Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 26
Þýsk-Tyrkinn Nejat er ekki hress með pabba sinn sem flytur vændis- konu inn á heimilið. Hann samt virð- ir við hana hvernig hún fjármagnar með þessum hætti nám Ayten, dótt- ur sinnar í Tyrklandi. Nám þar í landi er allt annað en ókeypis og vonleysi blasir við ómenntuðum. Ákveðinn atburður gerir að fjármagn hættir að berast Ayten svo Nejat fer til Tyrk- lands í leit að henni. Á meðan hefur hún flúið pólitískar ofsóknir og dvelst í Þýskalandi hjá þarlendri vinkonu sinni Lotte í ósátt við borgaralega mömmu hennar. Öll vötn liggja engu að síður til Istanbul og tengjast þess- ar sögur þar. Myndin vinnur vel úr því formi að segja nokkrar sögur í rangri tímaröð sem smátt og smátt tengjast. En hér eru oft tilviljanir þess valdandi að sögurnar fara á mis við hver aðra en undir niðri bíður maður spennt- ur eftir að þræðirnir mætist. Við upp- haf hvers kafla kemur síðan texti sem skýrir hvað gerist í honum en af ein- hverri magnaðri ástæðu dregur það ekki úr spennunni enda vel unnið með formið. Þýskar myndir almennt, en fyrst og fremst þær sem berast út fyrir landsteinana, eru það mikl- ar klassamyndir að leitun er að öðru eins. Þessi þýska gæðamynd er síðan mjög tyrknesk enda er til stórt sam- félag Þýsk-Tyrkja sem myndin gerist einmitt í. Frásögn er látlaus ásamt tón- list einfaldra laglína sem er notuð frá- bærlega. Eitt sterkasta tromp mynd- arinnar er hversu raunveruleg hún er. Sannferðug í menningarárekstrunum og rasismanum. Hvernig margir Tyrk- ir taka með sér til Þýskalands siðferð- isramma sem rímar illa við þann sem fyrir er. Hvernig handteknir pólitískir andstæðingar tyrkneskra stjórnvalda hrópa nafn sitt við handtöku sökum þess hve algengt er að fólk „hverfi“ þar í landi. Öll samskipti eru lifandi og at- riði eru sérstaklega áhrifamikil bæði í gleði og glötun. Hún er sem dæmi ótrúlega mögnuð senan þegar Ayten og Lotte kynnast, falleg í svita sínum og áfergju. Sorgarsena ein á hótel- herbergi er síðan algjör andstæða en af sömu gæðum. Gæsahúð. Ótrúlega falleg hversdagsmynd og djöfull getur hversdagurinn verið magnaður. Maraþoninntökupróf, ef svo má kalla það, fyrir stórmyndina Justice League of America fóru fram í Bandaríkjunum í gær og fyrradag. Leikstjóri myndarinnar, George Miller, kom fljúgandi frá heima- slóðum sínum í Ástralíu til að horfa á hátt á fjórða tug leikara reyna sig. Þeirra á meðal voru Adam Brody, Joseph Cross, D.J. Cotrona, Mary Elizabeth Winstead og Michael Angarano. Myndin byggist á sívinsælum teikni- myndasögum og mun skarta ofurhetj- um eins og Súperman, Wonder Woman, Batman, Flash og Aquaman. Samkvæmt Hollywood Reporter voru engir búning- ar eða annað í þá veru til taks í prufun- um heldur þurftu þeir sem spreyttu sig eingöngu að lesa handritið frammi fyrir myndavélum og túlka tiltekinn karakter eins og hann eða hún taldi nægilega gott til að hreppa hnossið. Miller ku víst einn- ig leggja mikla áherslu á að leikarar nái vel saman og taki ekki síður mið af því. Þá segir Hollywood Reporter að Miller vilji helst ráða leikara í yngri kantinum sem geti vaxið og dafnað í hlutverki sínu því ætlunin sé að gera fleiri en eina og fleiri en tvær myndir. Leikstjórinn stefn- ir að því að gera upp hug sinn með leik- aravalið í þessari viku. Warner Bros. stendur að gerð mynd- anna og er ætlunin að eyða háum fjár- hæðum til að útkoman verði sem allra best. Óvíst er hvenær hægt verður að frumsýna fyrstu myndina. ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200726 Bíó DV Sofðu einu sinni hjá Chuck og næsti maður sem þú hittir er ást lífs þíns. Brjálæðislega fyndin mynd! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 14 16 12 16 14 16 14 14 GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10 THE KINGDOM kl. 8 - 10.10 HALLOWEEN kl. 6 SUPERBAD kl. 6 14 16 16 12 12 12 14 16 14 4 MONTHS ENSKUR TEXTI kl. 5.40 - 8 - 10.15 EDGE OF HEAVEN ENSKUR TEXTI kl. 5.40 - 8 - 10.20 ALEXANDRA ENSKUR TEXTI kl. 10.15 HALLOWEEN kl. 8 - 10.30 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 GOOD LUCK CHUCK kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 GOOD LUCK CHUCK LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 HALLOWEEN kl. 8 - 10.25 SUPERBAD kl. 5.30 - 8 - 10.30 SHOOT´EM UP kl. 10.20 HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 3.50 - 6 HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45 300 kr. Síð. sýningar - I. Þ. Film.is - J. I. S. Film.is “Skotheld skemmtun” - T.S.K., Blaðið ����� “H EIMA ER BEST” - MBL ����� “ ALG JÖRLEGA EINSTÖK” - FBL ����� “VÁ” - B LAÐIÐ ����� “ME Ð GÆSA HÚÐ AF HRIFNIN GU” - DV ����� “SI GUR ROS HAVE REINVENTED THE ROCK FILM” - Q ���� “SO BEAUTI FUL ITS HYPNOTIC” - EMPIRE Dóri DNA - DV ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST Bölvun eða blessun? GOOD LUCK CHUCK kl. 5.40 - 8 - 10.20 THE KINGDOM kl. 5.40 - 8 - 10.20 HEIMA - SIGURRÓS kl. 6 - 8 - 10 VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20 - L.I.B. Topp5.is - bara lúxus Sími: 553 2075 THE KINGDOM kl. 5.45, 8 og 10.15 16 3:10 TO YUMA kl. 5.30, 8 og 10.30 16 CHUCK & LARRY kl. 5.45, 8 og 10.15 12 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR www.laugarasbio.is - Miðasala á Bíódómur Auf der Anderen Seite „Ótrúlega falleg hvers- dagsmynd og djöfull get- ur hversdagurinn verið magnaður.“ Leikstjóri: Fatih Akin Niðurstaða: HHHHH 1001 nótt þýsk-tyrkja Hin hliðin Litið er á stöðu tyrkneskra innflytjenda í Þýskalandi. Flytur inn vændiskonu Pabbi aðalsöguhetjunnar flytur vændiskonu inn á heimilið. Leikstjórinn George Miller hefur nóg að gera: Inntökupróf fyrir ofurhetjumynd George Miller Leikstjórinn vill helst ráða leikara í yngri kantinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.