Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 24

Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 24
24 Nýtt S O S „Niður á 200 fet!“ hrópaði kafbátsfor- inginn rir turninum. Drunurnar endurtóku sig hvað eftir annað á nákvæmlega sjö sekúndna fresti. En þær urðu daufari eftir því sem Tang færðist neðar. „Beitisnekkjan hefur skotið tir 20,3 cm. fallbyssunum sínum,“ sagði vélfræðingur- inn. „Þetta voru engar djúpsprengjur. Við erum öruggir fyrir sprengjum á þessu dýpi.“ Já, fyrir sprengjunum. En ef tundur- spillirinn hæfi nú árás? En hann gerði það ekki. Það leit helzt út fyrir, að Japanarnir þyrftu að hraða svo för sinni til Filipseyja, að hann mætti ekki vera að því að granda kafbátum, sem kynnu að verða á leið þeirra. Skrúfu- hljóðið fjarlægðist. Er Tang kom upp á yfirborðið hálfri stundu síðar, voru þessi þrjú skip hvergi sjáanleg. Ekkert var held- ur að sjá í ratsjánni. O’Kane komst að þeirri niðurstöðu, að árásin hefði misheppnazt. „Við náum þeim ekki fyrir dögun, og þá erum við nauðbeygðir til að kafa. Þetta er eitt stórt núll hjá okkur. Nú, jæja, það getur líka komið fyrir.“ í dögun varð Tang að kafa. Japanskar flugvélar sáust í ratsjánni. En varla var Tang kominn í sjónpípuhæð, er vörður við últra-hljóðtækið tilkynnti, að hann hefði orðið var við ferðir óvinanna. „Últrahljóð á 40 gráðum. — Á 30 gráð- um. — 270 gráðum. Miðun til allra hliða. Mjög nálægt!“ Foringjarnir í turninum horfa hver á annan. Hvað var þetta? Allt í einu laust niður í huga þeirra eins og eldingu því sem var að ske: Þeir voru komnir inn í tundurduflasvæði! Þeir höfðu sem sé mið- að tundurdufl! Þeir höfðu kafað niður í mitt tundurduflabelti Japana! „Hart á bakborða!" skipaði kafbátsfor- inginn til þess að víkja fyrir miðuðu dufli á 2 gráðum. „Spurning: Miðanir Varðmaðurinn við hljóðmiðunartækið kallaði þá miðanir sínar jafnóðum: Þær tilkynningar voru allt annað en uppörv- andi: „Miðun á 10 gráðum. — Miðun á 20 gráðum. — 50 gráðum. — 170 — 200 — 250 — 355 gráður!" Sjóliðar þeir, sem höfðust \ ið í kafbátn- um miðjum og heyrðu strax þessar æsilegu fréttir, þorðu ekki að standa fast í fæt- urna, því ef tundurdufl sprakk kom oft fyrir, að fætur manna tættust í sundur. O’Kane horfði í gengum sjónpípuna. Hann var að hngsa um að freista þess, að komast upp á yfirborðið. Ef til vill mundi þá minnka hættan af tundurdufl- unum, því þau voru sennilega lögð fyrir kafbáta, þ. e. lagt djúpt. En nákvæmlega yfir sjónpípunni var sprengjuflugvél að hringsóla og hefði Tang verið henni kær- komin veiði. „Stjórnborð 5! Fara upp á yfirborðið!" Frank Springer lét þá til sín heyra: „Eg talaði \ið Breta í Perluhöfn um daginn, kapteinn, sem varð að fara um tundur- duflasvæði á leiðinni frá Gíbraltar til Möltu. Þeir höfðu líka hljóðmiðanir í öllum áttum og honum varð alveg nóg boðið. Hann sagði, að kafbátur, sem færi í gegn um tundurduflasvæði, væri eins og maður, sem brýst gegn röð hermanna með lokuð augu!“ Kafbátsforinginn snéri sér að hlustunar- manninum: „Stöðvaðu helvítis tækið! Við höldum þessari stefnu!“ Sjólaðirnir þvinguðu uppgerðarbros fram á varir sínar. Sá „gamli“ var svo fífl-

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.