Alþýðuhelgin - 15.10.1949, Síða 9
ALÞYÐUHELGIN
281
Fór ég svo til Guðmundar á Narf-
eyri og keypti vörur fyrir peninga.
Sigldi ég síðan hraðbyri heim að
Arnarbæli. Hafði ég náð mér í
„reseft'* hjá lækninum, sem ég fékk
í kaupbæti á heyið, og út á það í
apótekinu. Lenti ég svo vel hress við
tangann í Arnarbæli með blessaða
vöruna, sæll yfir að hafa þó sigrað
að lokum.
Guðmundur frá Narfeyri var hinn
bezti maður, og vorum við kunn-
ingjar frá því fyrsta, er við kvnnt-
umst. Hann verzlaði með köflum,
og verzlaði ég oft við hann. í þetta
sinn, er ég keypti af honum vöruna,
spyr hann mig, hvort ég geti selt sér
hey, helzt 1—2 kýrfóður, sem hann
var beðinn um úr Reykjavík. Ég
sagði honum, að ég ætti eina eyju ó-
slegna, og ætlaði ég að heyja liana,
ef tíð batnaði. Ég myndi fá úr henni
upp undir 200 sátur, og lofaði ég að
láta hann vita sem allra fyrst, hvort
úr þessu gæti orðið.
Ég byrjaði strax að heyja Barka-
naut. Ég var vel menntur; þrír
drengirnir, stórir og duglegir, og ég
sá fjórði og tvær stúlkur. Við heyj-
uðum Barkanaut á viku og komum
öllu í galta. Nú kom ekki dropi úr
lofti og þorrnaði heyið eftir hend-
inni, sem kallað er. Ég brá mér út í
Stykkishólm að sækja reipi til Guð-
mundar, og fór að binda heyið. Svo
lét Guðmundur mótorbát koma með
skip aftan í til að sækja heyið. Fór
hann tvær ferðir. Heyið var vigtað í
eynni, og mun ég hafa fengið um
15—16 þúsund pund. Ekki man ég,
hvað verðið var, en ég man, að verð
á heyi var gott þetta sumar. Nú átti
ég góða inneign hjá Guðmundi frá
Narfeyri, og brast mig ekki vörur
þennan vetur.
Ekki var ég búinn að koma oft til
Stykkishólms, þegar þetta missætti
okkar Ágústar var gleymt. Ágúst
Þórarinsson var glæsimenni í sjón,
gáfaður og manna skemmtilegast-
ur, jafn við alla, háa sem lága, bón-
góður með afbrigðum. Ég held, að
hann hafi átt bágt með að segja
nei við nokkurn, ef hann var beðinn
um lán. Kaupmaður var Ágúst mik-
111, og þótti sérstaklega flinkur vikt-
armaður, enda vigtaði hann sjálfur
alla ull í sumarkauptíð og kjöt og'
gærur á haustin. Hann trúði sjálfum
sér bezt í þeim sökum, enda mun
verzlunin ekki hafa tapað á því.
Nú byrjaði kaupfélagið að verzla
um vorið í húsum Hjálmars heitins
Sigurðssonar. Sigurður Steinþórsson
var kaupfélagsstjóri, eins og hann
er enn. Öllum féll vel við Sigurð,
og var hann hinn prýðilegasti mað-
ur. Ég verzlaði við kaupfélagið, þar
til ég fór frá Arnarbæli, og féll á-
vallt vel. Sigurður Steinþórsson
keypti oft af mér töðu að vorinu, 1—-
2 kýrfóður, sem hann seldi til
Reykjavíkur, og var það gott inn-
legg. Ég fyrnti töðu á hverju vori.
Sendi Sigurður mér mótorbát með
skipi aftan í eftir töðunni. Ég verzl-
aði alltaf bæði við Sæmund og Ágúst
meira og minna á hverju ári, því að
kaupfélagið hafði þá oft vörur af
skornum skammti til að byrja með.
Ég fékk svo ávísun frá kaupfélaginu
til að borga Ágústi og Sæmundi með,
til þess að þurfa ekki að skipta inn-
legginu.
Haustið, sem ég fór frá Tangs-
verzlun og seldi Ágústi heyið, skuld-
aði ég verzluninni rúmar 3000 krón-
ur og fékk þar enga úttekt meir, enda
skipaðist það þannig, að ég þurfti
þess ekki. Svo byrjaði kaupfélagið
að verzla og lækkaði vöruverð að
stórum mun. Nú vildi Ágúst Þórar-
insson semja við mig um skuldina,
og reyndum við það, en kom ekki
saman og strandaði á því, að ég vildi
fá lagfærðar ýmsar skekkjur í
reikningi mínum, sem alltaf var lof-
að að laga, en aldrei ent. Ég geymdi
reikninga þessa ár frá ári, en fékk
aldrei nema loforðin, og voru þetta
orðnar 600 krónur. Ég sagði Ágústi
að taka þær fyrst og draga þær frá
skuldinni, svo skyldum við byrja að
semja; gekk þetta lengi, að hann
þybbaðist við að draga þetta frá, og
varð því ekki af samningum. Loks-
ins kom að því, að við sömdum.
Byrjaði hann á að lagfæra þessar
600 krónur, sem hann dró frá skuld-
inni. Aðrar 600 krónur fékk ég fyrir
flutninga á vörum og fólki írá og
að verzluninni á síðastliðnum 10 ár-
um. Voru þá eftir 1830 krónur, sem
ég skyldi borga á næstu 10 árum,
183 krónur á ári, og halda þessari
þægju, 60 krónum á ári, fyrir flutn-
inga. Enga vexti skyldi ég borga af
þessari skuld. Þennan samning und-
irrituðum við með vottum, og var
hann haldinn og ég skuldlaus við
verzlunina, áður en ég fór frá Arn-
arbæli.
FRÁ KEFLAVÍK TIL REYKJAVÍK
Fólkið í Keflavík skiptast í tvo
flokka: í öðrum' flokknum voru út-
gerðarmenn, kaupmenn, formenn og
efnamenn; í hinum flokknum voru
allslausir verkamenn. Útgerðar-
mennirnir áttu allt og réðu öllu. Þeir
áttu bátana og fiskverkunarstöðv-
arnar og húsin. Þeir réðu hverja
þeir tóku í vinnu á sjó*og landi,
hvað kjör þeir létu þá fá, hvort þeir
borguðu þeim nokkurn tíma eða
aldrei. Þeir höfðu félag með sér, út-
gerðarmennirnir. Þeir voru einráð-
ir í hreppsnefndinni. Verzlunarlóð-
in ásamt tilheyrandi mannvirkjum
Heyflutningar á Bréiðafirði.
I