Sagnir - 01.06.2006, Side 9
Mikilvægt er að það komi fram að ég er ekki að segja að íslendingar
hafi aldrei beygt sig undir norsku krúnuna. Það sem ég er að segja er
að á fimmtándu öld bjuggu íslendingar til Gamla sáltmála,, skjalið sem
við höfum undir höndum núna. Að mínu mati endurspegla þessi skjöl
- ég nota héma fleirtöluna af því að það þetta eru nokkuð margir textar
sem allir em kenndir við Gamla sáttmála - ekki um hvað var samið
milli íslendinga og Noregskonungs á þrettándu öld, heldur era þau öllu
heldur vitnisburður um áhyggjur og óskir íslendinga á fimmtándu öld.
Þessi skjöl komu skyndilega fram á sjónarsviðið á fimmtándu öld.
Annars staðar hefur verið skrifað að með þessum orðum mínum sýni
ég fram á skilningsleysi mitt á þróun íslenskrar handritaffamleiðslu.
Reyndin er þó sú að það að þau birtast öll í einu á fimmtándu öld er ekki
eiginleg niðurstaða mín. Það er einungis útgangspunktur skrifa minna.
Þessi skyndilega birting á fimmtándu öld er fyrirbæri i sagnaritun sem
er þess virði að rannsaka. Margir lagatextar era til frá fjórtándu öld
og búast mætti við að í einhverjum þeirra kæmu þessir samningar
fram. Einnig er sjálfsagt að ætlast til þess að eftir einhvem tíma hefðu
þessi réttindi og ábyrgðir birst í Jónsbók og réttarbótunum. En eins og
ég sagði þá era þetta era ekki rök sem gætu staðið ein og sér. Fleiri
sönnunargögn eru til sem ásamt þessum rökum og skorti á mótrökum
era nógu sterk til þess að styðja kenningu mína. Ég held að sú staðreynd
að textar samninganna endurspegla sögulegar og menningarlegar
aðstæður á fimmtándu öld, frekar en aðstæður á þrettándu öld, sé mjög
sterkt sönnunargagn til stuðnings kenningu minni. Annað sönnunargagn
er sú staðreynd að það era margar tímaskekkjur í texta samninganna
sem gera það ómögulegt að tímasetja þá sem skrifaða árin 1262-1264
eða jafnvel 1302, eins og stungið hefúr verið upp á. Það er því til safn
sönnunargagna sem styðja skoðun mína.
Hvað leiddiþig inn á þessa braut rannsókna?
Árið 2001 var ég að endurskrifa kaflann sem ég minntist á áöan (kafli
4 í bók minni), um íslenskan hugsunarhátt á þeim tíma sem Egils saga
var skrifuð. Ég las síðan í bók Kirsten Hastrap (Island of Anthropology)
að samningamir væra skráðir í yngri handritum og fór til þess að athuga
þessar upplýsingar í íslenzku fornbréfasafni. Þannig byijaði rannsókn
mín á þessum samningum.
Hvað varð tilþess að þú hélst þennan fyrirlestur um Gamla Sáttmála
i Háskóla íslands?
Mér var boðið til íslands til þess að halda fyrirlesturinn. Boðið var
mikill heiður fyrir mig. Ég held það hafi verið Már Jónsson, sem þekkti
til starfa minna, sem hafi átt hugmyndina að því. Hann hefúr verið mjög
áhugasamur um starf mitt og ég er mjög þakklát honum fyrir allan
hans stuðning. Ég held líka að umræðuefnið, Gamli sáttmáli, sé mjög
mikilvægt íslendingum, sem er sú þjóð sem er meðvituðust um sögu
sína sem ég hef kynnst.
Hvernigfannst þér viðtökurnar á kenningu þinni vera meóal íslenskra
fræðimanna?
Mér var tekið mjög vel verð ég að segja. Auðvitað vora ekki allir
sammála mér en allir vora mjög opnir fyrir umræóum um þetta efni og
slík framkoma er ómetanlegt framlag til fJæðimennskunnar.
Heldur þú að íslenskir sagnfrœðingar eigi ef til vill enn þann dag í
dag i erfiðleikum með að Jjalla hlutlaust um mál eins ogþetta?
