Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2007, Síða 10
Í seinustu viku draumgerðist Svarthöfði sem Gísli Mart-einn Baldursson borgarfull-
trúi. Framan af var draumurinn
ljúfur og Svarthöfði var ljóshærð-
ur og litfríður í Ráðhúsinu. Þá
hringdi gemsinn. Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra var í sím-
anum. „Sæll, vinur, geturðu hitt
mig heima í Háuhlíð á eftir ásamt
Hönnu Birnu? Við þurfum að fara
yfir málin.“ Þetta var auðvitað sjálf-
sagt og eðlilegt. Svarthöfði, í gervi
Gísla Marteins, vissi sem var að
náið samráð var milli þeirra félaga.
Svarthöfði bylti sér í rúminu og var
næstum því vaknaður í ofurspennu
vegna þess sem næst myndi gerast.
Svo skipti um leiksvið í draumn-
um. Björn dómsmálaráðherra
sat þungbúinn fyrir framan þau
Hönnu Birnu. „Við verðum að slíta
samstarfinu við Björn Inga og setja
Vilhjálm borgarstjóra af,“ sagði
hann ábúðarfullur. Rut, eig-
inkona ráðherrans, rak
nefið inn í bókastof-
una og bauð kaffi og
kleinur. Ráðherrann
lyfti hendi til sam-
þykkis og hún hvarf.
„Gísli Marteinn verður
borgarstjóri,“ sagði Björn.
Hanna Birna hrökk við og
hún sagði hvasst. „Ég er númer tvö
á listanum.“ Áður en Svarthöfði
vissi af var hann kominn í hörku-
slagsmál við Hönnu Birnu sem reif
í ljósa lokka hans svo undan sveið.
Hún æpti stöðugt skrækróma; „Ég
vil vera borgarstjóri, ég vil vera
borgarstjóri.“ En það kom auð-
vitað ekki til greina. Ráðherrann
ítrekaði að Gísli Marteinn væri
hinn smurði. Þeir Davíð Oddsson
seðlabankastjóri hefðu fyrir margt
löngu ákveðið það. En svo virtist
sem harðsnúna Hanna gerði sér
ekki grein fyrir þeirri stöðu og
hún hélt áfram að æpa og
hárreyta Gísla Martein, eða
staðgengil hans Svart-
höfða.
Draumar Svart-höfða eru hafn-ir yfir tíma og
rúm. Rut kom aldrei með kaffið
en næsta draumskeið var fund-
ur með Geir Haarde, formanni
Sjálfstæðisflokksins. Þar var allur
borgarstjórnarflokkurinn að Vil-
hjálmi borgarstjóra undanskild-
um. Svarthöfða fannst sem hann
hefði orð fyrir hópnum. Hann
gerði formanninum yfirvegaður
grein fyrir því að uppreisn
hefði átt sér stað og allur
borgarstjórnarflokkur-
inn væri sammála því
að reka Vilhjálm. Hanna
Birna skaut inn í að hún
ætlaði að verða borgar-
stjóri. Svarthöfði sussaði á
hana og benti henni fastmæltur
á að hann væri fyrir löngu smurður
til þeirra metorða. Geir formaður
var að raða saman púsluspili en
leit annað veifið upp, hummaði
og horfði á sexmenningana. En í
draumnum sagði hann ekkert.
Næsti kafli draumsins var í Ráðhúsinu. Svarthöfði var að faðma borgarstjórann
og þeir voru báðir tárvotir af gagn-
kvæmri hlýju: „Villi, við stönd-
um saman.“ Borgarstjórinn sagði
brostnum rómi að hann vissi ekki
einu sinni hvort það væri ypsil-
on í REI. Í fjarhorninu sat Hanna
Birna og virtist vera að senda
sms. Svarthöfði sleppti
Villa úr faðmlaginu og
læddist að Hönnu Birnu
og leit yfir öxl hennar:
„Allt opið – án Villa.“ stóð
á skjánum. „Ég verð borg-
arstjóri,“ sagði hann ákveð-
ið. Hanna Birna ýtti á „senda“
og réðst svo með kjafti og klóm á
Svarthöfða. Hann féll við atlögu
valkyrjunnar og hrökk upp af
draumsvefninum sem orðinn var
að martröð. Svarthöfði hafði dottið
fram úr rúmi sínu. Hann staulaðist
á fætur og gekk fram í forstofu. Í
speglinum sá hann sér til léttis að
hann var ekki lengur með ljósa
lokka. DV var komið inn um lúg-
una og framan á því stóð: „Rætt
um R-lista.“
mánudagur 15. október 200710 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40.
