Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Qupperneq 2
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfar-
andi borgarstjóri, og Jón Kristinn Snæ-
hólm, fráfarandi aðstoðarmaður borg-
arstjóra, eiga rétt á nærri 10 milljónum
króna í biðlaun. Vilhjálmur á rétt á bið-
launum næstu 6 mánuði og Jón Krist-
inn næstu þrjá mánuði. Á þeim tíma
fær Vilhjálmur nærri 7 milljónir króna
og Jón Kristinn rúmar 2 milljónir.
Ef nýr borgastjóri verður skipaður
á borgarstjórnarfundi á morgun ger-
ist það sjálfkrafa að Vilhjálmur lætur af
starfi frá og með þeim degi. Frá þeim
tímapunkti á hann rétt á biðlaunum
og hið sama á við um aðstoðarmann
hans. Biðlaunaréttur borgastjóra er
líkt og um ráðherra væri að ræða. Þar
sem Vilhjálmur náði að gegna emb-
ætti samfellt lengur en eitt ár fær hann
biðlaun í 6 mánuði. Ef hann hefði set-
ið skemur fengi hann biðlaun í 3 mán-
uði. Biðlaunin reiknast frá grunnlaun-
um og taka ekki mið af greiðslum fyrir
stjórnarsetu af nokkru tagi.
Vilhjálmur borgarstjóri er með
sömu laun og forsætisráðherra eða
1.115.153 krónur á mánuði. Réttur
hans til biðlauna er sá hinn sami og
ráðherra. Birgir Björn Sigurjónsson,
skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu
Reykjavíkurborgar, segir biðlaunarétt
borgarstjóra iðulega hafa miðast við
ráðherrarétt. „Við öpum eftir ríkinu
þegar kemur að biðlaunum. Í stuttu
máli er þetta þannig að borgarstjóri
heldur launum sínum næstu 6 mán-
uði og aðstoðarmaður í 3 mánuði.
Svo lengi sem elstu menn muna hefur
það alltaf verið þannig að borgarstjóri
hefur sama biðlaunarétt og ráðherra,“
segir Birgir Björn.
trausti@dv.is
mánudagur 15. október 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Tekjutap
vegna tafa
„Markmiðið er að fá allt upp
á borðið,“ segir Álfheiður Inga-
dóttir, þingmaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs,
um ástæðu þess að þingmenn
flokksins hafa lagt fram beiðni
um svör frá iðnaðarráðherra um
kostnað við Kárahnjúkavirkjun.
Áætlaðir sjóðir Landsvirkjun-
ar vegna ófyrirsjáanlegs kostn-
aðar við virkjunina eru nánast
uppurnir vegna tafa á fram-
kvæmdinni. Álfheiður bendir á
að vegna tafanna hafi afhend-
ing rafmagns dregist og hún vill
einnig vita hvert tekjutapið sé
vegna þess.
Fram úr áætlun
„Ég hef grun um að menn séu
að tala um upphaflega kostn-
aðaráætlun,“ segir Álfheiður
Ingadóttir sem vill fá að vita
hver heildarkostnaður við Kára-
hnjúkavirkjun verður. „Það var
upplýst á sínum tíma þegar Im-
pregilo bauð í stærstu verkþætt-
ina að öll tilboð hafi verið langt
undir kostnaðarverði,“ segir hún.
Forsvarsmenn virkjunarinnar
tala um að verkið hafi farið um
10 milljarða fram úr áætlun en
Álfheiður telur óljóst við hvaða
áætlun þeir miða. Hún spyr
hversu miklu dýrara verkið var
heldur en samið var upphaflega
um við verktaka.
Kostnaður óljós
„Það er ekki tímabært að
tjá sig um það,“ segir Sigurð-
ur Arnalds, kynningarstjóri
Kárahnjúkavirkjunar, spurður
um áætlaðan heildarkostnað
við framkvæmdirnar við Kára-
hnjúka.
