Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Blaðsíða 34

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Blaðsíða 34
34 Nýtt S O S sjáanleg. Skipið lá nú á hafsbotni ásamt farmi sínum. Um það bil samtímis og þetta skeði, kom annað danskt skip í ljós í flóanum, Það hlaut sömu örlög og „Danskborg", en lagðist á hliðina og flaut þannig tals- verðan tíma, og það varð til þess, að nokkrir daskir sjómenn létu þar líf sitt. KÚLURNAR SUNGU YFIF HÖFÐUM OKKAR. En allt í einu skeði dálítið óvænt, Enskt herskip kom nú í Ijós. Það hafði séð hvað um var að vera og hóf nú skothríð á kaf- bátinn, án þess þó að hitta hann. Kafbáturinn var. ekki viðbúinn, og nú hófst hraður undirbúningur að því að kafa, en við þær aðgerðir braut hann einn björgunarbát hins danska skipsins, sem ekki var kominn nógu langt frá skipinu. Við það drukknuðu tveir danskir sjómenn. Hinir af áhöfn bátsins svntu um í sjón- um, en að lokum heppnaðist að ná þeim inn í hina biörs'unarbátana. Lengi eftir að kafbáturinn var kominn í kaf, hélt enska herskinið áfram skothríðinni á þann stað á hafinu, þar sem kafþáturinn hafði horfið. Fallbvssukúlurnar hvinu yfir höfð- um okkar os féllu niður á milli björg- unarbátanna. en það var mikil mildi að þær sköðuðn hvorki þátana eða neinn af áhöfnnm beirra. Fn það var ekki nota- legt meðan á því stóð. BJÖRGUN. Um kvöldið os nóttina bjargaði her- skipið brezka öllum skipbrotsmönnum, og við fengum hina beztu umönnun. En síð- an hélt skipið áfram leitinni að kafbátn- um, og eftir því sem ég bezt komst að, hepnaðist að finna hann og koma honum fyrir kattarnef. Þegar því var lokið hélt herskipið til Plymouth með sjómennina — um 50 manns. Okkur var komið fyrir á sjómannaheimili, og fengum mat og föt Við fengum einnig peninga, og það voru konunglegir dagar meðan við dvöldum í Plymouth, en þeir tóku nú enda. Við vorum sendir til Hull, þar sem við geng- um um borð í danska skipið „la Cour“, sem flutti okkur til Danmerkur í góðu yfirlæti, en þetta aðfangadagskvöld stend- ur mér alltaf ljóslifandi fyrir sjónum til æviloka, segir frásögumaður að lokuin. Á þessu óri eru komin út fyrir utan þetta hefti, ótta hefti og er efni þeirra sem hér segir: 1. Að lokum bíður Gólginn. — Árekstur ó Atlantshafi. — SOS og loftskeytatæk- in. 2. Ketilsprenging. — Flugvélagildran. — Hræðilegur atburður. 3. Kraftaverkið ó Vatnajökli (Geysis-slysið) 4. Á íslandsmiðum. — í sjóvarhóska. 5. Innilokaður í skipsflaki. — Á íslands- miðum (niðurlag). — Einn ó bóti. 6. Nauðlending ó hafinu. — Heljarslóðir. 7. Skip í fórviðri. — Heljarslóðir (niður- lag). 8. Pamir-slysið 1957. — SOS — við sökkv- um. Heftin fóst öil hjé afgreiðslunni. Ritstjóri og ábyTgðarmaður: Gunnar Sigurmundsson. Afgreiðsla: Brimhólabraut 24 Vestmannaeyjum. — í Reykjavík: Óðinsgötu 17A. Sfmi 14674. — Prentað í Prentsmiðjunni Eyrtin h. f.

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.