Allt opið - án VillA
Svarthöfði
ReyniR tRaustason RitstjóRi skRifaR. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hrærði í pottum óeiningar inni í borgarstjórnarflokknum.
Draugur Davíðs í Valhöll
Leiðari
Sjálfstæðisflokkurinn er í grafalvarlegri stöðu vegna þeirra lausataka sem eru á stjórn hans. Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra virðist vera á sömu leið og Halldór Ásgrímsson sem ekki tókst að halda uppi nauð-
synlegum aga í flokknum og varð á endanum að fara frá völd-
um. Geir Haarde ber mesta og þyngsta ábyrgð þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur hrökklast frá völdum í Reykjavík. Þetta
gerðist ekki vegna aðgerða hans heldur aðgerðaleysis. Hann
hefur látið öfl andstæð sér vaða uppi í flokknum án þess að láta
til skarar skríða. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hrærði
í pottum óeiningar inni í borgarstjórnarflokknum með þeim
afleiðingum að flokkurinn varð óstjórnhæfur og Björn Ingi
Hrafnsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, átti ekki aðra
kosti en þá að slíta samstarfinu eða lenda í minnihluta sjálfur.
Í bakgrunni sást glitta í Davíð Oddsson seðlabankastjóra sem
er leiðtogi Björns. Formaðurinn lét viðgangast að sex borgar-
fulltrúar gerðu uppreisn gegn borgarstjóranum. Með því að
samþykkja fund með fólkinu án borgarstjórans lét hann trún-
aðarbrest verða að veruleika. Geir hefði átt að taka af skarið á
þeim tímapunkti og leysa þá stjórnarkreppu sem upp var kom-
in. Það gat hann með því að neyða borgarstjóra til afsagnar
eða með því að snupra sexmenningana. Hann gerði hvorugt og
flokkurinn flaut sofandi að feigðarósi.
Geir verður að taka andstæðinga sína í flokknum föst-um tökum áður en verr fer. Dómsmálaráðherrann hefur fyrir löngu unnið sér inn þá hvíld sem hann og þjóðin fengju með brotthvarfi hans úr stjórnmál-
um. Áhorfsmál er hvers vegna Davíð Oddsson situr sem seðla-
bankastjóri í embætti sem hann úthlutaði sjálfum sér. Margt
bendir til þess að Geir hafi enn ekki hrist af sér hlekki Davíðs.
Getur verið að seðlabankastjórinn sé enn að þvælast uppi í brú
þjóðarskútunnar og setja út stefnur? Geir Haarde verður að
beita sjálfan sig hörðu og taka á málum ef hann ætlar ekki að
stórskaða flokk sinn. Enginn vill fá aftur ofríki Davíðs en kraf-
an er sú að Sjálfstæðisflokkurinn verði agaður svo rétt kjör-
in stjórn hans nái tökum á ástandinu. Ef það gerist ekki mun
hvert vígi flokksins af öðru falla. Sjálfstæðisflokkurinn er þessa
dagana í fullkominni afneitun vegna þess sem gerðist í borgar-
stjórn. Borgarfulltrúar segja kjósendum ósatt um þá óeiningu
og uppreisn sem varð borgarstjóranum að falli og allir keppast
við að kenna Birni Inga um hvernig fór. Vandinn liggur í Valhöll
þar sem draugur Davíðs leikur ljósum logum.
DómStóLL götunnar
Hvernig líst þér á nýja valdHafa í borginni?
