Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2007, Blaðsíða 32
mánudagur 25. júní 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910 Fréttaskot 5 1 2 7 0 7 0 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur. Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins. Matmenn þessir sjóarar... Komin af gjörgæslu Ungmennin þrjú, sem slösuðust í bílslysi á mótum Geirsgötu og Mýrargötu í Reykjavík aðfaranótt föstudags, eru komin af gjörgæsludeild Landspítalans. Ungmennin eru þó ekki útskrifuð af sjúkrahúsinu og njóta aðhlynningar á deildum Landsspítalans. Lögreglan segir að bílnum hafi verið ekið á miklum hraða í vesturátt og er málið í nánari rannsókn. Talið er að bílarnir hafi verið í kappakstri þegar slysið varð þegar bíllinn skall á veitingastaðnum Hamborgarabúllunni en öku- maðurinn hafði í aðdragand- anum misst stjórn á bílnum og rekist á kyrrstæðan bíl áður en hann skall á húsinu. Bjart yfir bifhjólafólki Veðrið lék við bifhjólafólkið sem kom á fákum sínum að Hótel Geysi síðdegis í gær. Már Sigurðsson, eig- andi Hótels Geysis hefur í mörg ár boðið bifhjólafólki til kaffisamsætis og gerði það enn einu sinni í gær. Það voru bifhjólasamtök Suður- lands, Postularnir, sem skipulögðu ferðina í gær. Um tvö hundruð manns komu til veislunnar og fólk gæddi sér á gómsætum tertum og öðru góð- gæti. Gljáfægð bifhjólin biðu eig- enda sinna fyrir utan hótelið og erlendir gestir sem áttu ekki orð yfir hlýindum og fegurð Geysissvæðis- ins sögðu þessa upplifun óvæntan yndisauka á ferðalaginu. Bifhjóla- fólkið sýndi öðrum ökumönnum tillitssemi og virðingu á ferð sinni að Hótel Geysi. Mynd Erla Margrét Ottósdóttir Mikið um ölvun og óspektir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af fjórum líkams- árásum og fleiri minniháttar slags- málum í miðbænum um helgina. Þó urðu ekki meiriháttar slys á fólki. Að sögn lögreglunnar var mikið um ölvun og óspektir í miðbænum. Erilsamt var því hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og voru fangageymslur fullar. Aðfaranótt föstudags voru sjö ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir of hraðan akstur. Aðfara- nótt laugardags voru þrír ökumenn teknir fyrir ölvun undir stýri en aðeins einn fyrir of hraðan akstur. Hlaut alvarlega höfuðáverka 18 ára piltur hlaut alvarlegan höfuðáverka eftir árás í Reykjanesbæ aðfaranótt sunnudags. Að sögn lögreglunnar í Reykjanesbæ var ekki um að ræða mikil átök eða slagsmál heldur eitt hnefahögg sem hafði svona mikil og slæm áhrif. Pilturinn var fluttur á Borgarspítalann í Reykja- vík. Sautján ára piltur hefur verið hand- tekinn og að sögn lögreglunnar í Reykjanesbæ hefur hann játað á sig sökina. VARÐSKIPSMENN TEKNIR MEÐ KJÖT Tollgæslumenn á Seyðisfirði gerðu upptæk sex hundruð kíló af kjöti í einu varðskipa Landhelgisgæslunn- ar, seint í fyrrahaust. Skipið var að koma frá Færeyjum, en hafði verið til viðgerðar í Póllandi. Skipverjar vilja meina að kjötið hafi verið keypt sem kostur. Landhelgisgæslan hefur enn ekki freistað þess að fá kjötið afgreitt úr tolli og er það því í vörslu sýslumanns- ins á Seyðisfirði. „Málið snýst um það hvort þeir hafi heimild til þess að hafa viðlíka magn með sér til landsins sem matarbirgðir. Þetta var dálítið vænn skammtur af kosti,“ segir sýslumað- urinn á Seyðisfirði, Lárus Bjarnason. Sambærilegt mál kom upp í Reykja- víkurhöfn í vetur. Hann segir að í raun sé ekki litið svo á að um smygl sé að ræða. Ekki í smyglstandi „Ég vona að við séum ekki í neinu smyglstandi,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Hann segir að varðskipin hafi verið til við- gerðar í Póllandi í fyrrahaust. „Þar var keyptur kostur til heimferðarinnar, eins og tíðkast. Svo fara skipin gjarn- an til Færeyja og þar er keypt það sem þarf.“ Georg segir Landhelgisgæsluna ekki hafa talið að um ólöglegt athæfi væri að ræða. „Kosturinn er bara keyptur þar sem þægilegt er að kaupa hann. Ef skipin stoppa einhvers staðar þá er keyptur matur þar,“ segir Georg. Í millilandasiglingum Lárus Bjarnason sýslu- maður segir að málið sé til athugunar í fjármálaráðuneytinu. „Landhelgis-gæslan hefur ekki lit- ið svo á að það þyrfti að greiða toll af þessu kjöti og þess vegna er það enn- þá hjá okkur. Þeir segjast vera í milli- landasiglingum. Það gilda hins vegar engar sér reglur um varðskipin eins og gilda um fraktskipin,“ segir hann. Hann segist hafa bent Landhelg- is-gæslunni á að ef að varðskip komi til landsins og haldi svo til starfa inn- an lögsögunnar, þá geti það ekki lengur talist vera í milli- landasiglingu. „Þetta er nokk- uð snúið mál. Frá því að við tókum þetta kjöt í fyrra hefur ný reglugerð litið dagsins ljós og með henni urðu þessi mál enn loðn- ari,“ segir sýslumaðurinn. „Við bíðum þess að fjármálaráðuneytið höggvi á hnútinn.