Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 36
Þessi mynd sýnir Grænlandsfarið Hans Hedtoft leggja af stað frá Kaup-
mannahöfn í fyrstu og síðustu för sína til Grænlands. Skipið fórst undan
Hvarfi á Grænlandi 30. janúar s. 1. Hans Hedtoft var nýtízku skip og
átti að vera búinn fullkomnustu öryggistækjum, sem nauðsynleg eru
skipum, er sigla á hinum viðsjárverðu leiðum Norður-íshafsins. Skipið
var meðal annars búið ratsjá til þess að sjá hluti á yfirborði sjávar, berg-
máls-dýptarmæli, sjláfvirku miðunartæki og fjarstýritækjum. Skipið var
með þrjá björgunarbáta, er hver tók 25 manns, björgunarbát með hreyfli
og fjóra gúmmíbjörgunarbáta, sem blása sig út sjlfkrafa, er þeir snerta
sjóinn. — í skipinu voru sex vatnsþétt skilrúm. Það átti því ekki að
geta sokkið þótt leki kæmi að því. Ennfremur var stefni og kynnungar
Hans Hedtoft með stálbrynju til varnar gegn íshættunni. Hann átti, sam-
kvæmt vottorði skipasmíðastöðvarinnar, að vera svo örugglega búinn til
íshafsferða, að honum mundi ekki stafa liætta af jafnvel hinum stærstu
ísjökum. — Botn skipsins var tvöfaldur stálbotn. Hann var talinn eitt
fullkomnasta skip sinnar tegundar og flokkun hans samkvæmt því. —
En þrátt fyrir allan þennan útbúnað fórst skipið við Hvarf með 95 manns
innanborðs. Og ekkert hefur af skipinu fundizt, stórt eða smátt, nema
bjarghringir tveir, sem ráku hér við Suðurland s. 1. haust, eins og sagt
er frá í þessu hefti.