Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 13
DV Sport mánudagur 15. október 2007 13 Emil HallfrEðsson „Þetta byrjaði rosalega vel og maður hélt að við myndum vinna þetta eftir byrjunina. en við vorum slappir varnarlega, allt liðið ekki bara öftustu fjórir. Við fengum alveg einhver færi og við hefðum alveg getað sett fleiri mörk. oft komu ágætissóknir í síðari hálfleik en við náðum ekki að klára þær. en það verður að segjast að þetta fjórða mark þeirra kláraði leikinn.“ JóHannEs Karl GuðJónsson „Við í sjálfu sér náðum að byrja ágætlega en einhverra hluta vegna komust þeir inn í leikinn og mér fannst við vera eitthvað taugastrekktir og náðum ekki að þétta okkur. Við vorum allt of opnir og þegar kantararnir komu inn á völlinn mynduðust þarna holur. en við fengum mörk á okkur úr föstum leikatriðum. Við vorum náttúrlega miklu betri aðilinn í leiknum í síðari hálfleik og við höfðum trú á því að við gætum jafnað. en markmaðurinn varði oft vel hjá þeim og síðasta sending klikkaði oft en svona er þetta bara. “ raGnar siGurðsson „Í byrjun vorum við ekki nógu vel stemmdir og þeir teygðu vel á okkur og alls staðar voru fríir menn hjá þeim. Við vorum allt of langt frá þeim og þorðum ekki að mæta þeim ofarlega í fyrri hálfleik, því þeir eru með snögga framherja. en í síðari hálfleik ákváðum við að mæta þeim enda fengum við fullt af færum og þeir ógnuðu okkur sjaldan á bak við okkur. Við teljum okkur kannski frekar geta spilað fótbolta gegn Lettum en öðrum þjóðum og við sóttum stanslaust í síðari hálfleik. en föstu leikatriðin urðu okkur að falli.“ Gunnar HEiðar Þorvaldsson „Ég á ekki orð yfir því að við höfum tapað hér heima 4–2 fyrir Lettum. en ég meina hver einasti maður hjá þeim gat tekið boltann, snúið sér og gert hvað hann vildi við boltann. Við litum út eins og ég veit ekki hvað. Við ætluðum að koma til baka og selja okkur dýrar í síðari hálfleik. Ég hélt að við myndum valta yfir þá í byrjun en þeir komust inn í leikinn og svona er þetta bara, þetta var ekki alveg að ganga.“ Árni Gautur arason „mér fannst ég byrja vel en svo skora þeir upp úr föstu leikatriði. Ég átti lítið í það. en í aukaspyrnunni hefði ég kannski mátt gera betur, ég þarf að skoða það í sjónvarpinu. boltinn var nálægt stönginni og svona, en við sjáum til.“ Eiður smári Guðjohnsen Skoraði tvö mörk og bætti markametið. barðist eins og ljón en því miður voru aðrir ekki í takt við eið. Kári Árnason gaf miklu fleiri sendingar á Letta en Íslendinga. Þótt menn spili ekki í sinni stöðu er lágmarks- krafa að landsliðsmaður geti sent á samherja. Grétar rafn steinsson Var ógnandi þann stutta tíma sem hann var inni á. Þurfti að fara af velli á 25. mínútu vegna meiðsla. Gunnar H. Þorvaldsson Sást einu sinni í leiknum og klúðraði þá dauðafæri. Hefði átt að fara af velli miklu fyrr enda í engum takt við leikinn. Helgi sigurðsson ekki eftirminnileg innkoma hjá Helga enda erfitt að koma inn á í þeirri stöðu sem upp var komin. Ármann smári Björnsson kom inn á í stöðunni 2–4 og tvær mínútur eftir. Furðuleg skipting. Hafði engan tíma til að setja mark sitt á leikinn. 