Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 14
mánudagur 15. október 200714 Sport DV Fredrik Ljungberg, Christian Wilhelmsson og Anders Svensson tryggðu Svíum öruggan 3–0 sigur á Liechtenstein í Vaduz. Sigurinn tryggir Svíum áfram efsta sætið í riðl- inum með 22 stig eftir 9 leiki. Fyrirlið- inn Ljungberg skoraði eftir 19 mínút- ur þegar Marcus Allback gaf fallega sendingu með hælnum í gegnum vörn heimamanna. Ljungberg þurfti síðan að fara af velli vegna meiðsla og Kim Kallstrom kom í hans stað. Markið hjá Wilhelmsson var glæsilegt í alla staði. Hann tók þá hvern varnarmann Liechtenstein á fætur öðrum og skaut föstu skoti, óverjandi fyrir markmann heima- manna. 2–0 var staðan í leikhléi. Það liðu ekki nema tíu mínútur af síðari hálfleik þar til Svíar skoruðu þriðja markið. Liechtenstein-vörnin var þá eitthvað að dóla með boltann og Svensson hirti auðveldlega boltann og skoraði skondið mark. Þegar liðin mættust í Svíþjóð fyr- ir 13 mánuðum þurftu Svíar að hafa þvílíkt fyrir sigrinum. Núna var allt annað uppi á teningnum. Fyrri hálf- leikur var mjög góður hjá Svíum og þeir drápu leikinn þá. Johan Elm- ander, Svenson og Tobias Linder- oth fengu allir góð færi í leiknum og Svíar voru alltaf líklegri að bæta við heldur en Liechtenstein að minnka muninn. Vinni Svíar Norður-Íra á miðvikudaginn eru þeir komnir langleiðina í lokakeppnina. Svíar héldu toppSætinu Liechtenstein steinlá fyrir Svíum 3–0 í Vaduz. Frábært mark hjá Wilhelmsson Christian Wilhelmsson skoraði frábært mark gegn Liechtenstein. Mörk frá Raúl Tamudo, Sergio Ramos og Albert Riera tryggðu Spán- verjum þrjú stig í Árósum gegn Dön- um. Sigurinn þýðir að ekkert minna en kraftaverk þarf til að Danir kom- ist í lokakeppni EM í Sviss og Aust- urríki. Spánverjar komust með sigr- inum á topp okkar riðils með 22 stig og eru jafnir Svíum sem eiga þó leik til góða. Tamudo skoraði eftir 14 mínútur þegar hann skallaði sendingu Andr- es Iniesta í netið. Annað markið var Þar lágu Frábært mark annað mark Spánverja var stórbrotið. Þeir héldu boltanum í meira en mínútu án þess að danir kæmust á milli. Alvörubarátta daniel Jensen, leikmaður dana, reynir að ná boltanum af Luis garcia af dýrari gerðinni. Spánverjar héldu boltanum lengi lengi, í eina mín- útu og 18 sekúndur, sendu boltann þrjátíu sinnum sín á milli án þess að Danir kæmu við boltann. Það var svo Ramos sem rak smiðshöggið þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Tók léttan þríhyrning við Xavi og skoraði framhjá Thomas Sorensen. Í millitíð- inni vildu Danir fá víti þegar boltinn fór greinilega í höndina á Cesc Fabr- egas. Spánverjar skoruðu úr tveim- ur fyrstu alvörufærunum sínum en spænskir fjölmiðlamenn höfðu gert því skóna að liðið myndi eiga í erfið- leikum fyrir framan mark andstæð- inganna þar sem David Villa og Fern- ando Torres væru meiddir. Fimm mörk í tíu leikjum „Ég kom hingað til að vinna mitt starf,“ sagði Tamudo glaður í bragði eftir leikinn. Hann var ekki valinn í landsliðið í tvö ár en hefur skorað fimm mörk í tíu leikjum síðan hann sneri aftur. „Það sem mestu máli skiptir er úrslitin sem við fengum hér því þetta var mjög svo erfiður leikur.“ Dennis Rommedahl, Daniel Jen- sen, Jesper Gronkjaer og Thomas Helveg fengu allir góð færi fyrir Dan- mörku en skutu annaðhvort framhjá eða í Iker Cassilas, markvörð Spánar. „Við erum vonsviknir og pirraðir eft- ir þennan leik,“ sagði Morten Olsen, landsliðsþjálfari Dana. „Við fengum næg tækifæri til að fá eitthvað út úr þessum leik en nýttum ekki færin okkar.