Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 27.05.2004, Blaðsíða 2
2 Frcttir / Fimmtudagur 27. maí 2004 Borgarafundur um fasteigna- félag og leikskóla Bæjarráð samþykkti á fundi sínum á mánudaginn tillögu meirihlutans um að efna til borgarafundar vegna hugs- anlegrar þáttöku bæjarins í fasteigna- félaginu Fasteign hf. og byggingu nýs leikskóla. Vill meirihlutinn að fundurinn verði fyrri hluta júnímánaðar og var bæjarstjóra falið að undirbúa fundinn. Arnar Sigurmundsson (D) fjallaði síðar á fundinum um kynningarfund sem haldinn var með aðal- og varafulltrúum í bæjarstjóm sem haldinn var á sunnudaginn. „Bæjairáð leggur áherslu á mikil- vægi þess að þessum fundi verði fylgt eftir með ýtarlegri skoðun á kostum og ókostum þess að bærinn gangi til liðs við fasteignafélag um yfirtöku á nokkrum fasteignum bæjarins. Þá leggur bæjarráð ríka áherslu á að fram fari ítarlegt faglegt og fjárhagslegt mat á kostum þess að byggja fjögurra deilda leikskóla eða sex til sjö deilda leikskóla í Vestmannaeyjum. Bæði þessi mál eru gríðarlega mikilvæg fyrir Vestmannaeyjabæ og veltur á miklu að vel takist til í þessum efnurn." Meirihlutinn vísaði í fyrsta mál á dagskrá varðandi borgarafundinn og að umbeðið erindi verður liður í undirbúningi að fyrirhuguðum borg- arafundi. Fíkniefni og umferðarslys Eitt fíkniefnamál kom upp á aðfara- nótt laugardags. Fannst lítilræði af kannabisefnum og áhöld til neyslu við húsleit. Játning liggur fyrir og telst því málið vera upplýst. Um hádegið sl. föstudag var til- kynnt um umferðarslys á Strandvegi rétt vestan við gatnamót Heiðarvegar og Strandvegar. Þama hafði gangandi vegfarandi orðið fyrir bifreið sem ekið var vestur Strandveg. Vegfarandinn var fluttur á sjúkrahús með sjúkra- bifreið og muna m.a. hafa hlotið bein- brot í slysinu. Skýrsla Sögusmiðjunnar um menningarhús í Vestmannaeyjum: Söfnin í Salthúsið og gosminjasafn í hrauninu -með tengibyggingu yfir Kirkjuveginn em meðal athyglisverðra hugmynda Skýrsla þeirra Jóns Jónssonar og Arnars S. Jónssonar hjá Sögu- smiðjunni um menningarhús í Vest- mannaeyjum var gerð opinber á þriðjudag. Þá hélt Andrés Sigmunds- son formaður bæjarráðs blaðamanna- fund þar sem hann kynnti helstu niðurstöður. Segir í meginniðurstöðu skýrsluhöfunda að starfsemi í nýju menningarhúsi Vestmannaeyinga þurfi að vera eins mikið út á við og mögulegt er. Reksturinn þurfi að vera öflugur og líf og fjör eigi að einkenna húsið. Menningarhúsið á að virka og vinna með öðrum menningarstofunum í Eyjum, félögum og öðrum húsum á svæðinu og styðja við sem flest svið menningarlífsins án þess að ryðjast inn á starfssvið annarra. Menningar- húsið á að leitast við að verða leiðandi afl í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum með þeim margfeldisáhrifum sem slíkt getur haft fyrir svæðið og aðra ferðaþjónustuaðila. Öll söfnin á einn stað Það sem talið er upp að þurfi að vera í menningarhúsinu er: Byggðasafn Vestmannaeyja og sýningar þess, Fiska- og náttúrugripasafnið og sýn- ingar þess, vegleg sérsýning um eldgosið í Heimaey 1973, rými fyrir farand- og sérsýningar, aðstaða fyrir starfsmenn, verkstæði og vinnuað- staða fyrir safna og rannsóknarstörf í tengslum við söfnin. móttökusalur fyrir boð, safnkennslu, námskeiða- hald, kynningar og fleira slíkt, upp- lýsingamiðstöð ferðamála í Vest- mannaeyjum, vegleg minjagripa- og handverksverslun og loks kaffí og veitingastofa. Gera þeir að tillögu sinni að salthús ísfélagsins á homi Strandvegar og Kirkjuvegar verði gert upp og nýtt undir