Félagsbréf - 01.12.1958, Blaðsíða 50
GYÖRGY FALUDY
ORLÖG UNGVERJALMDS
A F árinu 1957 var einskis að vænta, þar eði stjórnmálalegar línur
voru óbreyttar, bæði í vestri og austri. Auk þess fengu Vestur-
veldin ekkert nýtt tækifæri til að vanrækja friðsamlega frelsun Austur-
Evrópu.
Fyrsta tækifærið gafst eftir dauða Stalíns, þegar liin mesta sundrung
kom upp milli æðstu manna Sovétríkjanna. Þá liélt Eisenhower snjalla
og viturlega ræðu, í apríl 1953, sem bar þess ljósan vott, að Vestur-
lönd gerðu sér fulla grein fyrir köllun sinni og hagsmunum. En
því miður bafði liinn kaldrifjaði ritari ungverska kommúnistaflokksins,
Matyas Rakosi, á réttu að standa, er liann sagði á ráðuneytisfundi:
„Ræða Eisenhowers gæti orðið mikið áfall fyrir okkur, ef lionum
væri alvara. En lionum er ekki alvara“.
Næsta tækifæri gafst, er Bería var þurrkaður út. Það þriðja bét
„Austur-Berlín“, það fjórða „Posen“. Og loks komu liinir sögulegu
tólf dagar ungversku byltingarinnar, þar sem liernaðarlegir, siðferði-
legir og liugsjónafræðilegir veikleikar Moskvuvaldsins komu berlega
í ljós. 1 mesta lagi 8000 vopnaðar en skipulagslausar frelsishetjur,
studdar börnum með benzínflöskur, unnu það afrek að hrekja margar
rússneskar skriðdrekalierdeildir út úr Búdapest. Rússneskir hermenn,
er teknir voru til fanga, sögðust hafa liaft skipanir um að draga sig
tafarlaust í hlé, ef liersveitir UNO kæmu á vettvang. Herrarnir í
Kreml biðu fulla sex daga, áður en þeir sannfærðust um, að Vestur-
veldin mundu á engan liátt skerast í leikinn, hvorki hernaðarlega
né stjórnmálalega. Vér erum sannfærðir um, að þá liefði verið hægt
að komast að viðunandi samkomulagi, og væri þá liag vestursins og
friðarins mun betur borgið í dag.
Með uppreisninni í Ungverjalandi birtust Vesturlöndum horfur á
friðsamlegri frelsun Austur-Evrópu. Sovétríkin og kommúnistastefnan
biðu mesta álitshnekki, sem þau liafa orðið fyrir fram til þessa. En
vegna stjórnmálastefnu Vesturveldanna liefur aðstaðan hér um bil
snúizt við á tæpu ári. Vesturveldin, og þó sér í lagi Bandaríkin, hafa
orðið fyrir gífurlegum álitshnekki. Sovétríkin geta stofnað til óeirða