“ Jon Dahl Tomasson minnkaði muninn í 2-1 skömmu fyrir leikslok en það var of lítið og kom of seint. Albert Riera, sem hafði komið inn á sem varamaður, skoraði þriðja mark Spánar aðeins nokkrum sekúndum síðar. Christian Polsen missti klaufa- lega boltann og Riera nýtti sér það til hins ítrasta. „Ég er sáttur við fyrri hálfleikinn, í þeim síðari vorum við of langt frá mönnunum og við gerð- um okkur þetta of erfitt fyrir. En lukk- an gekk í lið með okkur og við unn- um leik sem við urðum að vinna,“ sagði Luis Aragones, landsliðsþjálf- ari Spánar, hress að vanda. Benedikt BóAS hinkriSSon blaðamaður skrifar: benni@dv.is Allir vinir Stemningin fyrir leikinn var mögnuð og öll dýrin í skóginum voru vinir. danir í Því A-riðiLL Armenía – Serbía 0–0 Aserbaidsjan – Portúgal 0–2 Pólland – kasakstan 3–1 Belgía – Finnland 0–0 Lið L U J T M St 1. Pólland 12 7 3 2 20:10 24 2. Portúgal 11 5 5 1 21:9 20 3. Finnland 12 5 5 2 11:6 20 4. Serbía 11 4 5 2 13:8 17 5. belgía 11 3 3 5 10:14 12 6. armenía 9 2 3 4 4:8 9 7. kazakstan 11 1 4 6 9:18 7 8. aserbaidsj. 9 1 2 6 4:19 5 B-riðiLL Skotland – Úkraína 3–1 Færeyjar – Frakkland 0–6 Ítalía - Georgía 2–0 Lið L U J T M St 1. Skotland 10 8 0 2 20:8 24 2. Ítalía 10 7 2 1 17:7 23 3. Frakkland 10 7 1 2 21:3 22 4. Úkraína 9 4 1 4 11:12 13 5. Litháen 9 3 1 5 7:11 10 6. georgía 10 2 1 7 14:17 7 7. Færeyjar 10 0 0 10 3:35 0 C-riðiLL Ungverjaland – Malta 2–0 Moldóva – tyrkland 1–1 Grikkland – Bosnía/hers. 3–2 Lið L U J T M St 1. grikkland 9 7 1 1 17:9 22 2. tyrkland 9 5 3 1 22:9 18 3. noregur 9 5 2 2 20:8 17 4. bosnía/Herz. 10 4 1 5 16:19 13 5. ungverjal. 10 4 0 6 10:17 12 6. moldavía 10 1 3 6 6:17 6 7. malta 9 1 2 6 7:19 5 d-riðiLL Slóvakía – San Marínó 7–0 kýpur – Wales 3–1 Írland – Þýskaland 0–0 Lið L U J T M St 1. Þýskaland 9 7 2 0 31:4 23 2. tékkland 9 6 2 1 19:4 20 3. Írland 10 4 3 3 14:11 15 4. Slóvakía 10 4 1 5 27:20 13 5. kýpur 9 4 1 4 16:17 13 6. Wales 9 3 1 5 14:16 10 7. San marínó 10 0 0 10 1:50 0 e-riðiLL england – eistland 3–0 1–0 (11.) Wright-Phillips, 2–0 (32.) rooney, 3–0 (33.) rahn sjálfsmark. króatía – Ísrael 1–0 Lið L U J T M St 1. króatía 10 8 2 0 25:4 26 2. england 10 7 2 1 21:2 23 3. rússland 9 5 3 1 14:4 18 4. Ísrael 10 5 2 3 17:11 17 5. makedónía 9 2 2 5 7:11 8 6. eistland 11 1 1 9 3:21 4 7. andorra 9 0 0 9 2:36 0 F-riðiLL Ísland – Lettland 2–4 1–0 (4.) eiður Smári guðjohnsen, 1–1 (27.) klava, 1–2 (31.) Laizans, 1–3 (37.) Verpakovskis, 1–4 (46.) Verpakovskis, 2–4 (53.) eiður Smári guðjohnsen. Liechtenstein – Svíþjóð 0–3 danmörk – Spánn 1–3 0–1 (14.) tamudo, 0–2 (40.) ramos, 1–2 (87.) tomasson, 1–3 (89.) riera. Lið L U J T M St 1. Svíþjóð 9 7 1 1 20:4 22 2. Spánn 10 7 1 2 19:8 22 3. n.Írland 9 5 1 3 14:11 16 4. danmörk 9 4 2 3 14:8 14 5. Lettland 9 3 0 6 9:11 9 6. Ísland 10 2 2 6 10:21 8 7. Liechtenst. 10 1 1 8 5:28 4 G-riðiLL hv.-rússland – Lúxemborg 0–1 rúmenía – holland 1–0 Slóvenía – Albanía 0–0 Lið L U J T M St 1. rúmenía 9 7 2 0 18:5 23 2. Holland 9 6 2 1 11:3 20 3. búlgaría 9 5 3 1 14:6 18 4. Slóvenía 10 3 2 5 9:12 11 5. albanía 9 2 4 3 8:7 10 6. Hv.rússland 10 2 1 7 11:20 7 7. Lúxemborg 10 1 0 9 2:20 3 Spánn vann danmörku 3–1 í Árósum. Þar með er ljóst að Danir eru nánast úr leik í keppninni um að komast í lokakeppni EM næsta sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.