Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 21
DV Sport mánudagur 15. október 2007 21 ÍÞRÓTTAMOLAR Þorvaldur spenntur fyrir fram Þorvaldur Örlygsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning sem þjálfari úrvalsdeildarliðs Fram í knattspyrnu. Hann kveðst spenntur fyrir nýja starfinu, en hann verður þjálfari í fullu starfi. „Ég er mjög spenntur fyrir starfinu og hlakka til að byrja. Við höfum ekkert velt fyrir okkur breytingum á leikmannahópn- um en vonandi getum við haldið öllum sem fyrir eru hjá félaginu og bætt við til að styrkja hann. takmark okkar í vetur er að búa til frambærilegt knattspyrnulið.“ meðal leikmanna Fram er Jónas grani garðarsson, sem var markakóngur Landsbankadeildarinnar í sumar með 13 mörk. Jónas er að upplagi framliggj- andi miðjumaður en ólafur Þórðarson, fyrrverandi þjálfari Fram, sendi hann í fremstu víglínu í sumar. „Vonandi verður Jónas grani áfram og á annað tímabil eins og í sumar. Það var mjög gaman fyrir hann og félagið að hann skyldi verða markahæstur.“ Þorvaldur, sem er 41 árs, þjálfaði lið Fjarðabyggðar seinustu tvö ár en stýrði áður ka. Sem leikmaður lék hann með ka áður en hann fór í atvinnumennsku til englands og lék með nottingham Forest, Stoke og oldham. á ferli sínum lék Þorvaldur 41 a-landsleik. á vef Fjarðabyggðarliðsins er honum þökkuð góð störf og Þorvaldur kveðst ánægður með veru sína þar. „Það var mjög góð reynsla að vera þar og mjög skemmti- legt. Stjórn Fjarðabyggðar skilur samt að ég vilji taka þeirri áskorun að taka við Framliðinu. Ég tek með mér góðar minningar þaðan, af liðinu, fólkinu sem ég kynntist og sveitarfélaginu í heild sinni. Það er aldrei að vita nema leiðir okkar liggi saman aftur. Fjarðabyggð er fínn klúbbur með góða og heiðarlega leikmenn sem leggja sig fram. Þeir hafa sýnt að þeir geta spilað vel og ég hef engar áhyggjur af þeim.“ Þorvaldur vildi ekkert gefa út um hvort hann ætlaði að taka með sér leikmenn suður. „Sú spurning er ótímabær. Fjarðabyggð er með góða leikmenn sem stóðu sig vel og það er vonandi að þeir haldi því áfram.“ tollefsen til víkings Víkingur hefur ráðið danska þjálfarann Jesper tollefsen sem þjálfara meistara- flokks félagsins til næstu tveggja ára. Jesper mun einnig starfa sem yfirmaður þjálfunarmála hjá félaginu og koma að þjálfun yngri flokka sem og knattspyrnu- akademíu félagsins enda sprenglærður. Jesper er 37 ára og þar með aðeins yngri en Sinisa kekic, leikmaður liðsins. Jesper er með ueFa Pro-þjálfaragráðu í beltinu sem aðeins einn Íslendingur er með í dag. Hann var aðalþjálfari FC aarhus í 1. deild í danmörku 27 ára og þjálfaði lið Hjörring í dönsku 2. deildinni. Hann kom til Íslands í sumar og þjálfaði lið Leiknis. Ragna Björg Ingólfsdóttir komst í undanúrslit í einliðaleik á al- þjóðlegu badmintonmóti á Kýpur. Ragna lék einnig í tvíliðaleik með eistneskri stelpu og saman komust þær í úrslitaleik mótsins þrátt fyr- ir að hafa aldrei leikið saman áður. Ragna er sem stendur í 51. sæti á heimslistanum en hún stefnir ótrauð að því að komast á Ólymp- íuleikana í Peking á næsta ári. Ragna var sátt við árangurinn í Kýpur en segist hafa átt að komast í úrslit í einliðaleik. „Það er fínn ár- angur að komast í undanúrslit en ég hefði viljað spila betur í und- anúrslitaleiknum og vinna hann. Þetta bætir einhverjum stigum við á heimslistanum og allt hjálpar þetta til. Á leið minni í undanúrslitin vann ég stelpu frá Egyptalandi og ég vann hana örugglega, 21–5 og 21–14. Næst spilaði ég við rúss- neska stelpu og ég vann hana líka frekar létt eða 21–7 og 21-17. En í undanúrslitum mætti ég danskri stelpu sem var Evrópu- meistari unglinga fyrir þremur árum. Núna er hún rúmlega tvítug og er að verða næsta stjarna í Dan- mörku. Leikurinn okkar var jafn en mér fannst ég ekki spila nægi- lega vel. Ég á að taka svona leiki en var ekki að finna mig nægilega vel. Ég átti tvívegis möguleika á því að slátra seinni lotunni en það gekk ekki og þetta er nokkuð sem ég verð bara að læra af.