“ Ekki aftur til seyðisfjarðar Lárus á ekki von á því að kært verði í málinu, þar sem ekki sé litið á að um smygl hafi verið að ræða. „Við tók- um kjötið og bíðum svo eftir því að það verði leyst út. Það hefur ekki enn gerst,“ segir hann. Til að leysa kjötið úr tolli þarf heimild frá landbúnað- arráðuneytinu. Lárus segir að slíkar heimildir séu vandfengnar. Landhelgisgæslan hefur um ára- bil komið nokkuð reglulega inn til Seyðisfjarðar á ferðum sínum. Frá því að kjötið var gert upptækt í fyrra hafa komur varðskipa í Seyðisfjarð- arhöfn orðið talsvert fátíðari. „Ég hef nú ekki haldið nákvæmt bókhald yfir komur varðskipanna hingað, en það getur vel passað að þau komi eitthvað sjaldnar við hérna,“ segir Lárus. sigtryggur ari jóhannsson blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is „Þetta var dálítið vænn skammtur af kosti.“ Dansað á ungmennaleikum Ungmennaleikunum í Laugardal lauk með mikilli hátíð í gær. Meðal þeirra sem skemmtu keppendum og áhorfendum voru þessir ungu piltar sem dönsuðu af miklum krafti á lokahátíð leikanna. Hópslagsmál brutust út í Breiðholti. Litháa er haldið sofand: Höfuðkúpubrotnaði í slagsmálum Barist við elda á Miðdalsheiði Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins og björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar tvívegis út til að slökkva gróðureld á Miðdalsheiði um helgina. Fyrst kviknaði í á laugardeginum og töldu slökkviliðsmenn að þeir hefðu slökkt eldinn sem tók sig aftur upp á sunnudaginn. Upptök eldsins eru óljós en að sögn slökkviliðsins fannst einnota grill á svæðinu og telur slökkviliðið að eldurinn gæti hafa kviknað út frá grillinu. Mikil íkveikjuhætta er frá einnota grillum og benda slökkviliðsmenn á að það sé mikilvægt að láta þau ekki standa á berri jörðinni. Litháískum karlmanni er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalan- um í Fossvogi eftir aðgerð sem hann gekkst undir í gær. Maðurinn höfuð- kúpubrotnaði í slagsmálum aðfara- nótt sunnudags. Átökin brutust út undir morgun í heimahúsi í austur- borg Reykjavíkur. Sex litháískir karlmenn hafa verið handteknir vegna málsins. Talið er að fleiri menn hafi átt þátt í átökunum og lögreglan leitar þeirra enn. Tilkynnt var um slagsmál í íbúð Litháans í Bökkunum í Breiðholti um klukkan fjögur á laugardagsnóttina og kom lögreglan skömmu síðar á stað- inn. Þá höfðu fjöldaslagsmál brotist út og einn maður höfuðkúpubrotnaði eftir að hann var sleginn með barefli í höfuðið. Nokkrir aðrir slösuðust lít- illega og annar maður, sem talið var að væri alvarlega slasaður, var flutt- ur á slysadeild. Lögreglumenn sem fóru á vettvang töldu í fyrstu að mað- urinn hefði verið stunginn í bakið með hnífi. Eftir læknisskoðun kom í ljós að sár mannsins voru ekki eftir hníf og var hann sendur heim eftir að gert hafði verið að sárum hans sem voru minniháttar. Ekki var ljóst hvaða áhaldi hafði verið beitt á manninn. Mennirnir sex,sem handteknir hafa verið, voru yfirheyrðir í gær með aðstoð túlks. Að sögn lögreglunnar gekk fremur hægt að yfirheyra menn- ina vegna tungumálaörðugleika en þó var búið að ræða við þá sex sem handteknir höfðu verið í gær. Lögreglan vonar að upplýsing- arnar sem mennirnir veittu við yf- irheyrslurnar geti nýst til að útskýra upptök slagsmálanna en talið er að fleiri menn hafi komið að átökunum og lögreglan leitar þeirra enn. Það tók lögregluna langan tíma að greiða úr átökunum en hún var á vettfangi fram undir hádegi sem er frekar óvenjulegt vegna átaka sem þessara. Maðurinn sem slasaðist var flutt- ur á gjörgæslu Landspítalans þar sem hann gekkst strax undir aðgerð en manninum hefur verið haldið sofandi eftir aðgerðina. Vakthafandi læknir gat ekki tjáð sig frekar um líð- an mannsins. kristinhrefna@dv.is DV mynd Karl Tollarara á Seyðisfirði tóku 600 kíló af kjöti frá Færeyjum í varðskipinu Tý:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.