Félagsbréf - 01.12.1958, Blaðsíða 46
44
FELAGSBREF
uppi yfir okkur, viðurkenningin
á siðalögmálinu innra með okkur
sjálfum, æðra öllum hagsmuna-
hugsunum .. . Með því er ekki
sagt að ég sé fyllilega samþykk-
ur fræðikenningum lians. Það eru,
að sjálfsögðu, til aðrar kenning-
ar ...“
Sverrir Haraldsson ísenzkaði.
Sigurður Jónsson frá IJrún
EIIVS KONAR SKATTSKÝRSLA
Steig ég áður örðug spor
oft ég þráði betri daga,
þóttist fjáður þó um vor
þegar ég skráði köst í haga.
Man ég svipult meraþóf,
mistök, grip og raun til flótta,
mjúkan flipa, folaldshóf,
fót og viprur, móðurótta.
Nú er ég snauður nœsta mjög,
nú er auður minn á þrotum.
Mér er liauður, liraun og flög,
hrossin dauð og allt í brotum.