Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 30

Nýtt S.O.S. - 01.09.1959, Síða 30
30 Nýtt S. O. S. eftir var urðu þrír tundurspillar að sjá um, sem komið höfðu á vettvang. Síðasti báturinn, sem farþegunum var bjargað úr var 14A með 105 manns um borð. Klukkan var tíu um morguninn er tundurspillirinn Electra sigldi að honum. Copland fyrstistýrimaður, sem hafði stjórnað 14A, var boðinnn velkominn f brúnni af skipherranum á Electra. Meðan skipin skiptust á merkjum til að komast að raun um, hve margra væri saknað, gekk hann undir þiljur. Einn af þeim fyrstu, sem hann hitti var skipslæknirinn á Ath- enia, Sharman, sem hafði um nóttina ver- ið í bát 12A. „Gekk yður vel að koma sjúklingnum yðar frá borði?“ spurði Copland . „Eg veit það ekki,“ svaraði læknirinn. Við svarið kom áhyggjusvipur á andlit stýrimanns. Hann gat ekki ásakað læknir- inn, bví hann var ekki regluleeur meðlim- ur áhafnarinnar, og hafði sennilega aðeins hegðað sér eins og honum var skipið. En hvar var kanadíska frúin, Rose Griff- in, sem hafði fallið niður stiea og var bor- in meðvitundarlaus inn í sjúkraherbergið, stuttu eftir að Athenia lagði af stað frá Glasgow? Það tók Copland ekki langan tíma að finna það út. Eftir flaggmerkjum fékk hann að vita, að hún var ekki um borð í neinu skipanna. Hún hlaut því að vera enn um borð í Athenia. Lá í sjúkrarúmi bak við læstar dyr. Var gleymd. Copland snéri sér að Harvey bátsmanni og sagði: „Reynið að ná í sjálfboðaliða!" Bátsmaðurinn, sem skildi um hvað var að ræða, flýtti sér niður og kom stuttu síðar og tilkynnti, að hann og hásetinn McLeod væru reiðubúnir að fara yfir í Athenia. Copland þakkaði honum og gekk svo á stjórnpall og setti skipherra tundur- spillisins inn í málið. Kapteinn S. A. Buss var reyndur sjó- maður, og honum var ljóst, að það að stöðva tundurspilli lengi á þessum slóðum gat þýtt tundurskeyti í skipið. „Þér verðið að athuga, að ég er með nær 600 manns um borð, og að ég get ekki sett líf þeirra í hættu til að bjarga einu,“ sagði hann. Copland skildi hann, en gafst ekki upp. „Nú jæja, ef þér ekki viljið setja bát á flot fyrir mig, þá setjið mig í það minnsta í einn af tómu bátunum okkar.“ Buss kapteinn hikaði. „Hvað myndi fólk hugsa um mig í Glasgow, ef ég skildi þessa konu eftir um borð? liélt Copland áfram, og að lokum lét Buss undan. Bát var sveiflað út og Copland fyrsti- stýrimaður, Harvey bátsmaður, McLeod háseti og sex menn af áhöfn Electra fóru upp í hann. Tundurspillirinn sigldi eins nálægt Athenia og hann þorði, og nam staðar um þrjú hundruð metra frá skipinu. Hér var báturinn sjósettur. f Ijómandi morgunsólinni virtist það óskiljanlegt, að Athenia væri virkilega að sökkva. Það var sýnilegt, að skipið hafði verið yfirgefið fyrirvaralaust. Kaðalstigar og kaðlar héngu hvarvetna niður með síðunum, eins og jólatrésskraut. En að frátöldum afturhlut- anum, sem lá djúpt, virtist skipið stöðugt vera sjófært. Róðrarbáturinn rakst í háa stálsíðuna, og mennirnir frá Athenia klifruðu um borð eftir kaðalstiga, og að vörmu spori stóðu þeir á þilfarinu á sínu eigin skipi. Copland fyrstistýrimaður, sem var þraut- reyndur sjómaður, sá strax, að það var sorglega stutt til endalokanna, og þeir iirðu að að vera snöggir í snúningum., því

x

Nýtt S.O.S.

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.