Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 11

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Qupperneq 11
Nýtt S. O. S. 11 . . . Skip rekst á ísjaka! Allt o£ oft hefur sá sorgaratburður skeð úti á Atlantshafi: Þann 11. maí 1833 sökk „Lady of the Lake“ eftir að hafa rekizt á borgarísjaka. Þá fórust 215 manns. Þann 15. apríl 1912 vaið eitt átakan- legasta slys í sögu siglinganna með þessum hætti, er „Titanic“ fórst með 1513 manns. Og fleiri eru skipin, sem hafa orðið ísn- um að bráð. Og nú er röðin komin að Hans Hed- toft, sem er nýtt skip, 2875 brúttótonn, 87 metra langt. Það er á sinni fyrstu ferð Sierck skipstjóri fréttir samkvæmt sam- hljóða tilkynninsrum skipa, að 95 manns eru með Hans Hedtoft. Farþegarnir eru 19 konur, 6 börn og 30 karlar. Skipshöfnin er 40 manns. „Guð gefi, að við komum nógu fljótt til hjálpar," segir Sierck skipstjóri við sjálf- an sig. Og þannig hugsa allir þessir 23 menn á Johannes Krúss. Hugsun þeirra snýst um það eitt að bjarga hinu nauðstaddi fólki, án tillits til eigin áhættu, svo sem háttur er allra sannra sjómanna. Sierck skipstjóri víkur nú ekki fótmál úr brúnni. Nejedlo loftskeytamaður situr líka langar stundir við tæki sín; hann er nú, að skpstjóranum frátöldum, sá maður- inn um borð, sem mest veltur á, því hann einn hefur samband við félaga sinn, Carl Dejligberg á Hans Hedtoft og er í stöðugu sambandi við önnur skip, sem koma til með að taka þátt í leitinni. Slysstaðurinn er, samkvæmt fyrsta neyð- arkalli Danans, um 25 sjómílur frá þeim stað, sem Johannes Krúss er nú. Sjór er nú orðnn mjög úfinn, og all- mikill stormur. Grá þokan byrgir alla sýn og auk þess er vaxandi íshætta. Sierck skipstjóri getur því ekki haldið áfram ferðinni nema með takmörkuðum 'hraða, eða með hundrað skrúfusnúning- um á móti hundrað og þrjátíu, sem er full ferð. Þetta þýðir, að allmikill tími fer til spillis, því undir þessum kringumstæð- um munu líða fullar þrjár klukkustundir áður en togarinn kemur á slysstaðinn. Þriggja klukkustunda bið getur orðið ör- lagarík, er skip hefur rekizt á ísjaka. Það er ekk ólíklegt, að skemmri tími ráði úr- slitum, enda þótt Hans Hedtoft sé sérstak- lega byggður til íhafsferða og sé því útbú- inn einskonar brynvörn gegn ísnum. o O o Auk Johannes Krúss, sem er næstur Hans Hedtoft, taka fleiri skip þátt í leit- inni; Jreirra á meðal eru danska flutninga- skipið „Umanak“, Jaýzka gæzluskpið „Po- seidon“, ameríska skipið „Campell“, sem fyrr er getið, danska gæzluskipið „Teist- en“ og danska flutningaskipið „H. J. Rink.“ Frá Nýfundanlandi leggja nú af stað amerískar leitarflugvélar. Síðar sögðu flugmennirnir svo frá: „Klukkustund eftir klukkustund störð- um við á rísandi og hnígandi öldurnar, þar sem skipið hafði horfið. Við fundum enga björgunarbáta. Við sáum bara ísjaka. Glitrandi, hvítblár ís, óhugnanlegir ís- klettar á ólgandi hafinu. Það fór hrollur um okkur í hvert sinn sem við litum þessa ferlegu jaka. Var það Jressi? Eða var það hinn, sem réði niðurlögum níutíu og fimm manns?“ Þeir fljúga aftur til Nýfundnalands, án þess að leitin bæri nokkurn árangur. Þeir taka eldsneyti í flýti og halda svo af stað á nýjan leik. En öll leit að skipinu, bátum og mönn- um reynist árangurslaus. Auk þess hindrar þokan alla leit í námunda við Hvarf.

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.