Mér væri illa við að halda það. Eins og Carlo Ginzburg segir þá
er hugmyndin um sönnun og sannleika óijúfanlega bundin iðn
sagnfræðingsins. Það myndi vera hafið yfir allar spumingar um
þjóðemi.
Getur þú sagt okkur eitthvað um bókina sem verður gefin út hér á
næstunni? Verður til dæmis Jjallað ítarlegar um þessa kenningu í
bókinni?
aðgengilegar stærri lesendahópi. í bókinni verður fjallað um atriði sem
vora ekki í kaflanum, þar sem þessi kafli var einungis hluti af stærri
röksemdafærslu. Ég vonast til þess að fram komi ýmis smáatriði sem
áður var einungis að finna í neðanmálsgreinum. Ég vonast einnig til
þess að lífga upp á umræðuna með því að birta einnig ýmsar af þeim
skoðunum sem ég heyrði um hugmyndir mínar á meðan ég var á íslandi
eða vora skrifaðar um þær seinna.
Hvað er næst á dagskránni i rannsóknum þíniim?
Ég vona innilega að ég geti haldið áfram að vinna með texta Gamla
sáttmála og önnur skyld skjöl. Aðaltakmark mitt með þessu verkefni er
að skilja framleiðslu og útbreiðslu þessara skjala og setja framleiðslu
þeirra í samband við pólitískt ferli í Skandinavíu. Stór hluti þessarar
rannsóknar mun snúast um að greina sagnaritun í textum frá ámýöld
sem skrifaðir vora á íslandi og í Noregi og hvemig þeir hafa haft áhrif
á skoðanir okkar á miðaldaheimildum. (Ég fjalla einnig um þessar
spumingar í 1. kafla í fyrstu bók minni líka).
Hverju öðru hefurþú verið að vinna aó sent þú vilt segja okkur frá?
Ég hef á minni könnu verkefhi sem löngu er orðið tímabært sem felst
í því að þýða íslenskar miðaldabókmenntir yfir á portúgölsku. Þótt
brasilískur almenningur hafi raunverulegan áhuga á skandinavískri
menningu, bókmenntum og goðsögnum, era ekki til neinar aðgengilegar
portúgalskar þýðingar á íslendingasögunum. Ég er byrjuð á Egils sögu
og Snorra Eddu en hef ekki haft nægilegan tíma til að halda áfram. Ég
hef einnig verið að gæla við þá hugmynd að skrifa um víkingaöldina
fyrir breiðari hóp fólks í Brasilíu.
Nú Itefurþú koinið til íslands áður sem nemandi. Hefur margt breyst
aó þínu mati siðan þá?
Fyrsta skiptið sem ég kom til íslands var árið 1992. Ég var vön að labba
frá Hafnarfirði á sérstakan stað á Álftanesinu. Þegar ég fór þangað í júní
2005 gat ég varla labbað út á Álftanesið af því búið var að setja upp
girðingu um mörg svæði í hrauninu og á öðram stöðum virtist landið
hafa blásið upp; það vora líka miklu fleiri hús. Ég vona að íslendingar
leyfi ekki ósnortinni náttúra landsins að hverfa. Ég hef ekki séð miklar
deilur á Islandi um vemdun ósnortinna svæða en ég hef ekki búið á
Islandi undanfarið þannig að það gæti verið að einhver slik umræða sé
í gangi. Ég vona það innilega.
Hvernig er ástandiö í Brasiliu núna?
Ég átti von, og á enn von, á miklu frá núverandi stjómvöldum Brasilíu.
Þetta era fyrstu stjómvöldin sem hafa raunveralega reynt að koma á
félagslegu réttlæti síðan lýðræði komst á á níunda áratugnum. Hægt er
að gera miklu meira og það er mikið um raunveraleg vandamál innan
stjómarinnar sem þarf að ráða bót á. Ég styð samt enn forsetann og
flokk hans og vonast eftir endurkjöri hans seinna á árinu.
ZA/Cyn tCasfcrá
Bls. 6. Hákon og Magnús sonur hans. Fengin af veraldarvefnum.
http://upload.wikimedia.Org/wikipedia/commons/7/72/
HakonThe01dAndSon-Flateyjarbok.jpg
Bókin á að verða útgáfa, íslensk útgáfa, af kafla úr fyrstu bók minni.
Eg vona að það muni gera kenningar mínar um Gamla sáttmála
^Sayrtir dOOé J