Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Side 35
154. Rhodiola rosea, burnirót. — Brúagljúfur. Víða gróðursett í bæjarveggjum, aðflutt úr
ýmsum stöðum.
SAXIFRAGACEAE.
155. Saxifraga caespitosa, þúfusteinbrjótur. — Alg. á melum og á grjóti, neðan frá dalbotni
og upp i efstu hæðir.
156. S. hypnoides, mosasteinbrjótur. — Alg. í hrauninu í gjám og gjótum, og víða annars-
staðar.
157. S. cemua, laukasteinbrjótur. — Brúahraun, á einum stað, fá eintök.
158. S. oppositifolia. vetrarblóm. — Víða í hrauninu, á melarindum og klettum.
159. S. nivalis, snæsteinbrjótur. — Mikið í hrauninu. Undarlega nægjusamur með jarðveg.
Vex sumsstaðar í þverhníptum, sléttum klettum, þar sem enginn jarðvegur er sjáan-
legur.
160. S. stellaris, stjörnusteinbrjótur. — Alg. við læki og í raklcndi.
161. Pamassia palustris, mýrasóley. — I allskonar jarðvegi í mýrlendi og valllendi, melum
og brunahrauni.
ROSACEAE.
162. Geum rivale, fjalldalafífill. — Óvíða í hrauninu. Víða í hlíðarlautum og innan uni
runna.
163. Fragaria vesca, jarðarberjalyng. — Laxhólmi, Hólkotsey í Vestmannsvatni. í birkikjarri
hjá Húsabakka.
164. Potentilla crantzii, gullmura. — Víða í graslendi og hraungjótum.
165. P. anserina, silfurmura. — Mikið á Laxárbökkum og norðantil í brauninu þar sem
sandfoks gætir.
166. Comarum palustre, engjarós. — Alg. í mýrum.
167. Sibbaldia procumbens, fjallasmári. — Víða í hrauninu og upp um heiði en hvergi
mikið.
168. Alchemilla alpina, ljónslappi. — Mjög viða í þurrum og hrjóstrugum jarðvegi. Þroska-
legust í klettahillum efst í Skrattafelli.
169. A. vcstita, maríustakkur. — Víða, einkum mcðfram Laxá.
170. Rubus saxatilis, hrútaberjalyng. — Mjög víða, einkum innan um skógarkjarr og hrís.
171. Dryas octopetala, rjúpnalauf. — Mjög alg., en hvergi svo mikið að það sé aðalplantan.
POMACEAE.
172. Sorbus aucuparia, reyniviður. — Hér og þar innan um birki í hrauninu. Stærsta hrísl-
an 2,5 m á hæð og um 7 sm í þvermál. Einn runni í hólma í Brúagljúfrum.
PAPILIONACEAE.
173. Vicia cracca, umfeðmingur. — Vað, örfá vesældarleg eintök í harðvellisskinn skammt
frá túninu og einnig í túninu á litlum bletti.
174. Trifolium repens, hvítsmári. — Víða í túnum og þurru valllendi. Mikið á Laxárbökk-
um, víða og í hólmum.
OENOTHERACEAE.
175. Chamaeonerion latifolium, eyrarrós. — Eyrar og hólmar í Skjálfandafljóti, hjá Vaði.
176. Ch. angustifolium, sigurskúfur. — Hólmi í Laxá hjá Laxamýri, í hraunsprungu.
177. Epilobium palustre, mýradúnurt. — Víða í raklendi.
178. E. alsinifolium, lindadúnurt. — Alg. við læki og dý.
179. E. lactiflorum, ljósadúnurt. — Víða mikið í hrauninu, í gjám og sprungum.
HALORAGACEAE.
180. Myriopliyllum altemifloruin, tjarnamari. — Mjög alg., hvarvetna í vötnum, tjörnum
og lygnum lækjum. Ófundinn vestan Fljótsheiðar, sunnan Húsabakka.
3
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓríl 33