Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Blaðsíða 22
mánudagur 15. október 200722 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR Tranmere á Toppnum tranmere er í efsta sæti League 2 með tuttugu stig, jafnmörg og Leyton en betra markahlut- fall. á meðan tranmere er með sex mörk í plús hefur Leyton tvö mörk í mínus. tranmere, sem hefur ekki tapað í seinustu tíu leikjum, gerði markalaust jafntefli við Walsall á föstudagskvöld. Stuðningsmenn tranmere voru óánægðir með að sóknarmenn liðsins fynndu ekki leiðina í netið en stjórinn, ronnie moore, lét það ekki angra sig. „Það er frábært að vera efstir í deildinni en samt er baulað á liðið eftir leik. Það er ótrúlegt. Ég skil pirringinn og strákarnir eru orðlausir. en við höfum bara tapað einum af fyrstu ellefu leikjunum og það er frábær byrjun.“ Þrenna Commons nottingham Forest er í þriðja sæti eftir 3–0 sigur á Cheltenham. Kris Commons skoraði þrennu fyrir Skírisskógar- drengina. „Vörn Cheltenham er vanalega mjög þétt svo ég er ánægður með frammistöðu okkar og úrslitin,“ sagði Colin Calderwood, stjóri Forest, eftir leikinn. „Fyrirsagnirnar verða tileinkað- ar kris en öflug liðsvinna var grundvöllur þrennunnar.“ Góður siGur souThend mörk nickys bailey, garys Hooper og Leons Clarke tryggðu sigurinn. southend tapaði seinasta leik sínum gegn tranmere en Crewe tapaði sínum fimmta leik í röð. Carlisle tapaði 1–2 fyrir Yeovil, sem vann sinn fyrsta sigur undir stjórn Johns Ward. Simon Hackney kom Carl- isle yfir í byrjun síðari hálfleiks en Lloyd owusu og nathan Jones skoruðu mörk Yeovil. Southend komst á sigurbraut á ný með 3–0 sigri á Crewe. bristol rovers tapaði sínum fyrsta leik á útivelli frá 10. mars þegar liðið tapaði 1–0 fyrir Hartlepool. Heimamenn réðu ferðinni í fyrri hálfleik en skoruðu ekki fyrr en á 39. mínutu þegar James brown kom boltanum í netið. Port Vale tapaði sínum fjórða leik í fimm leikjum þegar liðið tapaði fyrir brighton. dean glover hefur tekið við liðinu til bráðabirgða eftir að martin Foyle var rekinn. alex revell skoraði sigurmark- ið. til að bæta gráu ofan á svart fyrir Vale var bakvörðurinn adam eckersley, sem er í láni frá manchester united, rekinn út af vegna tveggja gulra spjalda. sTjóralaus lið Hin stjóralausu milwall og gillingham gerðu 1–1 jafntefli á Priestfield, heimavelli gillingham. Chris dickson, sem er í láni frá Charlton, skoraði fjórða mark sitt í tveimur leikjum fyrir gillingham en gary alexander jafnaði fyrir milwall. richard Shaw, bráða- birgðastjóri milwall, þótti miður að hans lið skyldi ekki vinna. „Leikmennirnir sýndu frábæran karakter. Ég leit til þeirra þegar við lentum undir en það var enga uppgjöf að merkja á þeim. Við áttum að vinna, sérstaklega miðað við færin sem við fengum í seinni hálfleik.“ Iffy onuora er enn titlaður bráðabirgðastjóri gillingham en undir stjórn hans hefur liðið leikið sex heimaleiki í röð án ósigurs. „Ég hef notið þess að stýra liðinu. Ég sé ekki eftir neinu sem ég hef gert seinustu vikur; þær hafa verið erfiðar en það er ekkert skemmtilegra en krefjandi vinna og ég hef lært margt. Ég er viss um að við munum ráða stjóra í vikunni en þangað til skila ég minni vinnu.“ Sean Thornton kom gestunum yfir strax eftir tæplega tíu mínútuna leik þegar hann sendi aukaspyrnu efst upp í fjærhornið, yfir markvörð- inn Casper Ankergren. Dómurinn ergði eflaust Dennis Wise, stjóra Leeds, sem fyrir leikinn skoraði á enska knattspyrnusambandið að endurskoða val sitt á Neil Miller sem dómara. Miller ávann sér reiði Wise fyrir að reka hann upp í stúku í 1-1 jafntefli Leeds og Southend í fyrra. „Ég trúi því ekki að Neil Miller eigi að dæma leikinn okkar. Það eru mér mikil vonbrigði en svona er þetta stundum. Vonandi stendur hann sig vel,“ sagði Wise fyrir leikinn. Brottrekstur, vítaspyrna og mark? Og Miller minnti á sig á 32. mín- útu þegar hann rak markaskorar- ann Thornton af leikvelli fyrir að slá í höfuð Seb Carole. Carole var nærri búinn að jafna mínútu fyrir leikhlé en skalla hans var komið frá á mark- línu. Hann jafnaði metin fljótlega í byrjun síðari hálfleiks eftir sendingu frá Alan Tompson. Tresor Kandol hefði getað tryggt Leeds öll stigin þrjú en hann skaut yfir úr vítaspyrnu sem Carole vann. Stig frá Elland Road er Leyton- mönnum kærkomið eftir þrjá ósigra í