Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 18
ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200718 Sport DV
Næstu leikir
A-riðill
Kasakstan - Portúgal
aserbaídsjan - Serbía
Belgía - armenía
Lið L U J T M St
1. Pólland 12 7 3 2 20:10 24
2. Portúgal 11 5 5 1 21:9 20
3. Finnland 12 5 5 2 11:6 20
4. Serbía 11 4 5 2 13:8 17
5. Belgía 11 3 3 5 10:14 12
6. armenía 9 2 3 4 4:8 9
7. Kasakstan 11 1 4 6 9:18 7
8. aserbaíds. 9 1 2 6 4:19 5
B-riðill
Úkraína - Færeyjar
georgía - Skotland
Frakkland - Litháen
Lið L U J T M St
1. Skotland 10 8 0 2 20:8 24
2. Ítalía 10 7 2 1 17:7 23
3. Frakkland 10 7 1 2 21:3 22
4. Úkraína 9 4 1 4 11:12 13
5. Litháen 9 3 1 5 7:11 10
6. georgía 10 2 1 7 14:17 7
7. Færeyjar 10 0 0 10 3:35 0
C-riðill
Malta - Moldavía
Tyrkland - grikkland
Bosnía og Hers. - Noregur
Lið L U J T M St
1. grikkland 9 7 1 1 17:9 22
2. Tyrkland 9 5 3 1 22:9 18
3. Noregur 9 5 2 2 20:8 17
4. Bosnía/Hers. 10 4 1 5 16:19 13
5. ungverjal. 10 4 0 6 10:17 12
6. Moldavía 10 1 3 6 6:17 6
7. Malta 9 1 2 6 7:19 5
D-riðill
San Marínó - Wales
Írland - Kýpur
Þýskaland - Tékkland
Lið L U J T M St
1. Þýskaland 9 7 2 0 31:4 23
2. Tékkland 9 6 2 1 19:4 20
3. Írland 10 4 3 3 14:11 15
4. Slóvakía 10 4 1 5 27:20 13
5. Kýpur 9 4 1 4 16:17 13
6. Wales 9 3 1 5 14:16 10
7. San Marínó 10 0 0 10 1:50 0
E-riðill
Rússland - England
Makedónía - andorra
Lið L U J T M St
1. Króatía 10 8 2 0 25:4 26
2. England 10 7 2 1 21:2 23
3. Rússland 9 5 3 1 14:4 18
4. Ísrael 10 5 2 3 17:11 17
5. Makedónía 9 2 2 5 7:11 8
6. Eistland 11 1 1 9 3:21 4
7. andorra 9 0 0 9 2:36 0
F-riðill
Lichtenst. - Ísland
danmörk - Lettland
Svíþjóð - N.Írland
Lið L U J T M St
1. Svíþjóð 9 7 1 1 20:4 22
2. Spánn 10 7 1 2 19:8 22
3. N.Írland 9 5 1 3 14:11 16
4. danmörk 9 4 2 3 14:8 14
5. Lettland 9 3 0 6 9:11 9
6. Ísland 10 2 2 6 10:21 8
7. Liechtenst. 10 1 1 8 5:28 4
G-riðill
Lúxemborg - Rúmenía
Holland - Slóvenía
albanía - Búlgaría
Lið L U J T M St
1. Rúmenía 9 7 2 0 18:5 23
2. Holland 9 6 2 1 11:3 20
3. Búlgaría 9 5 3 1 14:6 18
4. Slóvenía 10 3 2 5 9:12 11
5. albanía 9 2 4 3 8:7 10
6. Hv.Rússland 10 2 1 7 11:20 7
7. Lúxemborg 10 1 0 9 2:20 3
Þýskaland varð á laugardag fyrsta
liðið til að tryggja sér þátttökurétt á
EM sem fram fer í Sviss og Austurríki
næsta sumar. Þær þjóðir fá sjálfkrafa
þátttökurétt en á veraldarvefnum eru
Austurríkismenn hvattir til að draga
sitt lið úr keppni. Heimamenn vilja
ekki verða sér til skammar!
Englendingar, Grikkir, Tékkar og
Svíar geta allir komist í lokakeppn-
ina með sigri á miðvikudag og Króat-
ar og Pólverjar geta komist á EM þótt
liðin spili ekki.
Aðalpressan er á risunum í B-
riðli, Ítalíu og Frakklandi. Skotar eru
efstir í þeim riðli, nokkuð óvænt, og
þurfa fjögur stig úr síðustu tveimur
leikjum sínum til að tryggja sér þátt-
tökurétt næsta sumar. Fyrri leikurinn
er gegn Georgíu og sá síðari gegn Ít-
alíu. Ítalir eru með 23 stig en þeir
eiga ekki að spila í undankeppninni
á miðvikudag og spila þess í stað æf-
ingarleik gegn Suður-Afríku. Frakkar
eru með 22 stig og spila við Litháa.
