Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Page 14

Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Page 14
14 Nýtt S O S skinns og hörunds. Hún rís eins og ógn- arlegur múrveggur og brotnar á skipinu aftanverðu með firriakrafti. Gegn þessum ægikrafti er engin vörn. Þegar sjórinn hefur loks runnið út af þilfarinu koma af- leiðingarnar í ljós. Sterkbyggður skipsbáturinn er ekki ann- að en spýtnarusl. Hurðin að ljósaskápnum er mölbrotin. Borðstokksstoðirnar eru bognar. Afturskipið allt er hroðalega út- leikið. Og enn rísa holskeflurnar og dynja á þessum illa leikna farkosti. Farmskipið lyftist upp, kastast svo niður í djúpan öldudal. Átökin eru svo stórfengleg, að skipverjar eru þess fullvissir að skipið get- ur ekki staðizt þau til lengdar. En hafið er miskunnarlaust. Það greið- ír væri, hurðir brotna og skipsljórar. Mik- þykkar járnplötur bögglast eins og papp- ír væri, hurðir brotna og skipsljórar. Mik- ill sjór brýtur hurðina að matsal áhafnar. Þetta áður stolta skip er ímynd eyðilegg- ingarinnar. Þrek sjómannanna er undravert. Þeir eru sannarlega hetjur hversdagslífsins. Menn, sem leggja líf og heilsu að veði eins og væri það sjálfsagður hlutur. * * * Wiese skipstjóri getur ekki unnt sér neinnar hvíldar þessa illviðrisdaga, ekki heldur aðrir yfirmenn á skipinu né háset- ar. Nú er það ekki til, sem heitir frívakt. Hann víkur ekki af stjórnpallinum. Menn hans undrast þetta furðulega þrek og spyrja sjálfa sig: „Hvaðan er þeim gamla kominn þessi kingikraftur, þetta ó- bugandi þrek?“ Wiese skipstjóri er fyrirmynd áhafnar sinnar í framúrskarandi skyldurækni. Það er þeim öllum hvatning til dáða, jafnt ungum sem gömlum. Enginn mun gefast upp meðan stætt er. Það er ekkert útlit fyrir, að veður fari batnandi. „Mér er óskiljanlegt, hvað skipið þolir,“ sagði Wiese við stýrimanninn, sem átti brúarvaktina, og hann horfði undrandi á stórkostleg ólögin. Stýrimaðurinn kinkaði kolli: Já, það er hverju orði sannara. Margur væri far- inn ,,í kjallarann" fyrir löngu.“ Wiese skipstjóri kveikir í pípunni sinni og sogar að sér nokkra reyki. Hann horf- ir út um sædrifnar rúðurnar á brúnni og segir, fremur við sjálfan sig en stýrimann- inn: „Eg er viss urn, að þessi jól hafa orðið mörgum uppstigningardagar. Og hver veit, hvað bíður okkar. Við erum enn mitt í fárviðrinu á stjórnlausu skipi.“ Yfirmennirnir standa svo þegjandi í brúnni drykklanga stund. Loks rýfur Wiese skipstjóri þögnina: „Eg hef þá skoð- un, að ef þetta óhapp hefði ekki hent með stýrið, þá hefðum við ekki þurft neinu að kvíða. Adolf Leonhardt hefur sýnt það þessa dagana, að þetta er af- bragðsskip. Á slíku skipi getur maður far- ið allra sinna ferða, hvernig sem veður er.“ „Já, skipasmíðastöðin á sannarlega skilið að hljóta mikla viðurkenningu." Þannig hugsa sannir sægrapar, um skip- ið sitt, ekki sig sjálfa." Skipstjórinn gengur út á brúarvænginn og horfir aftur eftir skipinu. Allt í einu grípur hann heljartaki í skjólborðið og hrópar til stýrimannsins: „Komið þér! Fljótt!“ Stýrimaðurinn skundaði út. Wiese skipstjóri bendir út á sjóinn: „Lítið þér á! Hvað verður úr þessu?“ Stýrimaðurinn starir orðvana á það, sem

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.