röð, seinast 0–5 gegn Swansea á heimavelli. Þeir voru þó ekki síður sárir leikmenn Leeds þar sem þeir töldu skot Adams Boyd hafa ver- ið komið yfir marklínuna áður en Ankergren náði að teygja sig eftir boltanum. Dómaratríóið var ekki á sama máli. Neil Miller eignaðist því kannski vini í Leeds en nýja óvini í Leyton. Að minnsta kosti Martin Ling, stjóra Orient. Flestir dómarnir, ef ekki allir, vitlausir „Það er miður að dómarinn skuli skyggja á frammistöðu okkar. Strák- arnir lögðu sig alla fram og ættu að fá allt hrósið en það verður engum dálksentímetrum eytt í þá í blöðun- um á morgun. Þeim verður varið í vandræði dómarans. Mér sýndist ákvarðanir hans flestar, ef ekki allar, vitlausar. Ég gagnrýni sjaldan dóm- ara því mér finnst þeir flestir gera sitt besta, en hjá þessum voru fjór- ir stærstu dómarnir hans allir vit- lausir,“ sagði Ling og bætti því við að brottvísun Thorpes yrði áfrýjað. „Vítaspyrnan var rangur dómur. Alton segir að hornið sem jöfnun- armarkið kom úr hafi verið rangur dómur og við skoruðum mark þar sem allir segja mér að boltinn hafi verið kominn metra yfir marklín- una.“ Breytt andrúmsloft á elland road Eftir fallið í fyrra er Leeds-lið- ið að rétta úr kútnum undir stjórn Dennis Wise og það kunna stuðn- ingsmenn Leeds að meta. Þeir van- treystu honum í fyrstu, sem gömlum vini eigandans Ken Bates frá árum þeirra hjá Chelsea, en eins og einn stuðningsmaður orðaði það í SMS- skeyti til útvarpsstöðvar í Leeds: „Ég er farinn að kunna vel við Denn- is Wise – gerir það mig að slæmum einstaklingi?“ Wise, sem verður fertugur í næsta mánuði, þykir vænt um hlýj- una frá stuðningsmönnunum á Ell- and Road. „Þeir hafa verið frábær- ir og andrúmsloftið er að breytast. Það var allt í rusli þegar við tókum við liðinu í fyrra en stuðningsmenn- irnir skilja að við höfum reynt að koma reglu á hlutina. Ég hef reynt að byggja liðið á ungum, hungruð- um leikmönnum sem vilja læra. Það hafa allir sagt það ómögulegt fyrir okkur að að fara upp, en stigarefs- ingin efldi hópinn. Án hennar hefð- um við þó verið komnir með níu stiga forystu. Það væri skelfilegt ef eftir 46 leiki myndi hún koma í veg fyrir að við kæmumst í umspil, fær- um beint upp eða ynnum deildina.“ vinAfáR DÓMARi Leeds United tapaði sínum fyrstu stigum á heimavelli í vetur þegar liðið gerði 1–1 jafn- tefli við Leyton Orient. Dómari leiksins eignaðist nýja óvini í Leyton. dennis Wise seg- ir Leeds-liðið vera á réttri leið. ljóshærður en ekki saklaus Sean thornton skoraði mark Leyton og var síðan rekinn út af. Fljótur Seb Carole skoraði mark og olli vörn Leyton talsverðum vandræðum. Keppni í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik hófst um helgina með þremur leikjum. Haukar hófu titilvörn sína á sigri gegn KR á Ásvöllum. Íslandsmeistararnir hafa misst tvo lykilmenn, Helenu Sverr- isdóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur. KR sendi ekki lið til keppni í fyrra og sendi seinast lið til keppni tímabil- ið 2005–06. Í liðinu eru þó nokkrar þaulreyndar körfuknattleikskonur, svo sem Guðrún Arna Sigurðardótt- ir, Hildur Sigurðardóttir og Jófríður Halldórsdóttir. Að auki fengu þær til sín Guðrúnu Ósk og Sigrúnu Sjöfn Ámundadætur frá Haukum. Mjótt var á mununum og í hálfleik mun- aði einungis einu stigi en staðan var 29–28. Hafnarfjarðarkonur voru þó jafnan skrefinu á undan. Keira Hardy var stigahæst Haukakvenna með 28 stig, Kristrún Sigurjónsdóttir skor- aði 15 stig og Telma Fjalarsdóttir tíu. Í liði KR skoraði Hildur mest með 26 stig. Sigrún Ámundadóttir skoraði 17 stig og tók að auki 20 fráköst. Úrslit- in úr fyrsta leik lofa góðu fyrir KR- konur. Þeim er spáð fimmta sætinu en stóðu rækilega í meisturunum. Í Grindavík unnu heimastúlkur stór- sigur á Hamri 94–65. Hamarskon- ur voru yfir eftir fyrsta leikhluta, 21– 22, en eftir það settu Grindvíkingar á fullt og leiddu í hálfleik 46–36. Kefla- vík, sem spáð er Íslandsmeistaratitl- inum, sigraði nýliða Fjölnis 88–51 en staðan í leikhléi var 47–28. Lið Vals, sem áður keppti undir merkjum ÍS, sat hjá í fyrstu umferð en tekur á móti Keflavík á þriðjudagskvöld. HAukAR unnu kR Í bARáTTuLeik Fyrsta umferð Iceland Express-deildar kvenna í körfuknattleik: Brýst í gegn telma Fjalarsdóttir skoraði tíu mörk fyrir Hauka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.