Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 21

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Side 21
Nýtt S O S 21 rólegur. Hann stingur sér undir sjóina þegar þeir ríða yfir, en andar djúpt þess á milli. Fyrir bragðið örmagnast hann ekki. En hvað um Redlingshöfer? Hann ber enn lengra undan og hróp hans og ótta- kennd reynir mjög á kraftana. Hann er að því kominn að sökkva. Það dylst engum um borð. En Voigt er þetta einnig ljóst. Án þess að hyggja að eigin hættu syndir hann til hans og hann fær honum í hendur björg- unarhringinn, sem var tengdur fastur við togarann. „Náið honum inn!“ hrópar fyrsti stýri- maður. Skipverjar draga Redlingshöfer að borði og ná honum inn fyrir borðstokkinn. Það má ekki tæpara standa, hann var að því kominn að drukkna. En Voigt syndir, berst hraustlega við grængolandi öldumar í ísköldum sjón- um. Hann hefur nú ekkert samband leng- ur við sitt skip. En Sierk skipstjóri er staðráðinn í, að þessum hrausta sjómanni skuli bjargað,, honum, sem mat meira að bjarga máttar- minni og eldri félaga sínum og fékk hon- um í hendur það öryggistæki, er hann sjálfur gat borgið lífi sínu með. Sierck skipstjóri tekur stjórn skipsins í sínar hendur og hann leggur snilldarlega að, þar sem Voigt berst um í öldurótinu. Og Voigt nær taki á vörpunni, sem enn hangir utanborðs. Og það heppnast að rífa hann úr dauð- ans greipum. Það er mjög svo dregið af Redlingshöf- er, að ekki mátti á milli sjá um líf hans, en með beztu aðhlynningu, sem kostur var undir þesum kringumstæðum, hjarn- aði liann við og náði sér til fulls. En Voigt slapp úr þessu lífshættulega ævintýri án þess að láta nokkuð á sjá. k.

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.