltaf svolítið fyndið að sjá þeg- ar maður les blöðin að þar eru þjálf- arar að segja að þeirra lið hafi reynt að spila fótbolta. En fótbolta er hægt að spila á ótal vegu. Ég hef ákveðna skoðun á því hvernig á að spila fót- bolta en aðrir vilja spila annars kon- ar fótbolta, hvort tveggja er þó fót- bolti,“ segir Ásgeir glettinn. „Megin kjarni málsins er samt sá að til þess að bæta þá þætti leiksins sem flest- ir vilja horfa á, eins og tækni, verð- um við að byrja í yngri flokkunum. Ég held að það þurfi að leggja þar meiri áherslu á móttöku, sendingar og kannski hvernig á að hugsa í fót- boltaleik. Að sjálfsögðu æfast krakkar mik- ið á því að vera úti að leika sér. En á æfingum er hægt að leiðrétta menn og kenna mönnum að framkvæma hluti. Oft sé ég menn í meistaraflokki sem kunna ekki að sparka innanfót- ar og því tel ég brýnt að vinna betur í grasrótinni með ungviðið og kenna slíka hluti sem er einfalt að laga, en það þarf samt að æfa þá. Þetta er eitthvað sem er ábótavant í okkar þjálfun og maður spyr sig stundum hvort að þetta sé eitthvað sem vantar í þjálfaramenntun, að kenna mönnum að sparka. Spyrn- ur eru jú einn stærsti þáttur leiksins,“ segir Ásgeir og bætir við að ákveðin bylting hafi orðið á síðustu árum. Bylting í aðstöðu „Það er allt annað að vera þjálf- ari í dag en var hér áður. Sérstaklega finnst mér byltingin hafa orðið með öllum þessum gervigrasvöllum sem búið er að leggja. Húsin hafa svo sem ekki verið nein sérstök bylting fyrir æfingaað- stöðu því þjálfarar fá ekki mikinn tíma inni í þessum höllum vegna ásóknar í þær, sérstaklega hér á Reykjavíkursvæðinu,“ segir Ásgeir að lokum. MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 200722 Sport DV þarf að hugsa í knattspyrnu Ásgeir Elíasson hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að knattspyrnu á Íslandi. Hann segir tækni og leikskiln- ing vera það sem helst má bæta hjá íslenskum leik- mönnum. Viðar GuðjónSSon blaðamaður skrifar: vidar@dv.is alltaf með bolta í hönd Ásgeir er mikill hugsuður um fótbolta og veit hvað hann syngur. Þegar hann er ekki að hugsa um fótbolta á golfið hug hans allan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.