3 5 7 4 maður leiksins 6 Eiður smári Guðjohnsen SAGT EFTIR LEIK 4 „Ég er gríðarlega svekktur og sér- staklega með fyrri hálfleik. Það var einbeitingarleysi og agaleysi í okkar leik í fyrri hálfleik. Við fengum þrjú mörk á okkur úr föstum leikatriðum og spiluðum illa. Við stóðum langt frá mönnum og vorum bara hlaup- andi á eftir þeim. Það gengur eng- an veginn. Menn verða að vera á tánum, annars fáum við alltaf mörk á okkur,“ sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðþjálfari eftir leikinn. Hann sagði að hann hafi ætlað að gera áherslubreytingar í síðari hálfleik en fjórða markið hafi komið sem rothögg. „Við ætluðum að þétta leikinn. Það var allt of langt á milli sóknar og varnar og þeir höfðu allt- af möguleika á að senda á sóknar- mennina. Það var allt of mikið svæði fyrir þá til að hreyfa sig. Við ætluðum að þrýsta liðinu upp í seinni hálfleik, sem og við gerð- um. Menn voru miklu ákveðnari. En að fá á sig mark á fyrstu mínútu var gríðarlega dapurt. Við reyndum eftir það og fengum færi. Markvörð- urinn varði nokkrum sinnum vel og við gáfum allt í þetta í seinni hálf- leik,“ sagði Eyjólfur og bætti við að það hafi samt sem áður ekki komið til greina að gera mannabreytingar í hálfleik. Hann sagði að hugarfarið fyrir leikinn hafi verið mjög gott. „Alveg eins og hefur verið í síðustu leikjum. Við skoruðum mark strax í byrjun og þá var eins og það hafi dofnað yfir liðinu. Það var bara værukærð yfir liðinu og það var eins og við værum að bíða eftir að þeir myndu jafna,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði einnig að það hafi riðlað leik liðsins að missa Grétar Rafn af velli. „Það var akkúrat hans maður sem var aleinn í teignum og skallaði boltann inn. Þá voru menn ekki búnir að átta sig á því hver ætti að taka hann. Það er gríðarlega svekkjandi. Þeir létu okkur finna fyr- ir því og við vorum bara í einhverj- um prímadonnuleik í fyrri hálfleik,“ sagði Eyjólfur. Spurður um sína stöðu sem landsliðþjálfari sagði Eyjólfur að sú ákvörðun væri í höndum KSÍ. „Ef maður reiðist telur maður upp að tíu og tekur skynsamlegar ákvarð- anir. Ég er fyrst og fremst bara gríð- arlega svekktur með að við höfum ekki náð að halda sama dampi og hefur verið,“ sagði Eyjólfur. SpILuðum ILLA Eyjólfur sverrisson landsliðsþjálfari var gríðarlega svekktur eftir leikinn: ur skömmu síðar. Dómarinn beitti hagnaðarreglunni og sókn Letta hélt áfram. Aleksejs Visnakovs sendi bolt- ann fyrir mark Íslands þar sem Kristj- án Örn Sigurðsson skallaði boltann beint fyrir fætur Maris Verpakovskis sem skoraði. Lettar voru þar með komnir í mjög vænlega stöðu og ekkert annað fyrir þá að gera en að bakka og halda sinni stöðu. Ísland náði hins vegar að klóra í bakkann á 53. mínútu þegar Eiður Smári skoraði sitt annað mark. Emil Hallfreðsson gaf á Eið Smára sem lék á varnarmenn Letta og skoraði með laglegu skoti í hornið fjær. Lengra komust Íslendingar ekki og 4–2 sigur Letta því staðreynd. Sig- ur Letta var fyllilega verðskuldaður. Ísland spilaði tvisvar við Letta í und- ankeppninni og tapaði samtals 8–2. Lettar hafa skorað níu mörk í undan- keppninni og átta þeirra komu gegn Íslandi. Níunda markið var sjálfs- mark Norður-Írans Chris Baird í 1–0 sigurleik Letta. Nú er það svo að árangur þjálf- ara er metinn eftir úrslitum en ekki frammistöðu. Það er deginum ljós- ara að úrslit Íslands í þessari undan- keppni eru heilt yfir slæm og spurn- ing hvor tími Eyjólfs Sverrissonar með landsliðið sé ekki liðinn. Ísland hefur fengið á sig 21 mark í undankeppninni til þessa. Aðeins fjögur lið af þeim 50 sem taka þátt í undankeppnini hafa fengið fleiri mörk á sig og það eru Færeyjar, San Marínó, Andorra og Liechtenstein. HöRmuLEG FRAmmISTAðA Eiður smári Guðjohnsen Var besti leikmaður Íslands. 1-0 fyrir Ísland Ísland byrjaði vel í leiknum Eyjólfur Í þungum þönkum „Ísland spilaði illa í leiknum“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.