Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Page 7

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness. - 01.01.1946, Page 7
ARROÐINN 7 ingu, að' líta á það með lítilsvirðingu að viðlbúnaður sé hafður til þess að deýfa hörmungarnar ef til loftárása kæmi? Varla hafa þeir í Rússlandi van- rækt viðbúnað, enda sýndi vörn þeirra að þeir stóðu vel á verði, einnig gegn loftárásum, en það horfir víst öðruvísi við augum þeirra kommúnista á Akra- nesi. A Akranesi var það ekki atriði til að hugsa um, þó Þjóðverjar kæmu og vörpuðu sprengjum sínum á Akranes- bæ, og engin varnarviðleitni væri fyrir hendi, ja, um það er kommúnistum al- veg sama. Byssuleyfi, sem vöm gegn fugladrápi. Kommúnistum „tekur það ekki sárt að sjá saklausu fuglana smáu“, skotna hel- skotum, flögra á haf út, og líða þar kvaláfullar dauðastundir við hungur og helsæri. Málleysingjarnir, um þá er komm- únistum alveg sama. Varnir gegn éleitni rottanna, gegn loftárásum é stríðstíma, gegn sporti, sem fer í þá átt að kvelja til dauða börn náttúrunnar. Allt svoleiðis er létt- meti á mælikvarða þeirra kommúnista. Garðyrkja hefir verið stór liður í af- komu Akurnesinga um langan aldur. Nú er bærinn að byggjast yfir garð- löndin, svo ef garðyrkjan á ekki að leggjast niður, verður að nema ný lönd ti'l garðyrkju. Hvort það er gert af skyn- semi og þekking'U, það er kommúnist- um alveg sama um. Að hafa komið fram með tillögu um að fangahús yrði byggt við sama hús og gagnfræðaskólinn er í. Ekki er á- stæða til að halda því fram að tillaga þessi væri heppileg, enda fram borin 'til þess að h'leypa hita í málið og á þann hátt að skapa því framgang. En á það skal þó bent, að fangahús er því að eins nauðsynlegt, að ómennskan eigi of djúpar rætur í framgangi fólksins. Gagnfræðaskóli á að uppræta ómenn- ingu og drykkjuskap. Réttur spegill drykkjuskaparins sést í fangahúsinu við tækifæri þegar drukknir menn eru teknir úr umferð: Ég spyr: Er þá alveg óheppilegt að sýna æskunni í þann spegil, samhliða leiðbeiningum og út- skýringum kennara? Kommúnistinn í skólastjórastöðu gagnfræðaskólans mætti gjarnan svara þessu. Um fleira í áminnstri grein hirði ég ekki að ræða í þetta sinn, en bendi á að síðustu þeim sem um þessi mál Húsnæðismálið Á undanförnum árum hefur Alþýðu- flokkurinn hér á landi haft forgöngu í flestum þeim málum sem miðað hafa að réttarbótum; bættri afkomu og að- búð alþýðufólks í landinu. Eimi þáttur- inn í baráttu þessa stjórnmálaflokks og hann ekki ómerkur, er lögin um verka- mannabústaðina. Það er óhætt að full- yrða að fyrir þessa mikilsverðu lög- gjöf á nú margur fátækur verkamað- urinn því láni að fagna að meiga dvelja með fjölskyldu sinni í eigin húsi, sem annars ætti þess engan kost. Hér á Akranesi hefur verið unnið að byggingu verkamannabústaða undan- farin 2 ár og byggðar 20 íbúðir. Þetta er fyrst og fremst verk fulltrúa jafnaðar- manna I bæjarstjórn Akraness. Má segja að þeir hafi leyst af hendi mikið starf Við framkvæmd þessa máls og unnið með dugnaði og fyrirhyggju. Ekkert hefur verið til sparað svo þessar fbúðir yrðu sem vandaðastar, bæði hvað snert- ir efni og vinnu, og er það auðvitað höfuðkostur. Auk þess sem íbúðirnar eru mjög hægar fyrir húsmóðurina, þar sem hvorki þarf að ganga stiga eða tröppur, þá er hver íbúð' ásamt til- heyrandi lóð algjörlega út af fyrdr sig. Alþýðuflokkurinn vill koma í veg fyrir húsnæðisleysi, sem er þjóðanböl. Hann hefur alltaf og mun framvegis stuðla að því að hver einasta fjölskylda í Iand- inu eigi ráð á sínu húsnæði en þurfi ekki að búa við öryggisleysi og stund- hugsa, að bera saman greinargerð okkar fulltrúa Alþýðuflokksins, og neyðar- ópsgreinina í Dögun. Þá sjá menn hvernig á málunum er haldið. Þrátt fyrir augljósan vilja og alla hugsanlega viðleitni til þess að benda á lítil af- köst, ófrjóa hugsun og ranga fram- komu, kemst öll gagnrýnin fyrir í tveggja dálka grein í svo litlu blaði sem Dögun er; er þó engu orði minnst á þau mál, sem kommúnistar sjáanlega geta ekki gagnrýnt, enda passar það ekki í kramið; innrætið segir alltaf til sín. Trúarjátningin þeirra kommúnistanna er ekki nema á einn veg: Svívirðdngar og simdrung, málefnaþjófnaður og lýgi. Svbj. Oddsson. um neyðarkjör leigjandans. Það sýnir m. a. hin mikilsverða breyting á lög- um um verkamannabús'taði sem lágu fyrir Alþingi nú í haust, og var flutt af fulltrúa Alþýðuflokksins. Þessi breyting nær vonandi fram að ganga og mun þá gjöra iánskjör stórum gengilegri en þau hafa áður verið. Það eru því mikil líkindi til þess að bygg- ing verkamannabústaða, verði hafin í miklu stærri stíl, en áður héfur þekkzt hér á landi og mun óhætt að treysta því, að forustumenn Alþýðuflokksins hér 'í bæ munu ekki liggja á liði sínu, við framgang þessa máls á næstunni, og vinna að því að sem flestir fái notið þeirra hlunninda sem alþýðu landsins eru boðin með þessari réttarbót. H. J. Uppboð Það 'hefur löngum verið siður að bjóða upp vörur. Uppboðsvörur eru sém aðrar vörur misjafnar að gæðum og misjafnlega eftirsóttar. Uppboð á mönnum er heldur ekki óþekikt fyrirbrigði. — Áður fyrr var slíkt uppboð nefnt þrælasala, en það orð er ekki talið viðeigandi á mansali hjá menntuðum nútímaþjóðum. Það er stundum háft orð á því, að stjórnmálaflokkarnir séu að bjóða í þennan og þennan mann, og þá skyldi maður ætla, að eftir einhverju væri að sækja í þeirri persónu, enda þótt.slíkir eiginleikar að hafa sjálfan sig á upp- boði, geti ekki mælt með neinum manni, enda eru það ekki nema einstaka póli- tískir flö'kkar, sem hafa þann sið að kaupa menn á uppboði. Þótt ef til viR sé eitthvað verðmæti í mönnurn þeim, er sá orðrómur leikur um, að séu á uppboði, eru sumir þessara uppboðsmanna það aumkunar- verðir, að vera svo lítils virði í aug- um flestra manna, að fæstir vilja bjóða í þá. Þessir vesalingar verða stöðugt að ganga á milli og bjóða sig og bjóða, og svo þegar ékkert gengur, þá er ekki annað úrræði, en að bjóða sig með af- slætti.

x

Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árroðinn : blað Alþýðuflokksfélags Akraness.
https://timarit.is/publication/1031

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.