Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 9

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 9
Nýtt S O S 9 liættulegar á siglingaleiðum, og verulega alvarleg verður þessi hætta, þegar þokan grúfir yfir bæði um daga og nætur. Rekísinn á Norður-Atlantshafi kemur frá Grænlandsjöklum. Jöklarnir eru á sí- felldri hreyfingu og út við strendurnar brotnar úr jökulröndinni. Venjulega líða tvö til þrjú ár unz borgarísinn hefur rek- ið svo langt, að hann kemst á venjulegar siglingaleiðir. Til varnar þessari hættu eru höfð athugunarskip. Það er fylgzt nákvæm- lega með ísrekinu og aðvörun send út, ef hætta er á ferðum. Þessi ísathugunarskip amerísku strand- gæzlunnar eru á svæðinu milli Nýfundna- lands og Grænlands. Sjómennirnir á þess- um skipum inna af hendi fórnfúst starf og tilbreytingarlítið. Oft eru veður hörð á þessum slóðum. Það er ekki eftirsóknar- vert, að starfa á þessum skipum þegar grængolandi holskeflurnar rísa hver af annarri og kuldinn nístir merg og bein og klakabrynjan hleðst á skipin með svo skjótum hætti, að stórhætta er á ferðum. Líkjast skipin þá einna helzt ísbjörgun- um, sem þau eru sett til að forða öðrum skipum frá. Fæstir þeirra, sem vinna áhættulaus störf í landi, hafa hugmynd um tilvist þessara skipa og það starf, er áhafnir þeirra inna af hendi. Menn vinna þessi störf æðrulaust og án þess að mögla. Ár eftir ár þetta sama tilbreytingarlausa, en mikilvæga starf fyrir öryggi sjófarenda. Þessi skip skulu athuga hreyfingar íss- ins, fylgja honum eftir og senda aðvaran- ir og ísfréttir til skipa, sem eru á nálægum slóðum. Og þá, er maður veit, að árlega eru taldir 400 til 1000 borgarísjakar, er hverj- um landkrabba ljóst, að hér eiga sjómenn, sem sigla á þessum norðlægu breiddargráð- um, við skæðan óvin að etja. Um þessar hættur er Sierck skipstjóri að, hugsa nú. Og þó hann viti, að ameríska ísgæzluskipið „Campell“ sé nú einhvers staðar á þessum slóðum og áhöfn þess geri sitt bezta, þá er það heldur lítil bót í máli, eins og nú er komið. Sannleikurinn er sá, að Ameríkaninn getur í þessu tilfelli ekki gert annað en senda út aðvaranir gegn íshættunni. Hvert skip er svo í hættu eftir sem áður á sinni leið og verður að hafa öflugan ísvörð, og fær þó lítið að gert. En allt gengur vel. En vindurinn er stöðugt að aukast. Um hádegisbilið skrifar stýrimaðurinn í skipsdagsbókina: Klukkan 12,00. Norðaustan 6—y, snjó- koma, loftvog 982, stýrð stefna 2yo°, rek 1°, réttvísandi 270°, talsverður sjór, slœmt skyggni. Erum á 59,32° norður-breiddar, 42,25° vestur-lengdar. Næstu klukkustundir eykst stormurinn enn að mun og sjólagið versnar. Næsta bókun í skipsdagbók Johannes Kriiss segir meira en orðin gefa til kynna: Klukkan 15,00. Norðaustan 9—10, snjó- koma, loftvog 950. Förum hægt á móti vindi! Vont skyggni . . . Og næsta bókun: Klukkan 18,00. Norðaustan 9—10, snjó- koma, loftvog 952. Förum á móti veðrinu á hægri ferð, vont skyggni. Töpuðum lok- inu af stjórnborðsbátnum vegna storms og sjávargangs. Staða 59,25° norður, 42,30° vestur . . . Johannes Kruss heldur áfram ferð sinni hægt og sígandi móti stormi og þungum sjó. Sierck skipstjóri segir við stýrimanninn, sem var á vakt:

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.