„Ég hef trú á því að Georgíumenn
geti staðið í Skotum því þeir eru með
gott lið og hafa að engu að keppa,“
sagði Gigi Buffon, markvörður Ítala,
og bætti við að það yrði ótrúlegt ef Ít-
alía kæmist ekki í lokakeppnina með
26 eða 27 stig. Georgía tapaði fyrir Ít-
alíu 0–2 á laugardag og hefur sjö stig
úr tíu leikjum. Þeirra eini sigur var á
Færeyjum.
Skotland vann Úkraínu 3-1 á laug-
ardag sem var þeirra sjötti sigurleik-
ur í röð.
Bilic styður England
Það er ljóst að Króatar munu
halda með Englendingum á mið-
vikudag þegar þeir mæta Rússum á
gervigrasi í E-riðli. Ef England vinn-
ur eða gerir jafntefli kemst Króatía
áfram. „Trúið mér, ég verð harðasti
stuðningsmaður Englands á mið-
vikudag,“ sagði Slaven Bilic, þjálfari
Króata.
Englendingar unnu Eista 3-0 sem
var þeirra fimmti sigurleikur í röð í
undankeppninni. Englendingar hafa
gert mikið úr því að leikurinn fari
fram á gervigrasi og að veðrið gæti
sett strik í reikninginn. „Við munum
tækla þær aðstæður sem koma upp.
Við erum einbeittir og ætlum okkur
sigur og ekkert annað,“ sagði Steve
McClaren landsliðsþjálfari Eng-
lands.
Í okkar riðli, F-riðlinum, eru Spán-
verjar og Svíar í lykilstöðu. Svíar eru
með 22 stig og geta komist til Sviss og
Austurríkis með sigri á Norður-Írum
á miðvikudag. Spánverjar eru einnig
með 22 stig en hafa leikið einum leik
meira og þurfa að bíða fram í nóv-
ember til að komast að því hver örlög
þeirra verða.
Tékkland getur komist áfram úr
D-riðlinum og fylgt þar með Þýska-
landi upp úr þeim riðli. Liðin mætast
á miðvikudag og þurfa Tékkar sigur
ætli þeir sér að fylgja grönnum sín-
um. Þýskaland er efst í riðlinum með
23 stig, Tékkland er í öðru með 20 stig
og Írland er í þriðja sæti með 15.
Grikkir geta komist á EM vinni
þeir Tyrki. Grikkir eru efstir í C-riðl-
inum með 22 stig. „Þetta verður
erfiður leikur á miðvikudag en við
þekkjum okkar styrkleika og ég hef
trú á mínu liði,“ sagði framherjinn
knái Angelos Charisteas. Liðin mæt-
ast í Tyrklandi, því ógnarvígi sem
það er, en í fyrri leik liðanna unnu
Tyrkir 4–1. Tyrkir eru í öðru sæti með
18 stig eftir óvænt jafntefli við Mold-
óva. Noregur hefur 17 stig og mætir
Bosníu-Hersegóvínu.
Pólverjar í góðri stöðu
Rúmenar eru enn í skýjunum eft-
ir að hafa lagt Hollendinga að velli
á laugardag í G-riðli. Rúmenar eru
efstir í riðlinum með 23 stig, Hol-
lendingar 20 og Búlgarar eru í þriðja
sæti með 18. Rúmenía mætir Lúxem-
borg, Holland fær Slóveníu í heim-
sókn og Búlgaría mætir Albaníu á
miðvikudag.
Ruud van Nistelrooy er í leik-
banni á miðvikudag en Wesley Sneij-
der snýr aftur eftir bann. Ef Búlgaría
tapar er Rúmenía komin áfram.
Í A-riðli eru Portúgalar í öðru sæti
með 20 stig á eftir Pólverjum með 24.
Portúgalar mæta Kasökum á útivelli
og hefur Luis Felippe Scolari lands-
liðsþjálfari Portúgala kallað á Ariza
Makukula í stað Nunos Gomes sem
er meiddur. Finnar eru einnig með
20 stig en þeir taka á móti Pólverj-
um. Tapi Portúgalar og Serbar á mið-
vikudag eru Pólverjar komnir í loka-
keppni EM í fyrsta sinn.
Hverjir
fylgja
England og ríkjandi Evrópumeistarar
Grikklands eru meðal liða sem eiga
möguleika á því að komast í lokakeppni
EM á miðvikudag. Spennan fyrir leiki
miðvikudagsins er mikil:
BEnEDikt BóAs hinkrisson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Þjóðverjum?
Evrópumeistararnir í góðri stöðu
Fanis gkekas leikmaður grikklands
fagnar marki sínu á laugardag.
Erfitt hjá Ítölum gianluigi Buffon og
nautið gennaro gattuso eru ekki öruggir
um að komast til Sviss og austurríkis.
styður England Slaven Bilic
landsliðsþjálfari Króata segist
ætla að styðja Englendinga.