“ segir Ragna. Leik- urinn endaði 21–17 og 25–23 fyrir þeirri dönsku. spilaði með eistneskri stelpu í tvíliðaleik og komst í úrslit Sigurvegari í einliðaleik á mót- inu var eistneska stelpan Katty Tolmoff en hún og Ragna eru góðar vinkonur. Þær ákváðu að spila sam- an í tvíliðaleik á mótinu og það gekk vel enda töpuðu þær í úrslitaleik fyrir indverskum andstæðingum. „Ég ákvað að spila einnig tvíliðaleik með vinkonu minni frá Eistlandi bara svona til þess að krydda þetta aðeins og gera þetta skemmtilegt. Við erum oft að spila á sömu mót- um þannig að við skráðum okkur saman í tviliðaleik. Þetta gekk eiginlega vonum framar hjá okkur. Við komumst í úrslitaleikinn og töpuðum þar fyrir stelpum frá Indlandi sem eru mjög góðar í tvíliðaleik. Við spiluðum að vísu eins og tveir einliðaleiksleikmenn en þær indversku eru vanar að spila í tví- liðaleik. Samhæfing skiptir miklu í tvíliðaleiknum,“ segir Ragna. Katty Tolmoff sigraði á mótinu en sú danska sem Ragna tapaði fyr- ir lenti í öðru sæti. mikið álag fram undan Í næstu viku spilar Ragna í Hol- landi og því næst fer hún til Dan- merkur og Ungverjalands, allt með viku millibili. „Ég er vön því að vera að ferðast mikið og þetta fylg- ir þessu. Ég mun reyna að byggja á þessum árangri í næstu mót- um en eftir þessa törn mun ég spila á Iceland Inter- national um miðjan nóvember. Það er allt- af mjög skemmtilegt að spila á Íslandi og ég hlakka til að gera það,“ segir Ragna. Ragna er í 51. sæti á heims- list- anum fyrir Ól- ymp- íuleik- ana og ef hún nær að halda sér á þeim slóðum á listanum ætti hún að komast inn á þá. RAgnA Að sTAndA sig á KýpuR ragna Björg ingólfsdóttir, badmintonkona úr TBR, gerði fína ferð til Kýpur. Þar komst hún í undanúrslit í einliðaleik en einnig lék hún til úrslita í tvíliðaleik með vinkonu sinni frá Eistlandi. stendur sig vel ragna björg Ingólfsdóttir badmintonkona náði góðum árangri á kýpur. Valskonur unnu góðan sigur gegn belgíska liðinu Wezemaal, 4–0. Fyr- irliðinn Katrín Jónsdóttir skoraði fyrsta markið, Málfríður Erna Sig- urðardóttir skoraði annað markið og markadrottningin Margrét Lára Við- arsdóttir bætti við tveimur mörkum á lokakaflanum. „Leikurinn spilaðist allt öðru- vísi en úrslitin segja til um,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals. „Þetta var mjög jafn leikur. Þetta var sveiflukennt í fyrri hálfleik, opinn leikur og mikill hraði. Liðin skiptust á að sækja og þær voru í raun lík- legri en við framan af. Í stöðunni 0–0 áttu þær í raun að fá vítaspyrnu eða aukaspyrnu á vítateigslínunni. Mál- ið er að við fórum inn í hálfleik og áttuðum okkur á því að við vorum á leið út úr keppninni eins og stað- an var. Við þurftum í raun bara að ýta á „on“ til þess að komast áfram. Og við lögðum upp þrjá hluti. Það var að vinna miðjuna, breyttum aðeins skipulaginu. Settum Katrínu framar og hún fór að vinna alla skallabolta. Síðan skorum við tvö mörk á fimm mínútna kafla, bæði eftir hornspyrn- ur. Við sáum að markvörður þeirra var veikur í hornunum þannig að við breyttum áherslunum með það í hálfleik. Það virkaði bara helvíti vel. Þá drápum við leikinn og Margrét fékk síðan tvær stungusendingar inn fyrir og skoraði falleg mörk. 4–0 var stórt miðað við gang leiksins en ótrúlega mikilvægur sigur og mikil- væg mörk.“ Úrslitin þýða að næsti leikur Vals, sem er gegn Everton, er kominn í allt annað samhengi. Vinni Frankfurt Wezemaal og Valur vinnur Everton eru Valsstelpurnar komnar áfram í átta liða úrslit, sem væri frábært af- rek. Everton er með 0 stig eftir tvo leiki. „Við verðum að fara inn í þann leik til að vinna. Því ef eitthvað ann- að kemur upp og við gefum okkur það að Frankfurt vinni Wezemaal, sem þær geta ákveðið hvort þær geti, þannig að við ætlum að stefna að sigri. Við vitum að það er hættulegt að vita af þeim möguleika að vera með einhverja góða markatölu. Mér finnst það svolítið hættulegt. Eins og staðan er fyrir leikinn erum við með tvö mörk í plús og Everton með tvö mörk í mínus þannig að þær þurfa að vinna með fjórum.“ Eftir að sigrinum hafði verið fagn- að var haldið aftur á eitthvað skíta- hótel þar sem gleðin breyttist í mar- tröð. Gluggi hafði verið brotinn í herbergi Thelmu Einarsdóttur og nöfnu hennar Gylfadóttur „Við kom- um heim úr leiknum og þá var búið að mölva rúðuna í einu herberginu og hirða allt sem var spennandi að hirða. Tvær tölvur, síma, veski, pen- inga og skólabækur og ég veit ekki hvað og hvað. Það var hrikalegt fyrir þær að lenda í þessu. Við erum á tveggja stjörnu hót- eli, einhverju ógeði. Þetta er ekki boðlegt. Belgíska liðið og UEFA út- hluta þessu og þetta á að standast einhvern þriggja stjönu standard en þetta er alveg á mörkunum. Það er túnfiskur í matinn í öll mál og sama túnfisksteikin steikt eða röspuð eft- ir því hvað klukkan er. Þetta er bara grín.“ benni@dv.is Mikilvægur sigur og Mikilvæg Mörk Valskonur unnu frábæran sigur á belgíska liðinu Wezemaal 4–0 en fögnuðurinn breyttist í martröð þegar á hótelið var komið: tvö mörk margrét Lára skoraði tvö mörk á laugardag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.