Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Síða 94

Sagnir - 01.06.2006, Síða 94
noos C*C6rj~eft tun J\éttin(Ta[jarátta sajníjnfineýbra á ifsíandi \irta jjörnscfóttir er fœddljjy. ffún fauff ’rcfi {sacjnfrœði frá frfffaustið 2005. Gay Pride ganga árið 2003. Þótt samkynhneigð hafi verið hluti mannlegrar breytni frá upphafi er það ekki fyrr en á allra síðustu áratugum sem samkynhneigð hefur verið viðurkennd og rædd opinberlega. Þó að Fom-Grikkir hafi vegsamað ástarsambönd karla og drengja og að hin virta gríska skáldkona Saffó hafi ort konum ástarljóð á eyjunni Lesbos hefur samkynhneigð gegnum nær alla mannkynssöguna verið litin homauga og lítið sem ekkert um hana rætt. Jafnréttisbarátta samkynhneigðra komst fyrst í fjölmiðla árið 1969 í Bandaríkjunum þegar Stonewall-uppþotin svokölluðu áttu sér stað á samnefndum bar fyrir samkynhneigða í New York. A útfarardegi Judy Garland komu margir samkynhneigðir saman á Stonewall til að minnast söngkonunnar. Lögregla hafði gert það að vana sínum að ráðast með jöfnu millibili inn á staðinn og handtaka þar menn eða ganga í skrokk á þeim fyrir það eitt að vera samkynhneigðir. Þetta kvöld, þann 27. júní 1969, þótti gestum Stonewall nóg komið og gerðu uppreisn gegn lögreglumönnunum sem hugðust ráðast inn á staðinn. Talsverðar óeirðir urðu við staðinn í kjölfarið og samkynhneigðir voru komnir í heimspressuna.1 Ekki var til orð yfir fyrirbærið samkynhneigð á íslensku fyrr en nýyrðið kynvilla birtist í Skirni árið 1922 í grein um nýjungar í læknisfræði." Fram eftir öldinni einkenndust þær litlu umræður og blaðaskrif sem þó fóru fram í samfélaginu af fordómum og vanþekkingu á samkynhneigð. Meðal annars segir í grein Mánudagsblaðsins frá árinu 1953: „Merkir læknar hér hafa upplýst blaðið um það, að veikgeðja unglingar geta orðið „homosexuals", ef þeirra er freistað á þessu sviði af eldri mönnum eða jafnöldrum sínum, sem tekið hafa „sjúkdóminn" beinlínis jafnframt kynþroska sínum og aldrei verið það sem kalla má „normal“.“3 Blaðið segist ekki vilja upplýsa um einstök atriði „sjúkdómsins", enda sé það á fæstra færi. I greininni er jafnframt varað við kynvillu og sagt að vitað sé til fjölda manna í samfélaginu sem séu kynvilltir. Astæða blaðaskrifana sé þó ekki „að ákæra neinn sérstakan mann eða stofnun, en aðeins undirstrika að til þeirra sést og um þá sé vitað."4 Þess ber þó að geta að Mánudagsblaðið fjallaði gjaman um menn og málefni í æsifréttastíl og þessi umræða rataði ekki inn á síður neinna dagblaða. Árið 1924 var maður í fyrsta og eina sinn dæmdur fyrir kynhneigð sína hér á landi þegar Guðmundur Sigurjónsson Hofdal var dæmdur í y2 ^Saynir 2006
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.