Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 33

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 33
Nýtt S O S 33 sjómaður, sem nokkru sinni hefur verið á skip skráður, en það varð líka mín fyrsta og síðasta ferð sem sjómaður. í SKIPALEST UM ERMARSUND. Fyrsti áfangastaður á ferð okkar var Sunderland í Englandi, þar sem við átt- um að lesta kol, og þaðan áttum við að halda til Portúgal, sem var þátttakandi í fyrri heimsstyrjöldinni við hlið banda- manna. En Portúgal kom ég aldrei til með að sjá. Við sluppum yfir Norðursjóinn án þess að nokkuð alvarlegt kæmi fyrir og tókum kolin um borð í Sunderland. Þar fékk ég nokkurra daga kærkomna hvíld til að jafna mig eftir ferðina yfir Norður- sjóinn, en á þeirri leið var ég hræðilega sjóveikur. Frá Sunderland fórum við suð- ur með austurströnd Englands, og þegar við komum suður í Ermarsundið vorum við teknir í skipalest, sem var í fylgd með enskum herskipum. Þjóðverjar höfðu þá fyrir alvöru aukið kafbátahernaðinn, og hættan var þar alltaf yfirvofandi. Þetta var því ferð, þar sem hvert augnablik var yfirspennt. Þar við bættist að alla leiðina geisaði stormur. Stöðugt urðum við að vera á verði fyrir kafbátunum, sem alltaf öðru hverju komu tilkynningar um, og stundum kom það fyrir, að til orustu kom milli skipa bandamanna og Þjóðverja nálægt skipalestinni. En brátt var Ermar- sund að baki, og ekkert hafði hent okkur. UNDIRBÚNINGUR UNDIR AÐFANGADAGSKVÖLD. Á aðfangadagskvöld vorum við komnir dálítið suður í Biskayaflóann. Það var hvasst og slæmur sjór, og þrátt fyrir það að hættan af kafbátunum var enn fyrir hendi, var skap áhafnarinnar léttara en það hafði verið undanfarna daga, því að allir hlökkuðu til aukaveitinganna, sem veittar voru á aðfangadagskvöld. í eldhús- inu hamaðist kokkurinn með potta og pönnur, og yndislegur ilmur streymdi það an út til okkar. Á mig hafði það samt sem áður engin áhrif. Eg var ennþá sjó- veikari en nokkru sinni áður á ferðinni, og bara orðið matur var mér hrein viður- styggð. Útkoman varð líka sú, að ég varð að fara í koju, og þar lá ég, þegar sænski matsveinninn eins og óttinn uppmálaður slengdi opnum dyrunum og hrópaði: —Út! út! og flýttu þér. Bölvaðir Þjóðverjahund- arnir eru að senda okkur tundurskeyti! ÞJÓÐVERJARNIR STÁLU JÓLAMATNUM OKKAR — í bátana, þannig hljóðaði skipunin frá Þjóðverjunum á kafbátnum, sem lá nokkrar skipslengdir frá okkur. Mykrið hafði nú lagzt yfir hafið, en samt gátum við greint stálófreskjuna á háum öldunum. Bátarnir voru gerðir í stand, og í aðeins nauðsynlegustu klæðum fórum við í þá til þess að róa burt frá „Danskborg", sem við vissum, að eftir skamma stund lægi á hafsbotni. Áður en Þjóðverjarnir bjuggust til að sökkva „Danskborg", fóru þeir þó fyrst um borð, og þegar þeir svo komu frá borði, sáum við, að þeir tóku með sér allan hinn indislega jólamat okkar og fluttu hann með sér yfir í kafbátinn. Þess- ir viðburðaríku atburðir höfðu algjörlega rekið sjóveiki mína á flótta, og á þessu augnabliki hefði ég vissulega getað étið heila önd, hefði ég átt þess kost. Að fáum mínútum liðnum var „Danskborg" ekki

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.