Árbók Reykjavíkurbæjar - jan. 1946, Síða 134
120
Hitaveitukerfið í Reykjavík.
Safnæöar Aðalæðar Bæjarkerfið Vatnsæðar Laugaveitu
Vídd Leiðslur m. Lokur stk. Leiðslur km. Lokur stk. Leiðslur m. Lokur stk.
leiffslna: %" 149'
1” — — — — 4692 151 341
l%" — — — — 5936 56 265
1%" — — — 42 4120 33 142
2" — — — — 5314 59 486
2%" — — — 46 4798 42 70
3" — — — — — — 720
4" 1005 23 — — 2512 23 455
6" 247 7 — — 2094 20 —
7" — - ; ■ — 743 — 2700
8" 70 i — 8 1220 10 —
10” 1024 2 — 6 2084 15 —
12” 305 3 : 8 2019 8 —
13" 700 — — — — — '
14" — — 30,6 26 — 4 —
16" — — — — 407 16 —
18" — — — — 240 1 —
Samtals . 3351 36 30,6 136 36179 438 5328
Aths.: Um vatnsveituna og hitaveitu frá Laugunum, sjá Árbók 1940, bls. 120. — Árið 1933,
6. júlí, samþykkti bæjarstjórn Reykjavikur samning um rétt til að rannsaka hitasvæðið á Reykj-
um og Reykjahvoli í Mosfellssveit. Samningurinn, sem veitti bæjarstjóm forkaupsrétt að hitarétt-
indum þar innan viss tíma, ef hún óskaði eftir að kaupa þau, var undirritaður 15. s. m. Bæjar-
stjóm samþykkti svo kaup á jarðréttindum þessarra jarða 22. jan. 1935 fyrir kr. 150 þús., afsal
dags. 22. júní s. á. — Á þessum og næstu ámm vom framkvæmdar rannsóknir á hitasvæðinu,
borað eftir heitu vatni og áætlanir um virkjun þess gerðar. 1 byrjun ársins 1937 var sá undir-
búningur kominn svo vel á veg, að talið var, að framkvæmdir á virkjun heita vatnsins, sem nú
var komið upp í 150 1/sek., gætu hafizt. Frumáætlun að virkjuninmi var lokið í okt. 1937. Áætlunina
gerðu verkfræðingar bæjarins. — Á árunum 1937 og 1938 leitaði þáverandi borgarstjóri, Pétur
Halldórsson, fyrir sér í Englandi og Svíþjóð um öflun á lánsfé til fyrirtækisins. Þrátt fyrir góð-
ar undirtektir fjármálamanna og að álit þeirra verkfræðinga (enska verkfræðingsins Mr. Ric-
hards og sænska verkfræðingsins hr. Tom Nordenson), sem leitað var til um áætlanir íslenzku
verkfræðinganna, staðfestu þær áætlanir, tókst ekki að afla lánsfjár í þessum löndum. — Sum-
arið 1938 vöknuðu hins vegar vonir um, að takast mætti að ná samkomulagi við danska verk-
fræðingafirmað Hajgaard & Schultz, sem á árunum 1935—37 byggði Sogsveituna fyrir bæinn,
um að taka að sér að koma upp hitaveitunni. — 1 ársbyrjun 1939 fór þáverandi bæjarverkfræðing-
ur, Valgeir Bjömsson, til Kaupm.haínar og vann að framkvæmd málsins við firmað. Málalok
urðu þau, að 28. apríl 1939 barst bæjarstjóm tilboð frá firmanu um að taka að sér verkið. Bauð
Handelsbanken í Khöfn að veita lán tií framkvæmdanna, ásamt firmanu. Bæjarstjórn samþykkti
að ganga að tilboðunum, og samningar voru undirritaðir í Khöfn 15. júní 1939. — Sumarið 1939
var unnið að uppdráttum og útboðslýsingum. Vann núverandi hitaveitustjóri, Helgi Sigurðsson,
m. a. að því hjá Hajgaard & Schultz í Khöfn, ásamt verkfræðingum firmans. Tilboða í efni var
leitað á Norðurlöndum, í Englandi, Þýzkalandi, Belgíu og Ameriku. Um þetta leyti brauzt heims-
styrjöldin út, og torveldaði ófriðurinn strax framkvæmdimar. Samningar tókust þó um kaup á
efni frá Norðurlöndum, Þýzkalandi, Englandi og Belgíu, eftir því, sem framkomin tilboð gáfu
tilefni til. Einn farmur af þessu efni náðist frá Khöfn áður en Danmörk var hemumin og sam-
göngur við meginland Evrópu tepptust að fullu og öllu. Itrekaðar tilraunir voru gerðar til að fá
imdanþágu um flutning efnisins, en þær tilraunir, sem horfðu allvænlega um skeið, fóm loks út
um þúfur. — Þegar sýnt var, að hið umsamda efni fengist ekki flutt til landsins, var þegar haf-
izt handa um útvegun efnis frá Englandi og Ameríku. Tókst loks að fá nauðsynlegt efni
til framkvæmdanna í Bandaríkjunum, og koma því til landsins, þrátt fyrir þá örðugleika, sem
af ófriðnum leiddi. — Verklegar framkvæmdir við byggingu hitaveitunnar frá Reykjum hófust
sumarið 1939 (í ág.), en var aftur hætt að mestu á árinu 1941, vegna vöntunar á efni. Fram-
kvæmdir hófust að nýju haustið 1942 (í nóv.), og haustið 1943 var verkið komið svo langt áleið-
is, að vatni var hleypt á fyrsta húsið (Listasafn Einars Jónssonar) 1. des. Um áramót var vatn
komið í ca. 1300 hús. Aðaltengingunum var lokið í byrjun maí 1944. Var þá búið að tengja alls
2100 hús. Síðan hefir húsunum smá fjölgað, og nú (des. 1945) eru 2850 hús, með 3375 miðstöðvar-
kerfum, í sambandi við hitaveituna frá Reykjum. Hitaþörf þessara húsa er 77 millj. hitaeining-
ar á klst. (kg.°/h). 1 sambandi við hitaveituna frá Laugunum eru auk þess um 70 hús. — Á
Reykjum hafa verið boraðar 38 holur, samtals 13103 m., eða 345 m. að meðaltali. Dýpsta holan
er 621 m. Unnið er nú að þvi að bora með tveimur borum. Mesta vatn, sem fengist hefir úr einni
holu, er 40 1/sek. — Magn heita vatnsins á hitasvæðinu á Reykjum er nú (árslok 1945) 210
1/sek. í frjálsu rennsli, en hefir verið aukið upp í 287 1/sek. með því að dæla úr borholunum.
Hiti vatnsins við dælustöð er 85° C. — Ef hagnýttur væri 35° hiti af vatnsmagninu yfir árið,
miðað við 250 1/sek. rennsli, samsvaraði sá hiti ca. 70 þús. tonnum af kolum, eða ca. 14 millj. kr.,
miðað við núverandi kolaverð. Við 50° hitanýtingu vatnsins væru samsvarandi tölur 100 þús. tonn og/