Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Qupperneq 27
Hópurinn Xavier og McDaníel sem skipaður er þeim Daníel Ólafssyni og Magnúsi Leifssyni kemur til með að skemmta gestum miðborgarinnar í sumar: Vinna með samspil vídeóverka og tónlistar Grafíski hönnuðurinn Magnús Leifsson og tónlistarmaðurinn Daníel Ólafsson bet- ur þekktur sem Danni Deluxxx, skipa hóp- inn Xavier og McDaniel sem kemur til með að starfa við skapandi sumarstörf á vegum Hins hússins í sumar. Þeir ætla að vinna með samspil tveggja miðla, tónlistar og víd- eólistar og reyna á samskipti þessa tveggja heima. Daníel sér um að spila tónlistina í takt við videóverk Magnúsar og má segja að um spuna sé að ræða hjá strákunum, þar sem þeir vinna verkið bara á staðnum. Tón- listin er flutt með notkun „samplera“, hljóm- borða, tölvu og plötuspilara. Myndböndin eru hins vegar spiluð með notkun tölvu og hljómborðs sem stjórnar myndbrotunum. Það má með sanni segja að verkið sé í senn tónlistar- og myndlistarverk þar sem hinn sjónræni hluti verður til útfrá tónlistinni og öfugt. Að sögn tvíeykisins koma þeir til með að sýna afrakstur sinn víðsvegar um mið- borgina í sumar, jafnt innandyra sem utan- dyra þar sem videóverkinu verður varpað með skjávarpa í takt við dúndrandi tóna Daníels. krista@dv.is „Þetta er algjör eðall. Að tussast bara á lappir rétt fyrir níu og rölta fram í eldhús á náttbuxunum. Í stað þess að vakna heima, klukkan 6.15 og gera sig kláran fyrir útsendingu,“ segir útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson, úr þættinum Capone á útvarspstöðinni Reykjavík FM 101,5. Eins og komið hefur fram víða þá lagði Andri landi undir fót í sum- ar, og fluttist til Kaupmannahafnar ásamt kærustunni sinni. Það hefur þó ekki stöðvað hann frá því að láta gamminn geisa í útvarpsþættinum Capone alla morgna, en nútíma- tæknin gerir Andra kleift að senda beint úr eldhúsinu hjá sér. Eldhús- ið hefur nú fengið nýtt nafn, Studio kongens og er íbúð Andra staðsett í Rantzausgade í Norðurbrú. Gengur ljómandi vel Búi Bendtsen, hinn helmingur út- varpsþáttarins segir það ganga vel að hafa Andra hinum megin við hafið. „Þetta gengur fram úr okkar helstu vonum og breytir líklega engu fyr- ir okkur. Dagskrárgerðin verður líka ögn skemmtilegri, þar sem Andri er duglegur að fá Íslendinga í Köben til að droppa við hjá sér,“ segir Búi. Þá mun Andri einnig fara á Hróars- kelduhátíðina og gera henni skil í þættinum. „Æðsta takmarkið er svo að hitta Friðrik Weisshappel þarna úti og fá hann í viðtal. Eftir það get- um við bara hætt með þáttinn, þá er allt komið. Ég meina við erum búnir að starfa í þrjú ár, útvarpsár. Það eru 68 ár í mannsárum.“ Reykjavík Fm eflist Miklar breytingar hafa átt sér stað á útvarpsstöðinni undanfarnar vikur. Nýr daglegur þáttur hefur hafið göngu sína en það er þátturinn Fótbolti.net. „Þetta er klukkutímaíþróttaþáttur, hörku hressi gæjar að tala um bolt- ann. Klikkar ekki,“ segir Búi. Þá hafa hinir ýmsu sérþættir hafið göngu sína á stöðinni og ber þar fyrst að nefna þáttinn Blandspólan sem er í höndum Birkis Fjalars Viðarsson- ar. Sá er söngvari hljómsveitarinnar I Adapt og bróðir Andra Freys. „Ég vil taka það fram að það var enginn klíkuskapur í þessari ráðningu. Þátt- urinn er tileinkaður mixteipum sem allir áttu í gamla daga og má segja að Birkir sé einungis að spila sínar kass- ettur.“ Á laugardaginn hóf svo göngu sína Morðingjaútvarpið. Segir Búi að forsvarsmenn stöðvarinnar séu allt- af tilbúnir að taka við ábendingum og umsóknum. „Það er alltaf hægt að finna tíma fyrir góða þætti. Nauð- synlegt að leyfa nýju fólki að spreyta sig og leita ekki alltaf í gömlu sleðana bara,“ segir Búi að lokum. dori@dv.is. Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson fluttist til Kaupmannahafnar yfir sumarið, en það hefur ekki aftrað honum frá því að senda út Capone-þáttinn. Andri er með stúd- íó í eldhúsinu sínu, í miðri Norðurbrú og lætur þar gamminn geisa á hverjum morgni. Þátturinn er á Reykjavík FM 101,5, en miklar breytingar hafa átt sér stað hjá stöðinni undanfarið. MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007DV Bíó 27 Gæti lent í veseni Angelina Jolie vonast til þess að nýjasta mynd hennar, A Mighty Heart, eigi ekki eftir að valda henni erfiðleikum með að komast inn í Pakistan í framtíðinni. Myndin fjallar um mannránið á ameríska gyðingn- um og blaðamanninum Daniel Pearl en myndinni er leikstýrt af Briton Michael Winterbottom og framleidd af eiginmanni Joliw, Brad Pitt. „Ég vonast til að Pakistanarnir verði ekki óhressir með myndina því ég virkilega hlakka til að fara aftur þangað og starfa fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Ég efast reyndar um að þeir eigi eftir að vera með einhver leiðindi varðandi vegabréfsáritunina mína því þetta er mjög vel gerð og sanngjörn mynd,“ er haft eftir viðtali við leikkonuna. Kúrekar og geimverur DreamWorks og Universal Pictures stefna á að framleiða kvikmynd, gerða eftir myndasögunni Cowboys & Aliens. Er það fagtímaritið Variety sem greinir frá þessu. Myndasagan gerist á 18. öld og fjallar um átök kúreka og indíána sem taka á sig nýja mynd, þegar geimskip lendir í miðri eyðimörkinni. Þurfa því kúrekarnir að taka saman höndum við indíanana til þess að kljást við ógurlegar geimver- ur. Handritið verður skrifað af Mark Fergus og Hawk Ostby. Jackson er Nick Fury Samuel L. Jackson mun fara með hlutverk Nick Fury í kvikmyndinni um ofurhetjuna Iron Man. Lengi var það Bruce Willis sem var orðaður við hlutverkið, en nú er ljóst að Jackson hefur hreppt hnossið. Nick Fury er mannleg ofurhetja, fyrrum hermaður sem oft hefur milligöngu í samskipt- um ríkisstjórna við ofurhetjur. Kvikmyndin um Iron Man er væntanleg árið 2008 og mun Nick Fury koma lítillega við sögu, en búist er við að gerð verði mynd um hann á næstu árum. Xavier og McDaniel blanda saman tónlist og videólist ÚTVARPSSTÚDÍÓ Í ELDHÚSINU HEIMA Búi Bendtsen Segir að Capone menn geti hætt með þáttinn eftir að þeir fá Friðrik Weizhappel í viðtal. Andri Freyr Viðarsson Á náttbuxun- um, í eldhúsinu, í beinni frá Norðurbrú. REM MæTTU á MEgAS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.