Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Qupperneq 1
Ritnefnd:
Guðmundur Sveinbjörnsson
Sveinn Kr. Guðmundsson
Sveinbjörn Oddsson
1. blað
3. órgangur f
r ARROÐINN
BLAÐ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAGS AKRANESS - ÁBYRGÐARM. SVEINBJÖRN ODDSSON
Menningarmál
Þótt hér sé ritað um menningarmál,
þá er þáð ekki fyrir það, að menning-
armál almennt séu sérmál nokkurs
flokks; allir íslenzkir stjórnmálaflokkar
hafa fullan vilja á því, að menning vor
sé sem blómlegust, skólar fullkomnir
og fræðslukerfið sem bezt. Þessu til
staðfestingar má nefna, að núna um
langt skeið hefur starfað milliþinga-
nefnd í skólamálum, sem unnið hefur
að því, að bæta og samræma fræðslu-
kerfi vort, og hafa allir flokkar átt
fulltrúa í þeirri nefnd. Ekki hefur ann-
að heyrzt, en samstarfið hafi verið hið
bezta í nefndinni, og að hver og einn
a£ nefndíarmönnunum hafi lagt sitt
bezta fram til þess, að árangurinn af
nefndarstarfinu mætti verða þjóðinni
til heilla.
í fyrravetur afgreiddi nefndin eftir-
greind frumvörp til ríkisstjórnarinnar:
A. Um skólakerfi og fræðsluskyldu,
B. um fræðslu barna,
C. um gagnfræðanám og
D. um menntaskóla.
Þessi frumvörp liggja nú fyrir Al-
þingi, og verður ekki frekar rætt um
þau hér, en það sem hér hefur verið
nefnt ætti að nægja til þess, að hver
og einn geti gert sér grein fyrir því, að
ef eitthvert flokksbrot álítur eða túlk-
ar, að vilji fyrir bættum menningar
skilyrðum sé sérstæður fyrir stefnu
eins ákveðins flokks að þá er túlkun
þess manns eða flokks, er þar fer með
mál, sprottin af skUningsleysi eða af
vanþekkingu á íslenzkum þjóðmálum.
Hitt er svo annað mál, að enda þótt
allir flokkar hafi fullan vilja fyrir bætt-
um menningarskilyrðum, getur þá
greint á um það, hvemig og hvenær
eigi að framkvæma eitt og annað, er
að menningarmálum lýtur.
En það sem mestu máli skiptir, um
það hvort einn pólitískur flokkur geti
orðið bæ sínum til heilla í menningar-
málum sem öðrum málum, er það, að
hann á hverjum tíma hafi þeim mönn-
um á að skipa, sem hafa næga skipu-
lagsgáfu, framtak og hagsýni, til þess
að haga tekjuöflun og framkvæmdum
bæjarins á sem heppilegastan og hyggi-
legastan máta.
Skólamál á Akranesi.
Nú áður en gengið er til bæjarstjórn-
arkosninga hér, teljum við Alþýðu-
flokksmenn rétt að gera stuttlega grein
fyrir ástandinu í skólamálum hér, og
um leið að kynna fyrir kjósendum
hvaða leiðir við teljum heppilegastar
til úrbóta.
Ollum Akurnesingum er ljóst, að
brýn nauðsyn er á, að reisa næg og
vönduð skólahús hið allra fyrsta, þar
er núverandi skólahús eru ekki við-
unandi. I greinargerð, er fylgir frum-
varpi til laga um gagnfræðanám, sem
nú er fyrir Alþingi, stendur á þessa
leið um húsnæði skóla á Akranesi:
Gagnfræðaskólahús er ekkert til. Hús
barnaskólans er orðið of lítið en mundi
nægja fyrir gagnfræðaskóla, ef nýtt
barnaskólahús yrði reist.
Þessi greinargerð mun ekki vera
rædd hér nú, en vikið beint að málun-
um eins og þau liggja fyrir.
Barnaskólinn og bamafræðslan:
Samkvæmt þeim undirbúningi, sem
fram hefur farið, á bygging bamaskóla
að hefjast á þessu ári. Akveðin var lóð
undir barnaskóla og leikvöU á síðast-
liðnu sumri, og nú er verið að vinna
að teikningu barnaskólans. Það mál er
því komið á það stig, að áfram verður
haldið, og fullra úrbóta má vænta bráð-
lega.
Fulltrúar Alþýðuflokksins telja
nauðsynlegt, að hvetja og styrkja kenn-
ara skólans á hverjum tíma til að afla
sér viðbótarnáms, og þá sérstakJega að
sækja námsskeið í ýmsum sérgreinum,
svo sem teiknikennslu, hentugum
vinnubrögðum barna o. fl.
Kennararnir mundu án efa þakka og
meta slíka viðurkenningu, og kostnað-
araukinn mundi vera endurgoldinn í
betri árangri af skólastarfinu.
Heilsufar og líkamleg vellíðan barn-
anna er eitt af frumskilyrðum fyrir
því, að börnin geti haft full not af því,
sem fyrir þau er lagt, hverjum barna-
skóla ber því að annast heilsuvemd
smáborgaranna eftir því sem föng eru
á og þekking stendur til á hverjum
tíma. Ljósböð er ein af þeim heilsu-
Undum, sem talin er þýðingarmikil til
að vernda og viðhalda heilsu barna og
unglinga; því er þörf á, að í hinum
nýja bamaskóla verði ljósastofa og
ljósatæki, og mun verða unnið að þvi.
Gagnfræðanám:
Til þess að gagnfræðanámið geti bor-
ið sem beztan árangur er tvennt nauð-
synlegt: að húsnæði, áhöld, leikvangur
og allur aðbúnaður skólans sé hinn