Nýtt S.O.S. - 01.02.1960, Page 17

Nýtt S.O.S. - 01.02.1960, Page 17
Þetta var ensk njósnaflugvél, og þær fljúga þúsundir mílna á haf út. Þessi flugvél stefnir beint á kafbátinn. Þeir hafa þá komið auga á hann í radartækinu. Wiebe rífur upp brúarhlerann. Á næsta augnabliki er sem báturinn vakni af svefni. Hver maður fer á sinn stað. Allir eru tilbúnir að gera skyldu sína. Síðan kemur skipun um köfun. „Allir menn á sína „köfunarstöð"! hljómar ákveðið um allan kafbát- inn. Hávaðinn í dieselvélinni á bakborða deyr út og niðurinn í köfunarvél- unum tekur við. „Kafa!“ Aftur heyrist klukknahringing og á næsta augnabliki virðist báturinn standa upp á endann. Með miklum hraða heldur nú U — 178 niður í djúpið. Það er í bili öruggasti staðurinn og nú ríður á, að sem mest vatn verði á milli hans og óvinarins uppi í loftinu. Stjórnin á bátnum er stórkostlega örugg, og svitinn rennur af öllum í vélarúminu. Allt í einu kom Striibe auga á það, sem hlaut að ske, þegar báturinn stendur svona upp á endann. Bullan losnar, en 2 menn reyna sem þeir geta að halda henni fastri, en það dugar ekki til. Annar maðurinn sleppir takinu. Hann hefur orðið á milli veggjarins og bullunnar. Augun ranghvolfast í höfði hans og hnén verða máttlaus. Hinn hamast sem mest hann má, til að reyna að ná valdi á bullunni, það er eins og augun séu að springa út úr höfðinu og æðarnar eru þrútnar. En þyngd bullunnar er mikil, sveiflurnar stórar og erfitt að nú valdi yfir þeim. „Brjóstkassinn!“ hugsar Strube með sér. „Hún malar í honum rif- beinin." Strúbe er nú kominn á staðinn þar sem hættan er mest. Hann reynir að hjálpa mönnunum, en sér fljótt, að það er ekki til neins. Bullan getur á hverju augnabliki brotið vélina. En allt í einu stöðvast vélarnar. U — 178 liggur láréttur og kyrr. Þessu sannkallaða afreksverki er lokið — um stund. 17 Nýtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.