Sagnir


Sagnir - 01.06.2006, Page 110

Sagnir - 01.06.2006, Page 110
 ur um z%. arjcmcj ^Sajna veigamikinn sess í sögubókum og á söfnum vestan hafs og austan sem einbeita sér að þessum þætti mannkynssögunnar. Skemmtilegt er sömuleiðis að sjá hvemig höfundur hikar ekki við að setja efni greinarinnar í samhengi við samtímaatburði og málefni sem em ofarlega á baugi í dönskum stjómmálum. Greinin er pólitísk og höfimdur tekur skýra pólitíska afstöðu 4en það kemur ekki að sök enda er það gert af heiðarleika og hreinskilni (sjá t.d. neðanmálsgrein xxxvi). I ritstjóraspjalli sínu á síðu þrjú upplýsa umsjónarmenn Sagna að upphaflega hafi ætlunin verið að flestar greinamar byggðu á lokaverkefnum. Þegar á hólminn var komið urðu slíkar greinar hins vegar aðeins tvær talsins. Önnur þeirra er rannsókn Unnar Maríu Bergsveinsdóttur á lífshlaupi nærri þrjú hundmð einstaklinga úr Oddasókn í Rangárvallasýslu á seinni hluta nítjándu aldar, byggt á kirkjubókum, manntölum og öðmm gögnum. Það er ætíð vandaverk að skera langa ritgerð niður í stutta grein. Stundum freistast höfundar til að reyna að komast yfir allt efnið í stuttu máli í stað þess að takmarka sig við einstaka þætti. Rannsókn Unnar Maríu minnir helst á etnógrafíu mannfræðings um sögulegt viðfangsefni og hefur hún greinilega unnið geysimikla tölfræðivinnu í tengslum við verkefnið. Sú tölfræði styður í sumum tilvikum viðteknar hugmyndir um íslenskt samfélag nítjándu aldar en í öðmm tilvikum er um frávik að ræða. Ritdómari saknaði þess að höfundur kvæði skýrar upp úr með það hvort einstök frávik ættu sér staðbundnar skýringar eða hvort ástæða væri til að draga i efa hina viðteknu söguskoðun. eÍtífflaö á stcru Það væri synd að kalla grein Hildar Biering um illa meðferð á bömum á nítjándu öld upplífgandi. Herfilegar lýsingar úr dómsmálum tengdum vanrækslu á bömum frá byrjun nítjándu aldar annars vegar en miðbiki aldarinnar hins vegar bera uppi greinina ásamt yfirliti um þróun löggjafar. Fleiri dæmi og fjölbreyttari heimildir hefðu getað styrkt rökstuðning höfundar til muna. Ekki verður hjá því komist að hnýta í myndavalið við grein Hildar, en á síðu 62 má sjá flennistóra mynd (önnur tveggja sem greininni fylgja) af Austurstræti sem tekin er á að giska 1930. Tengingin við greinina er sú að yst á myndinni sést glitta í hús það sem áður hýsti landsyfirréttinn. Þetta er billegt. Gunnhildur Finnsdóttir og Orri Jóhannsson (sem einn manna fær föðumafn sitt ekki skráð í efnisyfirliti blaðsins) rita bæði greinar á sviði íslenskrar miðaldasögu. Grein Gunnhildar fjallar um nunnuklaustrin sem hér vom starfrækt á miðöldum en Orri rekur deilur fræðimanna um heimildagildi Oddaverjaþáttar. Greinamar em báðar þokkalega skrifaðar samantektir á því sem áður hefur verið ritað um efnið en bæta litlu við það. Embla Þórsdóttir fjallar um kristna hugmyndafræði og blóðhefnd á miðöldum. Leggur hún áherslu á mikilvægi hugmyndarinnar um stríðskonunginn Krist í samfélagi hefndarskyldu. Ljóst er að skýlaust bann boðorðanna tíu við drápum mátti sín lítils andspænis þeirri kvöð að hefna misgjörða með ofbeldi. Hitt er annað mál hvort herská ímynd guða og spámanna sé forsenda þess að ofbeldi þrífist í samfélagi? Þannig lifði blóðhefndin góðu lífi víða í Evrópu löngu eftir að krossfarahugmyndin um herkonunginn Jesú var liðin undir lok. Bjöm Jón Bragason á síðusm grein 25. árgangs Sagna og má sjá á henni fingraför íslands- og Norðurlandasögu II í umsjón Gísla Gunnarssonar. Bjöm Jón fjallar þar almennt um náttúmfarsskýringar í íslandssögu, áhrif þeirra, kosti og galla. Náttúmfarsskýringar vom lengi fyrirferðarmiklar í íslenskri sagnfræði og má í sumum tilvikum tengja góðar viðtökur þeirra við persónulegar vinsældir viðkomandi raunvísindamanna. Þegar nánar er skoðað kemur oft i ljós að hinar raunvísindalegu skýringar byggja talsvert á sagnfræðilegum ályktunum vísindamannanna. Grein Bjöms Jóns er fjörlega skrifuð um fullvíðtækt efni. Höfundur kynnir til sögunnar ólík sjónarmið og rekur þau samviskusamlega, en bætir litlu nýju við. jCcesifecjt rit Ritdómari getur ekki látið hjá líða að agnúast út í þá ákvörðun ritstjómar að merkja tilvísanir með litlum rómverskum stöfum í stað hefðbundinna tölustafa. Þetta merkingakerfi getur gengið í greinum með innan við tuttugu tilvísunum, en andspænis tölum á borð við lxix eða lxxviii fallast jafnvel velviljaðasta lesanda hendur. Þegar á heildina er litið getur ritstjóm 25. árgangs Sagna unað vel við sitt. Blaðið hefur að geyma ýmsar fróðlegar greinar og nokkrar allgóðar. Umbrotið er einfalt en stendur fyrir sínu. Fleiri myndir hefðu verið til bóta á stöku stað, en að mínu mati verða höfundar greina að bera talsverða ábyrgð á myndavali. Ekki er hægt að varpa ábyrgðina á þeim huta verksins alfarið yfir á ritstjómina. Rétt er að nota tækifærið til að óska aðstandendum Sagna til hamingju með glæsilega heimasíðu, þar sem unnt er að nálgast gömul eintök af þessu ágæta tímariti. c^Veð anm áfsqrein ar 1 Nokkurt er tííiðstætt (þ.e. stendur við hliðina á frumlagi, yfirleitt nafnorði) en nokkuð er sérstætt (þarf ekkert nafnorð sér við hlið. Dæmi Er nokkurt barn hér og Er nokkuð að? 2 Hér rekst á kyn orðanna - friðarsinnar em málfræðilega karlkyns en konur (augljóslega) kvenkyns. Þetta þótti mér skásta lausnin í stöðunni. 3 Greinin sjálf getur ekki gert neitt, heldur höfundur hennar. 4 Það er ekki venja að setja kommu á undan sk. Aðaltengingum, þ.e. og og en. (ekki nema t.d. innskotssetning sem endar þar á undan sé til staðar í setningunni, þá verður að afmarka hana með kommum. Astæðan er sú að litið er svo á að en og og jafngildi punkti. loS ^Sajnir zoo6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.