Félagsbréf - 01.12.1958, Blaðsíða 30
28
FELAGSBREP
niður var að þú gætir farið til Parísar og síðan til Lundúna og þú
myndir liitta og sjá fólk og skemmta þér og síðan myndir þú koma
aftur og þá hlyti að vera komið vor og þú gætir sagt mér frá öllu.
— Nei, sagði hún.
— Ég held það væri skynsamlegt, sagði liann. Veiztu að þetta
varir langan lielvítis tíma og við verðum að læra að stilla þessu í
hóf. Og ég vil ekki ofþreyta þig. Veiztu —
— Ég vildi að þú segðir ekki ,veiztu‘ svona oft.
— Sérðu? Þetta er eitt. Ég gæti lært að tala án þess að skaprauna
þér. Það gæti verið að þú yrðir stórhrifin af mér þegar þú kemur aftur.
— Hvað myndir þú gera á nóttunni?
— Það er allt í lagi á nóttunni.
— Já, auðvitað. Ég býst við að þú vitir nú einnig hvernig þú átt
að fara að því að sofna.
— Það kemur líka, sagði liann við liana og drakk niður í hálft
glasið. Það er einn liðurinn í áætluninni. Veiztu að þannig á þetta
að vera. Ef þú ferð í burtu og skemmtir þér eitthvað þá fæ ég góða
samvizku. Þá í fyrsta sinn á ævinni sofna ég sjálfkrafa með góða
samvizku. Ég tek kodda >>em merkir liina góðu samvizku mína og
vef hann örmum og fell í fastasvefn. Ef ég skyldi af einhverri til-
viljun vakna þá hugsa ég hara fagrar hamingjusamar óhreinar liugs-
anir. Eða þá að ég tek fagrar yndislegar ákvarðanir. Eða ég man
hitt og þetta. Veiztu að ég vil að þú skemmtir þér —
— Gerðu það fyrir mig segðu ekki ,veiztu‘.
— Ég skal einbeita mér að því að segja það ekki. Það er bannað
en ég gleymi því og sleppi hanninu. Hvað sem því líður þá vil ég
ekki að þú sért bara blindingjahundur.
Ég er það ekki, það veiztu vel. Svo er það líka sjóneygður liundur,
ekki blindingjahundur.
— Ég veit það, sagði liann. Komdu og sittu liérna. Hefðirðu mikið
á móti því?
Hún kom og settist lijá honum á rúmið og þau heyrðu regnið belja
á rúðunni og hann reyndi að strjúka ekki höfuð liennar og fagurt
andlit liennar eins og blindur maður gerir og liann gat ekki snert
andlit hennar á neinn annan hátt en þennan. Hann liélt henni fast
upp að sér og kyssti liana á livirfilinn. Ég verð að reyna það ein-
hvern annan dag, hugsaði liann. Ég má ekki vera með neinn kjána-
skap í sambandi við það. Hún er svo yndisleg viðkomu og ég elska
hana svo mikið og lief gert henni svo mikinn skaða og ég verð að