menningarhús. Einnig vilja þeir að menningarhúsið verði tengt með tengibyggingu eða brú yfir í hraunið til móts við Heimatorg. Kannað verði með kostnað við að gera þar helli eða göng niður í rými í hrauninu sjálfu. Einnig vilja þeir að teknar verði upp viðræður við eigendur Hallarinnar um að hún sinni ákveðnum þáttum menn- ingarstarfs í Eyjum. í framhaldi af því verði gerðar ákveðnar umbætur á Höllinni, með Ijármagni frá verkefnis- stjórn um menningarhúsið, til að hún henti bctur til leiksýninga og annarra sambærilegra listviðburða. Þá vilja þeir nokkrar endurbætur á Vélasalnum í Listaskólanum til að hann henti betur undir margvíslega listviðburði og að endurbætur verði gerðar á aðgengi fót- fúinna og fatlaðra á Bæjarleikhúsinu. Fleiri hugmyndir vom skoðaðar, bæði nýbyggingar og viðbyggingar við húsnæði sem er til staðar. Einnig vom skoðaðar endurbætur eða breytingar á húsnæði sem er til staðar. Meðal nýbygginga sem vom skoðaðar voru hús byggt inn í hraunið, nýbygging við Skansinn, nýbygging á homi Heiðarvegar og Vesturvegar á Baldurshagalóðinni og nýbygging, ein eða fleiri á Stakkagerðistúni. Við- bygging við Safnahúsið og bygging tengd Höllinni vom einnig möguleikar sem vom skoðaðar. Eins var sá möguleiki skoðaður að Höllin yrði keypt og breytt til að auka við og bæta notkunarmöguleika og aðrar byggingar neðan við Strandgötu og á bryggjusvæðinu keyptar og gerðar upp, til dæmis Isfélagshúsið og vigtarhúsið sem áður hýsti hurðaverk- smiðjuna ímex. Segja skýrsluhöfundar að hugmynd að byggingu inn í hraunið sé vinsæl meðal Eyjamanna en þeir óttast mikinn kostnað og tóku skýrsluhöf- undar undir það. Eins segja þeir í skýrslunni að það sé óþarfi að reisa byggingu inn í hraunið til að heilla gesti því hraunið sé til staðar og upplifun gesta af eldfjallinu og hraun- inu sé sterk. Það sem flestir heillist af sé hin einstaka náttúmfegurð sem einkennir Vestmannaeyjar. Þeim leist verst á hugmynd um nýbyggingu á Skansinum. Að þeirra mati hefur tekist einstaklega vel til með fram- kvæmdir á Skansinum. Byggingar líta vel út og það væri óeðlilegt að reisa nútímalegar byggingar á svæði sem gerir beinlínis út á að umhverfið minni á sögu og menningarstarf eins og Skansinn. Langskemmtilegasti kosturinn fyrir nýbyggingu að þeirra mati er Baldurs- hagalóðin. Þar myndi menningarhús verða miðpunktur bæjarins og það markmið nást að húsið myndi efla og styrkja miðbæinn. Líkiegt er þó að framsæknir kaupmenn myndu sjá dálítið eftir þeirri lóð. Þeir segja jró fjárhagsrammann of þröngan til að bæði sé hægt að reisa glæsilegt nýtt hús og koma þar upp þeirri kraftmiklu og metnaðarfullu starfsemi sem myndi nýtast bæjarfélaginu best. Viðbætur við Höliina Skoðaðar vom sérstaklega hugmyndir um samnýtingu við Höllina. Segja þeir að sú hugmynd að Vestmannaeyjabær kaupi Höllina til að nýta sem menningarhús falli ekki að þeim hug- myndum sem settar em fram í skýrslunni um menningarhús. Eitt af skilyrðum ríkisins er að húsið sé miðsvæðis í bæjarfélaginu en það verður seint hægt að segja það um Höllina. Segja þeir að Höllin sé stórkostlegt þrekvirki og einkaframtak og frábær veislu- og ráðstefnustaður. Það vantar líka lítið upp á að hún geti sinnt hlutverki tónlistarhúss og aðra stóra og fjölsótta menningarviðburði. Gera skýrsluhöfundar tillögu um að hluti af því fjármagni sem fæst í menningarhúsið fari í að gera við- bætur við aðstöðuna í Höllinni, til að hún geti þjónað hlutverki sínu enn betur hvað varðar sviðslistir. Hugmyndin um að reisa viðbygg- ingu við Safnahúsið er