Alþýðuhelgin - 09.01.1949, Side 8
4
ALÞÝÐÚHELGIN
blessuðum Guðmundi, heilögum
Þorláki og heilögum Jóni. Klæði
þetta er stórmerkur vitnisburður um
hinn sérstæða, íslenzka útsaum, sem
víða hefur vakið mikla athyglji ís.
lenzk altarisklæði með þessum saum
eru allvíða í erlendum söfnuín og
þykja hvarvetna kjörgripir.
— Hve gamalt er altarisklæðið frá
Hólum?
— Ekkert þori ég að fullyrða um
það, en mörg þessara altarisklæða með
forna saumnum munu vera frá 14.
öld, sum yngri.
— Þessi klæði halda sér furðan.
lega.
— Já, merkilega vel. Taktu eftir
þessum skæra, rauða lit í kápum
biskupanna, sem er eins og nýr af
nálinni.
Biskupskápa Jóns Arasonar.
— Hvernig hafa konurnar náð þess-
um hreinu og fögru litum á klæðið?
— Það er ekki gott að segja. En
hitt má fullyrða, að ýmisleg kunnátta
fyrri tíma í litagerð hefur alveg glat-
azt.
— Hér eru margir fleiri gripir?
— Þarna sérðu nolckra hökla. Safn.
ið á mikinn fjölda af höklum, senni
lega um hundrað, þó nokkra úr ka-
þólskum sið. Sumir þeirra eru merki
leg listaverk, fagurlega útsaumaðir
af listamannahöndum.
— Og þarna er fjöldinn allur af
kaleikum.
— Hér er til afar gott safn af þcim,
og eru margir frá kaþólskum tíma.
Sumir þeirra eru erlendir. Lang-
merkastur þeirra er hinn frábæri
kaleikur úr Skálholtsdómkirkju.
Hann er úr gylltu silfri, með greypt,
um myndum og steinum. Talinn vera
ítalskur og frá 14. öld, afbragðsgripur
að fegurð og listfengi.
'— Eru svo til íslenzkir kaleikir?
’ — Allmargir kaleikanna eru taldir
íslenzk smíði. Þar af eru nokkrir
með rómönsku lagi, og því gamlir,
frá 13. öld. Bera þeir ljósan vott um
að silfursmiði hefur bá verið hér á
mjög háu stigi. Óvíða, a. m. a. á
Norðurlöndum, er saman komið jafn.
gott safn af kaleikum úr kaþólskum
sið og hér.
— Engir gullkaleikir?
— Þeir eru hér ekki til. Landið
var aldréi auðugt af gripum úr gulli.
Er ekki getið um aðra gullkaleika
hér á l?ndi en kaleik þann hinn
mikla, sem Jón biskup Arason gaf
Hóiadómkirkju og Danir höfðu á
brott með sér eftir aftöku hans, og
ahnan gullkaleik í Skálholti, en hann
hefur vafalaust farið sömu leiðina.
— Hvað viltu segja mér um kirkju.
gripi frá síðari öldum?
— Af' seinni alda gripum vekja
langmesta athvgli mannamvndir ým=
ar, aðallega biskupamyndir og minn
ingatöflur.
— Hvers konar minningatöflur eru
það?
— Hér getur þú séð nokkrar
þeirra. Töflur þessar svna al npffl°pa
bann sið 17. oe 18. aldar manna. að
láta mála siálfa sig og vandamenn
sína undir krossinum á Golanta.
Þarna getur að lítn slíkar töflur til
minninaar um Maenús nrúða ásamt
konu oe börnum. Ara í Ögri oe konu
hans. ágæta mvnd. séra Ólaf í Kirkiu.
bæ o. m. fl. Mvndir bessar. sam allar
eru málaðar erlendis eða af erlendum
mönnum. voru hengdar upp í kirki-
unum og stundum notaðar í staðinn
fyrir altaristöflur.
— En biskupamvndirnar?
— Úr dómkirkjunni á Hólum hafa
komið til safnsins nokkrar biskupa-
myndir. Skemmtilegust þeirra er hið
alkunna málverk af Guðbrandi bisk.
upi Þorlákssyni. Auk frummyndar.
innar eru til af því fjórar eftirmyndir.
Þá er hér skemmtileg ,saumuð mynd
af Þorláki biskupi Skúlasyni. Hana
saumaði dóttir Þorláks. Þar er enn
eitt sýnishorn hins forna og sérstæða
íslenzka útsaums. Ennfremur er hér
stórt málverk af Gísla biskupi Þor.
Katrín helga.
Ein hinna fösru mynda.á biskups-
kápu Jóns Arasonar.
lákssyni og konum hans þremur, og
lolts málverk af nokkrum hinum sið.
ustu biskupum á Hólum, Steini Jóns.
syni, Halldóri Brynjólfssýni, Gísla
Magnússyni og Sigurði Stefánssyni,
er var seinastur Hólabiskupa. Öll
eru þessi málverk hingað komin úr
Hólakirkju, og er hörmulegt til þess
að vita, að ekki skuli annað eins
vera til úr Skálholtskirkju. Er þó vit-
að, að margar biskupamyndir og
önnur málverk voru þar til allt fram
að þ'eim tíma, er biskupsstóllinn var
fluttur þaðan. Þær myndir virðast
flestar eða allar glataðar með öllu,
og er það óbætanlegt tjón.
SICRÚÐHÚSIÐ.
Þá hverfum við úr kirkjunni og
göngum yfir í næsta sal, sem kallað.