Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 1
!
i
í
Áætlun Herjólfs
Brottfarartímar
Sumar 1.S.-31.8. Frá Vestmannaeyjum Frá ÞorUkshöfn
Sun.-fös. 8.15/ 16.00 12.00/19.30
Lau. 8.15 12.00
Nánarí upplýsingar er aó finna á www.htijotfiir.is og á slóu 415 I
Textavarpi RÚV, auk þess sem upplýsingar eru veinar I sfma 481 -2800.
H ERJÓLFU R
31. árg. / 21. tbl. / Vestmannaeyjum 27. maí 2004 /Verð kr.190 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
ALLS útskrifuðust 28 nemendur frá Framhaldsskólanum á vorönn og hér má sjá fríðan hóp stúdenta sem settu upp hvítu húfurnar.
Snögg viðbrögð þegar Svanborg sökk
Mannbjörg varð þegar Svanborg
VE, tólf tonna netabátur, sökk
rúmar þrjár sjómílur austan við
Bjarnarey rétt eftir miðnætti á
mánudagskvöldið. Tveir menn voru
um borð og komust þeir í björgun-
arbát og náðu að senda neyðarkall.
Tilkynning barst fimmtán mínútur
eftir miðnætti til Neyðarlínunnar og
var Björgunarfélag Vestmannaeyja
kallað út án tafar og 26 mínútur yfir
tólf var björgunarbáturinn Þór lagð-
ur af stað. Fjórtán mínútum síðar
var búið að ná skipsbrotsmönn-
unum um borð og voru þeir komnir
að landi í Eyjum rétt rúmlega eitt.
Skipstjóri á Þór var Guðni
Georgsson. „Eg var heima og kom-
inn í rúmið líkt og flestir. Menn
voru snöggir af stað og þar sem
konan var á bílnum í Reykjavík
kom ekki annað til greina en að fara
frá Höfðaveginum niður á bryggju á
hjólinu."
Snögg viðbrögð Björgunarfélags-
manna vöktu verðskuldaða athygli
og hrós Landsbjargar. Bent var á að
þetta væri ekki í fyrsta skipti sem
áhöfn Þórs sýndi slíkt viðbragð.
Aðeins þarf fjóra á Þór en þeir
voru níu og fleiri mættu á bryggj-
una. Um leið og sleppt var skellti
Guðni öllu í botn. „Við tókum
stefnuna á Mannklakkinn sem er
austan við Bjamarey þar sem bæði
Landsbjörg og Tilkynningaskyldan
GUÐNI, skipstjóri á Þór.
staðsettu Svanborgu. Þegar við
áttum þrjár mínútur í þá skutu þeir
upp neyðarblysi."
Fljótt og vel gekk að ná mönn-
unum tveimur um borð í Þór. „Við
hlúðum að þeim en annar þeirra var
kaldur á fótunum en annars vom
þeir í góðu ástandi.“
Svanborg maraði hálf í kafi rétt hjá
Þór og biðu menn í tæpan hálftíma
og vildu sjá hvað verða vildi með
bátinn. Hann sökk fljótlega og var
Þór kominn í land um klukkan eitt.“
Veður var gott þannig að hægt var
að keyra Þór á fullri ferð, 27 mfium.
„Við fengum SMS-boð um það að
bátur hafi sokkið. Þegar slfkt gerist
þýðir ekkert að tvínóna við hlutina.
Eins hjálpar okkur hversu stutt er á
bryggjuna. Við vomm að sjálf-
sögðu ánægðir og glaðir með
hversu vel tókst til í þetta sinn og
mannbjörg varð, það skiptir öllu,“
sagði Guðni að lokum.
A Svanborgu VE voru feðgamir
Þráinn Sigurðsson og Sigurður
Frans. Þeir sögðu að þetta hefði
gerst mjög snöggt. Þráinn fór niður
í vél en þá var báturinn orðinn hálf-
fullur af sjó og ekkert við ráðið. Það
var því ekki um annað að ræða en
koma sér í björgunarbát og bíða
björgunar.
Svanborg VE var tólf tonna eikar-
bátur, smíðaður 1973 á Seyðisfirði.
Lífleg Hvítasunna
Um helgina verður mikið um að vera
eins og venjulega, djass, myndlist,
sjóstöng og golf.
I BLS. 6
¥
Otrúleg byrjun
ÍBV-stelpurnar í fótboltanum hafa farið
vel af stað, unnið tvo fyrstu leikina og
markahlutfallið 16 mörk gegn einu.
I BLS. 19
BÍLAVERKSTÆÐIÐ
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Réttingar og sprautun
Sími 481 1535
www.bokabudin.is