Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2007, Blaðsíða 30
ÞRIÐJudaguR 16. OKTÓBER 200730 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Landsliðsfyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen var hrók-
ur alls fagnaðar á laugardags-
kvöldið eftir skammarlegt tap
Íslendinga gegn Lettum í und-
ankeppni
EM. Eiður
var staddur
á Vegamót-
um þar sem
hann var
í villtum
snúningi
á gólfinu
syngjandi
með laginu Move Bitch Get Out
of the Way eftir rapparann Lud-
acris. Eiður gekk svo að plötu-
snúðinum Dj Danna Deluxe og
bað hann um óskalag. Lagið var
ekkert annað en lagið Juicy með
rapparanum Biggie Smalls og
söng fyrirliðinn með af innlifun.
n Strákarnir í hljómsveitinni
Nýdanskri mega heldur betur
una glaðir
við sitt á
tuttugu ára
starfsafmæli
hljómsveit-
arinnar. Um
helgina hófst
sala miða
á tónleika
hljómsveit-
arinnar í Borgarleikhúsinu í lok
mánaðarins og hjá Leikfélagi
Akureyrar 6. nóvember. Meira
en helmingur miðanna seldist
upp á tæpum tveimur sólar-
hringum. En aðdáendanna bíð-
ur fleira en tónleikaveisla því á
leiðinni er safnplata sem inni-
heldur líka tvö ný lög ...
n Það var heldur betur handa-
gangur í öskjunni síðastliðinn
fimmtudag þegar meirihlutinn í
borgarstjórn sprakk og nýr meiri-
hluti var myndaður á mettíma.
Fréttin kvisaðist út klukkan að
verða þrjú og blaðamannafund-
ur boðaður klukkan hálffimm.
Hraðinn var feikilegur, fjöl-
miðlamenn á hlaupum, þjóðina
þurfti að upplýsa um gang mála.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins fór
augljóslega ekki varhluta af lát-
unum því fjögurfréttir fóru seinna
í loftið en venjan er. Ekki er hægt
að segja að seinkunin hafi verið
mikil, kannski um hálf mínúta
eða svo, en það telst til tíðinda á
þeim bænum. Það heyrðist líka á
meðan frétta-
tíminn stóð
yfir að mikið
gekk á því
dyr heyrðust
opnast og
lokast oftar
en einu sinni.
Og gott ef
hinum fag-
urraddaða og yfirvegaða Brodda
Broddasyni lá ekki óvenju hátt
rómur.
Hver er konan?
„Soffía er íþróttamanneskja.“
Hvaða áhugamál hefur þú?
„Ég hef mikinn áhuga á borðtennis.
Svo hef ég mjög gaman af því að fara í
Hreyfingu í Faxafeni. Þar hjóla ég og
geng á göngubretti á þriðjudögum og
fimmtudögum.“
Hvað æfir þú þig oft?
„Ég æfi tvisvar í viku, á mánudög-
um og fimmtudögum. Svo æfi ég fót-
bolta hjá Öspinni þannig að ég er í
mörgum íþróttum.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn
á Íslandi?
„Mér finnst Reykjavík langflottust.“
Hvar í heiminum myndir þú vilja
búa, ef ekki á Íslandi?
„Einhvers staðar í útlöndum.
Kannski í Danmörku eða Hollandi.
Ég hef komið þangað og finnst það
skemmtilegustu löndin.“
Á hvernig tónlist hlustar þú?
„Ég hlusta á íslenska tónlist og
enska. Mín uppáhaldshljómsveit er Á
móti sól. Þeir eru svo flottir, Magni og
félagar. Við Stjáni eigum nokkrar plöt-
ur með þeim.“
Hver er uppáhaldssjónvarpsþátt-
urinn þinn?
„Ef ég mætti velja er það Nætur-
vaktin sem er á sunnudögum. Mér
finnst hún skemmtilegust.“
Hvernig er tilfinningin að vera
heimsmeistari?
„Hún er alveg frábær. Ég ætla að
keppa aftur fyrir Íslands hönd en ég
veit ekki hvar Ólympíuleikarnir verða
haldnir næst. Það er ekki alveg komið
á hreint en ég er alls ekki hætt.“
Hvernig fannst þér að vera í
Kína?
„Það var mjög skemmtilegt. Það
gekk svo vel að keppa. Ég varð heims-
meistari í borðtennis í tvíliðaleik með
Guðrúnu Ólafsdóttur. Svo var ég í
þriðja sæti í tvenndarleik með Guð-
mundi Hafsteinssyni og líka í þriðja
sæti í einliðaleik. Ég fékk þrjá verð-
launapeninga á mótinu og það var
glæsilegt.“
Kom þér eitthvað á óvart í Kína?