Hann segist gera ráð fyrir að
iðnaðarráðherra beini fyrirspurn-
um um kostnað við virkjunina
til yfirstjórnar Landsvirkjunar.
„Landsvirkjun tekur sér þann
tíma sem þarf til að skoða mál-
ið. Það er ekki einfalt að fara yfir
þetta þegar verkið er á fullri ferð,“
segir Sigurður og bendir á að end-
anlegur kostnaður sé ekki ljós.
Dópsali á skilorði
Kjartan Guðjónsson, 35 ára,
var á föstudag dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í 12 mánaða
fangelsi fyrir skotvopnaburð og
vörslu eiturlyfja. Lögreglan gerði
húsleit hjá Kjartani og fann við
leitina 302 grömm af amfetam-
íni, 3,2 kíló af hassi, 239 grömm
af maríhúana, 1,1 gramm af
kókaíni, 0,97 grömm af tóbaks-
blönduðu kannabisefni og hálfa
e-töflu. Kjartan var auk þess með
óskráðan riffil í fórum sínum.
Níu mánuðir af dómnum voru
skilorðsbundnir.
Fá 10 milljónir í biðlaun
Biðlaunaréttur fráfarandi borgarstjóra og aðstoðarmanns hans:
Átakafundur í lokin Vilhjálmur og Jón kristinn eiga rétt á tæplega 10 milljóna
króna biðlaunum eftir að meirihlutasamstarfinu var slitið nýverið.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri, vill rannsaka til hlítar stofnun
Reykjavíkur Energy Invest og aðdraganda sameiningar fyrirtækisins við Geysi Green
Energy. Hann segir sjálfstæðismenn ekkert hafa að fela í málinu.
„Ég get litið stoltur um öxl og er
ekki í vafa um að ég var góður borg-
arstjóri,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, fráfarandi borgarstjóri í
Reykjavík.
Óeining innan Sjálfstæðisflokks-
ins varð honum að falli í borginni
og ævintýraleg atburðarás síðustu
tveggja vikna hefur leitt til þess
að flokkurinn stendur einn eftir í
minnihluta borgarinnar.
Málefni Orkuveitu Reykjavíkur
og sameining Reykjavíkur Energy
Invest, REI, og Geysis Green Energy
skópu töluverða reiði í samfélaginu
eftir að í ljós kom að völdum starfs-
mönnum Orkuveitunnar og REI
áttu að bjóðast kaupréttarsamning-
ar á sérkjörum.
Stjórnendur Orkuveitunnar hafa
fengið skömm í hattinn fyrir hversu
illa var staðið að kynningu samein-
ingarinnar. Nú þegar hefur Haukur
Leósson, stjórnarformaður Orku-
veitunnar, þurft að taka pokann sinn
og líklegt er talið að fleiri stjórnend-
um fyrirtækisins verði refsað. Guð-
mundur Þóroddsson, forstjóri REI,
gæti fengið að gjalda fyrir sinn hlut
með stjórastarfinu hjá Orkuveitunni.
Rannsaka Reykjavik Energy
Björn Ingi Hrafnsson, formað-
ur borgarráðs, hefur lýst því yfir að
hann vilji láta rannsaka allt sem
snýr að aðdraganda sameiningar
REI og Geysis Green Energy. Hann
segist ekkert hafa að fela í málinu.
Í sama streng tekur Vilhjálmur
sem jafnframt vill láta rannsaka til
hlítar aðdraganda og stofnun REI.
„Ég tel nauðsynlegt í ljósi umræð-
unnar að skoða REI-málið frá grunni
og að allt verði brotið til mergjar. Að
minni hyggju þolir allt sem snýr að
okkur sjálfstæðismönnum dagsins
ljós. Meðal þess sem orkar tvímæl-
is í málinu eru kaupréttarsamningar
sem gerðir hafa verið og einnig efa-
semdir vegna þess ákvæðis að REI
eigi einkarétt á þjónustu Orkuveit-
unnar í útrásarverkefnum á næstu
20 árum,“ segir Vilhjálmur. Hann
segir að ef ekki komi fram tillaga um
rannsókn frá öðrum borgarfulltrú-
um muni hann sjálfur bregðast við.
