Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 10
miðvikudagur 11. júlí 20078 Fréttir DV Fjölskyldudjásn Bandaríkjamanna Erfitt er að segja til um með nokkurri vissu hve mörg skotvopn eru í umferð í Bandaríkjunum. Eftirlit með skotvopnaeign virð- ist vera lítið ef nokkuð. Samkvæmt einni könnun sem gerð var má áætla að tvö hundruð og fimmtán milljónir byssa séu í eigu Bandaríkjamanna. Ef sú tala er nærri lagi má segja að skotvopn sé á helmingi heimila í Bandaríkjunum. Átta manns, að meðaltali, undir nítján ára aldri eru skotnir til bana í Banda- ríkjunum á degi hverjum. Árið 2005 voru fleiri en fjórtán þúsund morð með skotvopnum og þar af voru um 400 fórnarlambanna börn. Að með- altali eru sextán þúsund sjálfsmorð framin með skotvopni og 650 dauðs- föll verða af völdum voðaskota árlega í landinu. Síðan árið 1963, þegar John F. Kennedy var myrtur, hafa fleiri Bandaríkjamenn látist fyrir hendi samlanda sinna en samanlagður fjöldi þeirra bandarísku hermanna sem féll á erlendum vígvöllum á tutt- ugustu öldinni. Með reglulegu millibili berast okk- ur tíðindi af ofbeldisverkum af stærri sortinni frá Bandaríkjunum. Hin síð- ari ár hafa morðárásir á nemendur og starfsfólk í skólum landsins veg- ið þar þungt. Í þeim tilvikum hefur skotvopnum verið beitt og nemend- ur og kennarar plaffaðir niður hægri- vinstri. Ekki er langt síðan banda- ríska þjóðin stóð agndofa vegna fjöldamorðanna í Tækniháskólanum í Virginíu. Fyrir ekki mörgum dög- um tók Asa Coon, fjórtán ára nem- andi í Cleveland í Ohio, sig til og rölti um ganga skólans með byssu í hvorri hendi. Eftir að hafa skotið tvo kenn- ara og tvo nemendur framdi hann sjálfsmorð. Við slík tíðindi er eðlilegt að hugur almennings og stjórnvalda þar vestra beinist að skotvopnaeign landsmanna samhliða því að bregð- ast við voðaverkunum sjálfum með tilheyrandi áfalli, sorg og reiði. Í sömu viku og Asa Coon framdi voðaverk sín krafðist hin fjörutíu og fjögurra ára kennslukona frá Medford í Oregon réttar síns fyrir dómstólum þar vestra. Hún er æf vegna þess að henni er bannað að mæta til vinnu með skammbyssu, sem er þó að hennar mati skýlaus réttur hennar. Lífseig þjóðsaga Það kaldhæðnislega er þó að stærstur hluti þess fólks sem fer ham- förum í málflutningi sínum í kjölfar voðaverka og fjöldamorða eins og áttu sér stað í Tækniháskólanum í Virginíu, er jafnvel í hópi skotvopna- eigenda. Og allir skotvopnaeigend- ur í þessu landi frelsisins eiga það sameiginlegt að þeir myndu seint samþykkja að gengið væri á réttindi þeirra varðandi þennan einkennandi þátt í amerísku samfélagi. Banda- ríkjamenn setja gjarnan samasem- merki milli réttindanna til að eiga og nota skotvopn og þess frelsis sem amerískum gildum og viðmiðum er ætlað að standa vörð um. En hvað veldur því að málum er svona háttað hjá þessari voldugu þjóð? Þessi ást og dýrkun Bandaríkja- manna á skotvopnum er þekkt um heim allan. Hún hefur fylgt þjóðinni frá byrjun. Stundum er sagt að villta vestrið hafi verið „tamið“ með Colt Peacemaker. Strax í upphafi banda- rísks samfélags var gengið út frá frels- inu til orðs og æðis. Slíkt er ekki óeðli- legt í ljósi þess að fyrstu innflytjendur Bandaríkjanna komu úr veröld þar sem höft, boð og bönn yfirgnæfðu allt annað. Evrópskur aðall var sá hópur fólks sem eitthvað átti og mátti í gamla heiminum. Nú skyldi því lok- ið og allir búa við sama rétt, bæði til að tjá sig og verja hendur sínar en einnig til að afla sér viðurværis með því að sækja sér veiðibráð í nægta- kistu amerískrar náttúru. Og til þess þurfti skotvopn. Stærstur hluti land- nema í vesturheimi var bændur en ekki byssubrandar og á þeim tíma sem álfan var að þróast í bandaríki var herinn meira eða minna látinn sjá um indíánana. Fyrir þann tíma, á ný- lendutímabilinu, voru skotvopn ekki jafnalgeng og oft er látið í veðri vaka, ekki síst vegna þess að það var ekki á færi allra að kaupa slíkan grip. Rann- sókn á morðum með skotvopnum að fornu leiddi í ljós að jafnmiklar líkur voru til þess að riffillinn væri notaður sem barefli við manndrápið og að af honum væri skotið. Af þeim sökum, meðal annars, má efast um réttmæti þeirrar þjóðsögu að Bandaríkin hafi orðið til í skugga byssunnar. Skotvopn og föðurlandsást Rithöfundurinn og ljósmynd- arinn Kyle Cassidy eyddi tveimur árum í að ferðast um Bandaríkin og tala við og fjalla um byssueigend- ur í landinu. Afrakstur vinnu hans sem kominn er út á bók gefur slá- andi sýn inn í brenglaðan heim. Á myndum sem prýða