Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 11

Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 11
Nýtt S. O. S. 11 Það er dregið úr hraðanum og skipinu beitt upp í. Hásetar létu olíu renna í sjóinn gegnum klósettrörin og rennurnar miðskips og í skut. Olían rann út, blandaðist i'reyðandi öldunum og virtist draga nokkuð tir krafti þeirra. Skipstjóri og stýrimaður athuga úr brúnni áhrif olíunnar á öldurótið. ,.Þetta virðist ekki koma að miklu gagni,“ segir stýrimaður að nokkurri stund liðinni. „Sama sýnist mér í fljótu bragði,“ svar- aði Wiese skipstjóri. „Segið þeim í vélinni, að þeir skuli dæla olíu í liafið mikilli olíu.“ Stýæimaður gengur að símanúm og kall- ar: „Halló, yfirvélstjóri! Við verðum að dæla olíu í sjóinn! Olíupokar og olía úr rennunum hafa engin áhrif! “ Skipstjóri og stýrimaður liorfa báðir út. Þeir sjá, að olían dreifist kringum skipið og sjóinn sléttir mikið í kring. Kemur þetta að fullu gagni? Sú spum- ing er efst í hugum allra skipverja á Ad- olf Leonhardt. Þeim finnst veðrið enn hafa verznað, ef annars væri hugsanlegt að það gæti verznað úr þessu. Wiese skipstjóri lítur á armbandsúrið sitt. Klukkan er næsturn ellefu. F.n til hvers er að vera að líta á klukkuna? Hvað gildir stund og staður eins og nú er kom- ið. Ti! hvers er nú að deila lífinu niður í klukkustundir og mínútur? Hér gilda nú aðrar reglur. Því nú ríkir almætti frum- efnisins. Hvað eru nokkrir menn, þessi rykkorn á óravídd heimshafanna. Þau öfl, sem nú hafa verið leyst úr læðingi, láta sig engu skipta mannleg lög og reglur. Á slíkunr stundum leiðir maðurinn ef til vill hugann að því, hve litill og þýð- ingarlaus hann er, þegar öllu er á botninn hvolft. En sú staðreynd beygir hann samt ekki. Að minnsta kosti ekki sjómanninn, því líf þeirra er tengt hafinu. Wiese skipstjóri hefur lagt annan hand- legginn á vélsímann, en með hinni hendi styður hann sig við gluggakarminn. Fing- ur hægri handar fitla eins og ósjálfrátt við armbandsúrið, en augun hvíla á ham- förum sjávarins úti fyrir. Tíminn líður liægt. Maðurinn við stýrið, stendur gleitt, ríg- heldur um stýrishjólið, horfir á kompás- inn fyrir framan sig, og þá út á ólgandi hafið. Honum finnst tíminn næstum standa kyrr, vaktin eins og heil eilífð. Þessir vísar hreyfast varla, fjandinn hafi það. Ætlar þessi stýrisvakt aldrei að taka enda? Úti fyrir sýður og velhir sá mikli norna- ketill, liafið. Stóreflis fjöll rísa kringum skipið. Öldufaldarnir brotna á yfirbygg- ingu þess. Skýjabólstrarnir virðast næst- um teygja sig niður að haffletinum, rétt eins og siglutrén gætu þá og þegar teygt sig upp til þeirra. Mennirnir standa þegjandi í brúnni. Athygli þeirra beinist einungis að sjón- um og skipinu. Hana nú! Mitt í þögninni rýfur hana mikið hróp. Skipstjórinn lítur í kringum sig. Hann sér hásetann við stýrið sleppa því og fórna upp höndunum. Hásetinn hrópar upp yfir sig: „Skipið lætur ekki að stjórn! Skipið er stjórnlaust!" Stýrisbilun! Jæja. Verra gat það varla verið! Skipstjóri og stýrimaður þjóta að stýr- inu og grípa í það. En það er ekki um að villast. Sikpið lætur ekki að stjórn leng-

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.