Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 20
Frétta- og auglysingasími: 481-3310 / Fax 481-1293
FJOLSYN
omissandi fyrir Eyjamenn!
UmYERRK
VEITINGAHUS
BÁRUSTÍG 11
SÍMI 481 3393
Sendibílaakstur
- iiiiiaiibæjar
Áskriftarsíminn er 481-1300
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEM0Í£CRdA8ÍLL
» 481-2943
* 897-1178
Eitt skemmtilegasta sjó-
stangveiðimót landsins
ÞAÐ var mikið um dýrðir á skóladögum grunnskólanna, í Hamarsskóla á fimmtudaginn og Barnaskólanum
á laugardaginn. Voru þessar ungu dömur ú Hamarsskóla meðal þeirra sem komu fram. Bls. 16.
Sjóstangveiðimót SJÓVE hefur í 44
ár verið einn af föstu punktunum í
bæjarlífinu þegar hvítasunnan
gengur í garð. Og ekki verður
undantekning á þessa hvítasunnuna.
Umsvifin eru reyndar ekki eins
mikil og hér áður fyrr en engu að
síður er mótið skemmtileg tilbreyt-
ing í bæjarlíftnu og á félagið heiður
skilinn fyrir framtakið.
Elínborg Bernódusdóttir frá
Borgarhól, formaður SJÓVE, hefur
undanfarin ár farið fyrir félögum
sínum við undirbúning mótsins
sem í ár er það 44. í röðinni sem
segir að SJÓVE haft verið stofnað
1960. „Þau voru ekki mörg sjó-
stangveiðifélögin þegar félagið var
stofnað hér í Eyjum,“ segir
Elínborg. „Þá var líka þátttakan
meiri og í nokkur ár kom Gullfoss,
okkar eina farþegaskip, til Eyja og
þar gistu keppendur. Með árunum
hafa félögin orðið fleiri og um leið
hefur keppendum hér fækkað. En
það þýðir ekkert að gefast upp og
hvítasunnumótið er fyrir löngu búið
að vinna sér hefð sem eitt skemmti-
legasta sjóstangveiðimót landsins."
Það stefnir í að keppendur verði
40 til 45, þar af 32 ofan af landi, en
Elínborg leggur áherslu á að þetta
sé ekki endanleg skráning.
„Mótssetning verður kl. 20.30 á
Lundanum á föstudagskvöldið. Þar
verða gögn afhent, trúnaðar-
mönnum á bátunum lesinn pistillinn
og skipstjórar kynntir. Farið verður
út klukkan 6.00 á laugardags-
morgun og komið í land klukkan
14.00. Keppendur fara yftr veiði
dagsins á Lundanum klukkan 20.30
á laugardagskvöldið. Róið verður á
hvítasunnudag klukkan 6.00 og færi
dregin úr sjó klukkan 14.00. Loka-
hófið er í Höllinni um kvöldið og
húsið opnað klukkan 20.00. Þar
verður glæsilegur kvöldverður,
verðlaunaafhending og dansað fram
á rauðanótt," sagði Elínborg.
Sóknardagabátar í krókaaflamark á næsta fiskveiðiári
Frumvarp sjávarútvegsráðherra um
breytingar á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu var afgreitt út úr sjávar-
útvegsnefnd í fyrrakvöld. Þar var
samþykkt breytingartillaga um að
allir sóknardagabátar fari inn í
krókaaflamarkskerfið frá og með
næsta fiskveiðiári. Alls verður út-
hlutað 9500 tonnum til dagabátanna
ásamt því að 300 tonn eru eyrna-
merkt í sértækar aðgerðir.
„Þetta er stór dagur í sögu sjávar-
útvegsmála á Islandi og styrkir enn
frekar það fiskveiðistjómunarkerfi
sem unnið er eftir,“ sagði Guðjón
Hjörleifsson formaður sjávarútveg-
snefndar.
„Stærsti áfanginn er að ná að loka
kerfinu og fara með alla í eitt kerfi,
krókaaflamark. Þetta hefur jákvæð
áhrif fyrir okkur Eyjamenn sem
viljum starfa í aflamarkinu og
einnig eigendur dagabátanna þegar
til framtíðar er litið.“
Guðjón sagði ennfremur að það
væri enginn launung að dagabát-
arnir hafi veitt allt að tólf þúsund
tonn á árin en þeim var úthlutað
rúmlega tvö þúsund tonnum. „Svo
eru að koma inn stórir og öflugir
bátar og ég sá fyrir mér að afli gæti
aukist enn frekar ef við komum ekki
einhverri reglu á þetta. Það er m.a.s.
farið að taka tillit til þessa umfram-
afla í fiskveiðiráðgjöf. Nú er búið
að eyða þessu ágreiningsmáli sem
verið hefur eitt af stærri málum fyrir
hverjar alþingiskosningar.“
Guðjón sagði ennfremur að fjöl-
margir hafi haft samband við sig og
lýst ánægju með frumvarpið. „Eg er
sannfærður um að þorri eigenda
sóknardagabáta er mjög sáttur við
lok þessa máls.“
Búast má við fjörugum umræðum
á Alþingi vegna frumvarpsins en
fulltrúar Samfylkingarinnar og
Frjálslynda flokksins í sjávarútveg-
snefnd hafa lýst sig andvígan frum-
varpinu.
Bæjarráð sendi Guðjóni bréf á
mánudaginn þar sem því er lýst yfir
að ráðið leggist gegn frumvarpi sjá-
varútvegsráðherra um breytingar á
fiskveiðilöggjöfinni. „I frumvarpi
til laga um stjóm fiskveiða 3 gr. er
gert ráð fyrir bátar innan sóknar-
dagakerfisins geti valið á milli
sóknardaga annarsvegar og króka-
aflamarks hinsvegar sem sé úthlut-
að samkvæmt skilgreindum reikni-
grunni. Bæjarráð Vestmannaeyja
getur með engu móti fallist á slíka
tilhögum þar sem afli báta sé ekki
takmarkaður í tonnum talið nema
að takmörkuðu leiti og leggst þar
með gegn frumvarpinu," segir í
bréfinu en undir það ritar Bergur
Elías Agústsson bæjarstjóri.
VIKUTILBOÐ
27. maí - 2. júní
Prince kex 2x175 gr
Aromo fresh shampoo 300 ml
Sport Lunch súkkulaði
Congobitar+Buff + Súkkul.
Egils Grillkippa 4x2ltr Pepsi
Egils Grillkippa 4x2ltr Appelsín
Egils Grillkippa 4x2ltr Pepsi Max
Nóa Kropp 200 gr
Verá Nú
188,-
89,-
59,-
498,-
567,-
714,-
567,-
218,-
SS Kjötvörur ó Tilboði I j\>
30% afslóttur ^
SS. Rauðvínslæri
SS. KryddLsvínahnakkasneiðar
SS. Kryddl.Lambatvírif jur
SS. Kryddl.Lambalærissneiðar
1