Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 23

Nýtt S.O.S. - 01.07.1959, Blaðsíða 23
Nýtt S O S 23 í austurátt. Kannske mundi upprennandi dagur færa þeim fleiri sigra. * * * En nú fór heil vika í hönd og ekkert gerðist. Þó ekki viðburðalaus, heldur þvert á móti! Allan daginn mátti sjá aragxúa japanskra flugvéla. Flugmennirnir hafa séð sjónpípuna nokkrum sinnum og vörp- uðu þá niður sprengjum. Tang varð að koma upp um nóttina á Formósusundi til þess að hlaða rafgeyma sína til neðan- sjávarferðanna. Tundurspillar hópuðust þá að og neyddu Tang til að kafa vegna síendurtekinna árása. En ekki gafst tækifæri til tundurskeyta- árása. Samlyndið var ekki sem allra bezt meðal áhafnarinnar og skipherrann var ekkert lamb að leika við. Hann talaði fátt, djúpar hrukkur grófust á enni hans og augun skutu gneistum. Loks í bítið hinn 20. október kvað við liátt kall varðmanns við ratsjána: „Skipherrann í turninnl“ O’Kane kom eins og örskot og leit í ratsjána. „Ágætt! Einn stór og tveir litlir gulir djöflar. Já, nú eru þeir einmitt að byrja!“ Það kom brátt í ljós, að tilgáta þeirra reyndist rétt, þetta var japönsk beiti- snekkja og tveir tundurspillar. Skipin sá- ust allvel úr brúnni er Tang kom nær þeim. Herskip! Hver fjandinn! Raunar höfðu kafbátar allra styrjaldarþjóða náð mestum árangri í baráttunni gegn kaupskipunum og að þeim var vopnunum snúið fyrst og fremst. En bæri svo vel í veiði, að beiti- snekkja kæmi í færi og yrði sökkt, þá olli það jafnan mikilli ánægju meðal sjólið- anna. Það þótti með vissum hætti víga- mannlegra, að ráðast gegn óvini, sem sjálfur ætlaði í bardagann. „Til árásar! Hver maður á sinn stað!“ Kafbáturinn elti óvininn ofansjávar. Nóttin var að færast yfir. Leikurinn barst í suðurátt. Japaninn sigldi allhratt og bar vel undan þrátt fyrir margar krókaleiðir. Hann ætlaði sýnilega að hrista kafbátinn af sér og það reyndist Tang örðugt að minnka fjarlægðina. „Við komumst ekki fram fyrir hann,“ sagði O’Kane við liðsforingjann, sem stóð í brúnni. Sjórinn rann í lækjum af olíu- fötunum hans. „Vélarnar okkar hafa ein- faldlega ekki nægan kraft til þess. Eg verð að reyna að hefja árás meðan á eltingar- leiknum stendur. Hríðskotaárás í 600 yarda fjarlægð gæti heppnazt." Bilið var nú 800 yardar (730 metrar), þegar ljóskastara beitisnekkjunnar var beint á hafflötinn í leitarskyni. „Hábölvað!“ hrópaði yfirliðsforinginn. „Þeir hafa fundið lykt! Að minnsta kosti hafa þeir fengið ratsjármiðun!" Hann var enn að tala, er Ijóskeilan varpaði skellibirtu yfir brúna á kafbátn- um. Það var albjart eins og um hádag. „Hraðköfun! Niður! Niður!“ Nú var urn að gera að nota hverja sek- úndu. Foringjarnir þustu niður úr tum- inum. Þeir notuðu ekki einu sinni stiga- þrepin. Burt, burt sem fyrstl Áður en þeir yrðu sigldir í kaf eða . . . Boðaföll á sjónum. Turninn var horf- inn undir yfirborðið. Tang var næstum lóðréttur í sjónum. Brak og brestir. „Djúpsprengjur?" hugsaði Jack Kramer, sem skundaði að djúpstýrinu. „Svona ná- lægt hef ég aldrei fyrr heyrt þær. Guð minn góður! Þetta getur ekki endað vell“ Aftur brak og drunur. Eins og drunur spúandi eldfjalls.

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.