„Ég er tilbúinn til að bera upp þá
tillögu sjálfur, enda hef ég ekkert að
fela. Við töldum okkur vera að gæta
hagsmuna Reykvíkinga í öllu þessu
ferli. Það væri mjög áhugavert að
fá fram í dagsljósið rök Björns Inga
Hrafnssonar og Dags B. Eggertsson-
ar fyrir því að fyrirtækið eigi eftir að
verða tugmillarða króna virði.“
Vilhjálmur vann sitt seinasta op-
inbera verk í gær þegar hann tók
skóflustunguna að 111 þjónustu-
íbúðum fyrir aldraða. Hann sagði
ánægjulegt að hafa náð að opna þá
framkvæmd. Vilhjálmur er síður en
svo daufur á þeim tímamótum að
kveðja borgarstjórastólinn.
Til í allt - án Villa
Björn Ingi hefur fullyrt að í sín-
um huga hafi verið nauðsynlegt að
slíta samstarfi við Sjálfstæðisflokk-
inn í borgarstjórn, slík væri óeining-
in innan flokksins. Hann segir eitt-
hvað verulega mikið að innanborðs
og staðfestir jafnframt vitneskju sína
þess efnis að borgarfulltrúar sjálf-
stæðismanna hafi í síðustu viku leit-
að samstarfs við aðra flokka. Þessu
til stuðnings sagði hann í Silfri Eg-
ils í gær að hann hefði með eigin
augum séð textaskilaboð í farsíma
frá ónafngreindum borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins þar sem leitast
var eftir samstarfi við aðra flokka
en Framsókn án þess að Vilhjálm-
ur borgarstjóri fylgdi með í kaup-
unum.
Heimildamenn DV hafa einnig
bent á að Gísli Marteinn Baldurs-
son, Hanna Birna Kristjánsdóttir
og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hafi
spilað stærstu hlutverkin að tjalda-
baki í þá veru að ná saman við aðra
flokka.
Vinir standa saman
Stefanía Óskarsdóttir stjórn-
málafræðingur telur forystumenn
Sjálfstæðisflokksins hafa brugðist
því hlutverki sínu að stilla til friðar í
flokknum. Hún telur forystuna hafa
misst atburðarásina úr böndunum.
„Það veit enginn hvað Geir og Þor-
gerður sögðu við hópinn sem leit-
aði til þeirra án borgarstjórans. Eina
sem maður fékk á tilfinninguna var
það að lítið sem ekkert hafi verið
gert þegar klagað var til þeirra. Síðan
má ekki gleyma því að borgarstjórn-
arflokkurinn lét eins og allir væru
glaðir og málið væri leyst,“ segir
Stefanía. Hún segir vinahópa innan
flokksins standa saman og einstakl-
ingar innan hópanna hjálpist að við
að komast til metorða.
„Ég veit ekki hvort beinlínis sé
von á einhverju uppgjöri innan Sjálf-
stæðisflokksins. Fylkingarnar tvær í
flokknum, Björn og Geir, eru aðeins
einn vandi flokksins, það er margt
annað. Menn eru fúlir innan flokks-
ins og það eru sjálfsagt einhverj-
ir sem hverfa yfir móðuna miklu og
fara til annarra starfa á næstunni. Í
þeim hópi eru hugsanlega einhverjir
sem töldu sig eiga framann vísan.“
TRausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
samsTaða um rannsóKn
Vilhjálmur borgarstjóri er sáttur með störf
sín sem borgarstjóri og lítur sáttur um öxl.
Hann segist ekkert hafa að fela í málefnum reI
og vill láta brjóta allt málið til mergjar.