vel þess virði að skoða vandlega að mati skýrslu- höfunda og lengi vel vom þeir hrifnastir af þeirri hugmynd. Tenging við Safnahúsið er hagkvæm og af henni myndi skapast töluverð sam- legðaráhrif. En eftir því sem á leið skýrslugerðarinnar vöknuðu efasemdir um að viðbygging við Safnahúsið væri besti kosturinn. Benda þeir á að eitt það mikilvægasta sem þarf að gera í nýju menningarhúsi sé að hanna nýjar sögusýningar með ferskum blæ og brjóta upp hið hefðbundna byggðasafnsform sem nú er ríkjandi á sýningunni í Safnahúsinu. Spyija þeir hvort það verði ekki erfiðara að gera slíkar lykilbreytingar á sýningunum, þegar þær verða nánast áfram í sama húsi og þær em núna. Einnig segja þeir verulega hættu á að viðhorf heimamanna og gesta til viðbyggingar við^Safnahúsið verði á þá leið að um viðbyggingu sé að ræða, en ekki nýtt menningarhús með öllum þeim sprengikrafti, frumleika og nýsköpun sem það á að færa í bæjarlífið. Að endingu segja þeir það stað- reynd að Safnahúsið sé ekki beinlínis afrek í byggingalist og viðurkenna skýrsluhöfundar að þeir hafi hreinlega ekki hugmyndaflug til að sjá hvemig viðbygging á að bæta úr því. EINAR Sveinsson , Ingi Sigurðsson, Bjarni Ármannsson og Sveinn Jónsson ræða málin. / Formleg opnun Islandsbanka og Sjóvá-Almennra íslandsbanki og Sjóvá-Almennar opnuðu formlega útibú sitt á Kirkjuveginum á þriðjudaginn. Stjórn og yfirmenn bankans fjölmenntu til Eyja og notuðu tímann í Herjólii til að halda bankaráðsfund. Ennfremur afhenti Einar Sveinsson, formaður bankaráðs, Sigmari Gíslasyni kvikmyndagerðarmanni myndarlegan styrk úr menn- ingarsjóði Islandsbanka og Sjóvá-AImennar en hann vinnur nú að heimildarmyndinni, Aldaminning afiakóngs sem fjallar um afa hans, Binna í Gröf. Sumarstúlkan 26. júní Sumarstúlkukeppnin verður 26.júní í Höllinni og taka níu stúlkur þátt í henni að þessu sinni. Stúlkumar em Anna Fríða Stefáns- dóttir, Sóley Dögg Guðbjömsdóttir, Erla Signý Sigurðardóttir, Sandra Sigurjónsdóttir, Hildur Dögg Jóns- dóttir, Sæbjörg Helgadóttir, Ama Björg Sigurbjömsdóttir, Thelma Sig- urðardóttir og Berglind Stefánsdóttir. Ester Helga Sæmundsdóttir er fram- kvæmdastjóri sýningarinnar og henni til aðstoðar em Súsanna Georgsdóttir og Anna Rós Hallgrímsdóttir. Fram- kvæmdaaðilar em Höllin og Fréttir. Kynnir er Olafur Bjami Guðmunds- son og ljósmyndari Halla Einarsdóttir. Aftari röð:Anna Fríða Stefánsdóttir, Sóley Dögg Guðbjörnsdóttir, Erla Signý Sigurðardóttir, Sandra Sigurjónsdóttir og Hildur Dögg Jónsdóttir. Fremri röð: Sæbjörg Helgadóttir, Arna Björg Sigurbjörnsdóttir, Thelma Sigurðardóttir og Berglind Stefánsdóttir. FRÉTTIR Útjgefandi: Eyjasýn elif. 480278-054!) - Vestmannaeyjiun. ltitstjóri: Omaí (ianiarsson. Bliúlamenn: Sigursveinn Þórðarson, (íuðbjörg Sigurgeirsdóttir. íJnóttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & (íisli Valtýsson. l'ivntvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Mvndriti: 481-1293. Netfang/raf|)óstur: frettir@ejjafrettir.is. Veffang: httii/Avww.eyjafrettir.is FRETfl li koma út alia finimtiidaga. Biaðið er seit í áskrift og einnig i lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Vöruvai, Herjólfi, Flnghafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, Bónusvideó, versluu 11-11, Skýlinu i Friðarhöfn og i Jolla i Hafnarfirði og afgreiðslu Ilejndfs í Þorlákshöfn. FRÉTÍ'IR eru pivutaðar í 2(KK) eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, liljóðritim, notkun ljósmynda og annaðeróheinúlt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.