„Það var svo margt sem kom mér
á óvart. Ég sá svo margt skemmtilegt.
Það var gaman þegar Logi Bergmann
kom út og tók viðtal við mig. Hann er
mjög skemmtilegur og gaman að tala
við hann. Svo talaði ég líka við Ólaf
Ragnar Grímsson. Hann er frændi
minn og var þarna úti í Sjanghæ.“
Keyptir þú þér einhvern grip til
minja um Kína?
„Já, ég keypti mér ýmislegt enda
var allt svo ódýrt. Ég ætlaði reyndar að
kaupa mér könnur í Kína en ég fann
þær ekki svo ég keypti þær bara á flug-
vellinum í staðinn.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Ég ætla að halda áfram að aðstoða
Stjána með útvarpsþáttinn sem hann
er með á Reykjavík FM. Þar svara ég í
síma og reyni að aðstoða hann eins og
ég get.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
xx
xx
+2
4
xxxx
xx
xx
xx
xx
xx
xx
+4
1
+1
4
+1
4
xx
+3 7
xx
xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
+8
7
+9
4
xx
+94
+71
xx
xx
xxxx
xx
xx
xx
+2
4
xx
+2
1
+3
1
xx
xx
xx
xx
xx
+97
+87
+51
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
vELtinGur
reynir traustason
skrifar.
Kvótinn
oG KriStinn
Baráttumaðurinn Kristinn Pétursson á Bakkafirði hef-ur þurft að sjá á bak flest-um sínum jarðnesku eig-
um á uppboð. Maðurinn sem hafði
helgað þorpinu starfskrafta sína alla
þurfti að kveðja staðinn slyppur og
snauður. Fyrirtækið hans var slegið
hæstbjóðanda og íbúðarhúsið líka.
Eftir áratugastarf kvaddi hann þorp-
ið sitt. Ástæða þessa er í grunninn
einföld. Kvótakerfið sem gerði syni
Alla ríka á Eskifirði svo ríka að þeir
geta búið í vellystingum í London,
kostaði Kristin allar hans eigur.
Kristinn hefur barist gegn kvótakerfinu lengur en flestir aðrir. Hann hefur fært fram ótal rök gegn
kerfinu og talið að það kostaði
fjölda manns lífsafkomuna. Þessi
afstaða Kristins hefur kallað yfir
hann andúð ráðandi afla í samfé-
laginu. Sú hagræðing andskotans
sem kerfið kallar fram gerir ekki ráð
fyrir að byggð haldist í smærri þorp-
um. Hagkvæmni hinna stóru gildir
og byggð skiptir engu máli fremur
en fólk. Lífsbjörg Bakkfirðinga var
fiskurinn í sjónum. nú mega fæstir
róa til fiskjar og margir eru á fram-
færi hins opinbera. Í stað þess að
draga spriklandi fisk úr sjó og færa
lífsbjörgina að landi svo fiskverka-
fólk geti unnið úr úrvalshráefni ríkir
nú aðgerðarleysi og vonleysið eitt á
Bakkafirði.
Það kann vel að vera að Kristni hafi sem burðarási í atvinnulífinu á Bakkafirði
mistekist í rekstri
sínum. Líklegt
verður þó að
telja að hann hafi
þrjóskast við að
spila með kvótakerf-
inu. Hann fór af staðnum snauður
en dæmi eru um annað. Á Flateyri
kvaddi burðarásinn þorpið með
rúman milljarð króna í úttroðnum
vösum og settist að í Hafnarfirði.
Eftir stóð þorpið í auðn rétt eins og
á Bakkafirði. Það bendir því margt
til þess að Kristinn hefði getað
auðgast. En það er virðingarvert af
honum að standa alltaf með þeirri
sannfæringu sinni
að fiskveiðar og
vinnsla snúist um
að fólk hafi vinnu
fremur en að til
verði sægreifar.
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði
Ætla að keppa
aftur fyrir Ísland
Soffía Rúna Jensdóttir
er nýlega komin heim frá Kína
þar sem hún keppti fyrir Íslands
hönd á Ólympíuleikum fatlaðra.
Hún gerði sér lítið fyrir og vann
til þrennra verðlauna í borðtenn-
is en hún varð meðal annars
heimsmeistari í tvíliðaleik.