„Við skulum gefa þeim tækifæri. mér
fannst farið ansi illa með Vilhjálm í
þessu máli. Þeir þurfa bara að sýna
okkur úr hverju þeir eru gerðir.“
Margrét Árnadóttir, 79 ára,
hönnuður
„mér líst svona bærilega á það. Ég
hefði ekkert haft á móti því að
sjálfstæðisflokkur væri enn í meiri-
hluta. maður er samt ekki alveg búinn
að átta sig á þessu því þetta gerðist svo
snöggt.“
Lilja Dögg Gunnarsdóttir, 28 ára,
háskólanemi
„Ég hefði viljað sjá sjálfstæðismenn og
framsóknarmenn útkljá þetta
orkuveitumál. Það mál var ekki alveg
til lykta leitt. Vilhjálmur hefði samt
þurft að víkja hvernig sem málið hefði
farið. Ég tel það víst að hann sagði ekki
satt og rétt frá.“
Haraldur Thorlacius, 50 ára,
verktaki
„batnandi mönnum er best að lifa.
batnandi þjóð er best að lifa. Það er allt
sem ég hef að segja.“
Marlon Lee Úlfur Pollock, 25 ára
SanDkorn
n Mannaferðir á Hótel Holti að
kveldi þess svarta dags Sjálf-
stæðisflokksins þegar borgin
féll í hendur
R-listans að
nýju vöktu
mikla athygli.
Davíð Odds-
son seðla-
bankastjóri
snaraðist þar
inn og gekk
nánast í flas-
ið á sínum gamla briddsfélaga,
Eiríki Tómassyni, sem féll í ónáð
fyrir nokkrum árum. Davíð brá og
hann snerist á hæli og gekk hröð-
um skrefum til bakherbergis við
koníaksstofu. Þangað komu líka
þeir Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson, Kjartan Gunnarsson
og Björn Bjarnason. Fjórmenn-
ingarnir sátu hnípnir fram eftir
kveldi og grétu örlög flokksins
en þeir áttu það sameiginlegt að
hafa att borgarfulltrúunum sex á
foraðið með því að egna þá gegn
Vilhjálmi borgarstjóra.
n Það var mál manna að einungis
hafi vantað Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstaréttarlögmann
og Styrmi Gunnarsson ritstjóra
á Holtið til að fullkomna sam-
ráðið. Styrmir notaði Staksteina
Morgunblaðsins til þess að hvetja
til nýs meirihluta VG og Sjálf-
stæðisflokks dagana áður en fall
Vilhjálms Vilhjálmssonar borg-
arstjóra var staðfest. Þar er talið
að hann hafi verið að ota fram
skoðunum fjórmenningaklíkunn-
ar og vinna gegn Geir H. Haarde
og Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem
umfram allt vildu halda saman
meirihlutan-
um. Samráð
fimmmenn-
inganna er
ekki nýtt af
nálinni því
allir koma
þeir við sögu
upphafs
Baugsmála
ásamt Jónínu Benediktsdóttur og
Jóni Gerald Sullenberger.
n Innan Sjálfstæðisflokks eru há-
værar raddir uppi um að Geir H.
Haarde hætti þeim lausatökum á
flokknum sem einkennt hafa feril
hans og leggi upp í lokaslaginn
við Davíðsarminn. Fyrsta skrefið
í því uppgjöri gæti verið að koma
Birni Bjarnasyni út en síðan að
koma böndum á Gísla Martein
Baldursson, sem kallast nú Brút-
us á meðal
andstæð-
inga innan-
húss. Annars
hefur verið
athyglisvert
að heyra litlu
sjallana í
borgarstjórn-
inni sverja af
sér svik og innanflokksátök.
n Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, nálgast nú
óðfluga starfslok. Vangaveltur
standa um eftirmann hans en
líklegast er talið að Ólafur Step-
hensen, ritstjóri 24 stunda, taki
við. Vandinn er hins vegar sá að
blað Ólafs er á fleygiferð og gæti
farið fram úr Mogganum sem er
á jafnri niðurleið í lestri. Það gæti
því orðið lakari kostur að stýra
lemstruðum Mogganum.