bókina má sjá fjölskyldur, þar sem eru smábörn og gæludýr og meðlimirnir stilla sér upp með skammbyssur, riffla og hríðskotabyssur, sem fólk teng- ir frekar stríðsátökum. Í Bandaríkj- unum er byssan böðuð ljóma ein- hvers og er í huga heimamanna órjúfanlegur hluti menningar og föðurlandsástar. Það þurfti fjölda- framleiðslu og markaðssetningu til að gera skotvopn eins vinsæl í Bandaríkjunum og raun ber vitni. Fjöldaframleiðslan hófst í borgara- stríðinu í Bandaríkjunum, byssur urðu algengari og ódýrari og sölu- herferðir skotvopnaframleiðenda skírskotuðu oftar en ekki til land- námstímans þar sem skáldaleyfinu var óspart beitt. Hvergi í heiminum hefur almenningur greiðari aðgang að skotvopnum og hvergi er vopna- burður eins almennur. Hin síðari ár hefur staðið mikil orrahríð milli þeirra sem vilja breytingar annars vegar og samtaka byssueigenda, NRA, hins vegar. Þeir sem breyta vilja byssulöggjöfinni segja að setja verði byssueign einhverjar skorður og herða reglur um byssukaup og vopnaburð í samræmi við það sem tíðkast víðast annars staðar í heim- inum. Með því myndi voðaverkum með skotvopnum fækka. En NRA, með leikarann Charlton Heston í broddi fylkingar, verjast grimmt og vísa til stjórnarskrárbundinna réttinda. Þeir benda jafnframt á að þrátt fyrir allt séu Bandaríkin ekki með hæstu morðtíðni meðal þjóða. Talinn fyrrverandi kennari Fyrsti barnaníðingurinn sem Int- erpol lýsti eftir með myndum er talinn vera enskur fyrrverandi tungumálakennari sem býr nú í Kampútseu. Maðurinn hafði tek- ið upp myndbönd þar sem hann sást nauðga börnum. Interpol fékk hundruð ábendinga eftir að mynd af manninum var birt opinberlega. Fimm ábendinganna, sem komu frá þremur heimsálfum, gáfu til kynna að maðurinn hefði áður starfað sem tungumálakennari við skóla í Suður-Kóreu. Þaðan flaug maðurinn til Bangkok í Taílandi og er grunaður um að hafa misnotað börn þar og í Víetnam. Stærsta farþegaþota í heimi, Air- bus A 380 sem hefur verið kölluð of- urjúmbóþota, fer í jómfrúrferð sína 25. október. Fyrsta flugvélin var af- hent Singapore Airlines í gær. Vélin tekur 800 farþega í sæti og er á tveimur hæðum. Þannig gætu allir Seyðfirðingar flogið með henni í einu og nokkrir gestir að auki. Mikið umtal hefur verið um vélina en fyrsta flugið er átján mánuðum á eftir áætlun og er talið að sú töf hafi kostað Airbus-fyrirtækið sem fram- leiðir vélina um sex milljarða evra. Nú er svo komið að framleiðendurn- ir þurfa að selja að minnsta kosti 420 flugvélar til að hagnast á því að smíða vélina. Fleira hefur sett skugga á ofur- júmbóþotuna en stjórnendur í fram- leiðslufyrirtækinu EADS eru sakað- ir um spillingu og innherjaviðskipti með hlutabréf í fyrirtækinu. „Ég geri mér grein fyrir því að þetta hafa verið afar erfiðir 18 mán- uðir en það gerir útkomu vélarinnar ennþá ljúfari fyrir okkur. Þetta er afrek af okkar hálfu og við erum mjög sáttir við útkomuna“, segir Thomas Enders, stjórnarformaður EADS sem er eig- andi Airbus. Fjöldi áfalla hefur dunið á fram- leiðendum síðan smíði vélarinnar hófst en Airbus tilkynnti á mánudag- inn að staðið yrði við allar pantanir sem gerðar hafa verið og engra frek- ari tafa væri að vænta. Airbus þarf að selja 420 vélar til þess að smíði vél- arinnar standi undir sér en einung- is 189 vélar hafa verið pantaðar fyr- ir næstu þrjú ár. Það er langt undir væntingum en stór ástæða dræmr- ar sölu er sú að fjöldi stjórnenda í fyrirtækinu seldi hlutabréf sín í Air- bus árið 2006 og í kjölfarið lækkaði markaðsvirði fyrirtækisins mikið á hlutabréfamörkuðum. Í kjölfarið hófu frönsk yfirvöld rannsókn á fyr- irtækinu en stjórnendur fyrirtækis- ins segjast ekki hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Airbus á í harðri samkeppni við Boeing sem tilkynnti fyrir skömmu að framleiðsla „Dreamliner“-flugvélar- innar, sem hefur svipaða eiginleika og nýja Airbus-þotan en er minni, muni tefjast um 6 mánuði. Það er vatn á myllu Airbus sem vonast eftir því að það muni leiða til þess að fleiri flugfé- lög veðji á flugvél fyrirtækisins. vidar@dv.is Stærsta farþegaflugvél í heimi er væntanleg á markað og rúmar 800 farþega: Fyrsta ofurþotan afhent KoLbeinn þorSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Cleveland í ohio asa Coon skaut þar til bana tvo nemendur og tvo kennara. riffill og skammbyssa Böðuð rómantísku ljósi í huga Bandaríkjamanna. Stærsta farþega- þota í heimi airbus 380 getur flutt 800 farþega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.