Árbók Reykjavíkurbæjar - jan. 1946, Side 166
152
reynt að útvega nýjar vélar frá Englandi, en
þær reyndust ófáanlegar þar. Veturinn 1941—•
’42 fór bæjarverkfræðingur, Valgeir Bjömsson
til Bandaríkjanna, aðallega í erindum fyrir Hita-
veitu Reykjavíkur. Festi hann þá kaup á nýtízku
mulningsvél, ásamt sigtitækjum, og sandhörpun-
arvél hjá firmanu Kennedy -— Van Saun Mfg.
& Eng. Corporation, New-York. Vélar þessar
komu hingað til lands síðari hluta ársins 1942.
Verð þeirra var, að meðtöldum varahlutum,
flutningsgjaldi, vátryggingu og innflutnings-
gjaldi, grjótnámstæki kr. 109659,54 og sand-
námstæki kr. 43143,09.
Af ýmsum styrjaldarorsökum (m. a. skorts á
heppilegu efni) drógst nokkuð uppsetning vél-
anna. Upphaflega var tilætlunin að byggja
imdirstöður tækjanna úr timbri, en vegna
skorts á nothæfu timbri var horfið að því að
nota jámbenta steinsteypu í undirstöðumar.
Uppsetning tækjanna hófst veturinn 1943—
’44. Skrifstofa bæjarverkfræðings sá um upp-
setningu sandnámsvélanna. Verkinu var lokið 7.
júni 1944. Rekstri gömlu sandnámstækjanna
var þá hætt, og starfsmenn þeir, er við þau
höfðu unnið (11 að tölu) hófu vinnu við nýju
vélamar 8. s. m.
Grjótnámsvélamar vom settar upp í sam-
vinnu við brezka setuliðið, sem hafði þær til
afnota í nokkra mánuði, samkv. sérstckum
samningi. Uppsetningu þeirra véla var lokið í
júní 1944, en bærinn tók við rekstri þeirra í
byrjun apríl 1945.
Grjótmulningsvélamar framleiða 4 tegundir
af efni. Plísamar, mulningur nr. IV, sem gömlu
vélarnar skiluðu, er nú unninn að fullu. Sand-
námstækin framleiða einnig 4 tegundir af efni.
Möl nr. I og II, sem gamla vélin skilaði, bland-
ast nú saman.
Unnið efni, bæði í grjót og sandnáminu, sem
áður var geymt í bing, er nú leitt frá vélunum
í safnkassa. Efnið er afgreitt á þann hátt,
að það er látið renna sjálfkrafa á bifreiðimar,
sem flytja það, í stað þess að áður var því
mokað með skóflum. Er afgreiðslan þvi miklu
fljótlegri og kostnaðarminni nú en áður. Vélam-
ar sjálfar eru einnig mun afkastameiri en gömlu
vélamar. Annars fara afköst þeirra nokkuð eftir
veðráttu og öðmm aðstæðum við vinnuna. 1
sandnáminu hefir verið notuð vélskófla, sem
fylgdi ekki sandhörpunartækjunum, en eykur
mjög afköstin þar og sparar þó vinnuafl til
mikilla muna. Full reynsla er ekki komin
á grjótnámsvélamar. Þær reyndust í allmiklu
ólagi, er setuliðið skilaði þeim, og hafa þurft
lagfæringar og viðgerðar við. Suma hluta þeirra
þarf að endumýja hið bráðasta.
Ný malbiksvél var sett upp í nýja grjótnám-
inu. Rekstur hennar hófst 1. sept. 1945.